Læknablaðið - 15.06.1998, Síða 34
484
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
einnig talningar á CD4+ frumum á þriggja til
sex mánaða fresti nema þegar lyfjameðferð var
breytt, en þá voru sýni mæld fyrir breytingu,
þremur til fjórum vikum síðar og á þriggja til
sex mánaða fresti í kjölfarið. Magn veiru í
plasma var ákvarðað með Amplicor HIV
Monitor™ prófi frá Roche. Fjöldi CD4+
frumna var greindur með flúrljómandi mót-
efnamerkingu og talningu í flæðifrumusjá.
Niðurstöður: Fylgst var með 44 sjúklingum.
Upphafsgildi RNA var frá 2,6 logio til 6,13
logio; að meðaltali 5,02 log. Fjöldi CD4+
frumna var á bilinu 2-641 fruma/mm3; að með-
altali 230 frumunímm3. Ellefu einstaklingar
höfðu ekki verið meðhöndlaðir með HIV bæl-
andi lyfjum og greindust með fleiri en 10.000
veirueintök í mL plasma. Meðferð var breytt
hjá 25 sjúklingum. Breyting veirumagns hjá
öllunt hópnum fyrir og eftir meðferð var allt frá
0,7 log aukningu (+0,7 log) niður í 2,88 log
lækkun (-2,88), sem er að meðaltali minnkun
um 0,9 log. Breyting á fjölda CD4+ frumna
spannaði fækkun um 195 frumur/mm3 í aukn-
ingu um 143 frumur/mm3. Meðaltalið var aukn-
ing um 6,9 frumur/mm3. Hjá 11 sjúklingum
sem meðhöndlaðir voru með tveimur bakrita-
hemlum var sakvínavír, próteasahemli, bætt
við meðferðina. Breyting á veirumagni spann-
aði frá +0,7 til -0,78 log og meðaltalið var
-0,23 log. Sex sjúklingar voru meðhöndlaðir
með einum bakritahemli. Sakvínavír og öðrum
bakritahemli var bætt við þá meðferð. Breyting
veirumagns var frá +0,24 log í -2,26 log; með-
altal -0,65 log. Fjórir einstaklingar höfðu ekki
verið meðhöndlaðir áður. Hafin var meðferð
með tveimur bakritahemlum og sakvínavír.
Magn veiru lækkaði frá -1,8 til -2,67 log; með-
altalið var -2,37 log.
Alyktanir: 1. RNA gildi HIV sýktra spönn-
uðu allt svið mælingaraðferðarinnar. 2. Breyt-
ingar veirumagns í kjölfar breytinga á meðferð
voru töluvert einstaklingsbundnar. 3. Ekki
mældist marktæk lækkun veiru þegar sakvína-
vír einu sér var bætt við tvo bakritahemla. 4.
Veirumagn í blóði sjúklinga sem ekki höfðu
fengið meðferð áður lækkaði að meðaltali rúm-
lega hundraðfalt í kjölfar meðferðar með
sakvínavír og tveimur bakritahemlum.
Inngangur
í lok árs 1996, rúmum 15 árum eftir upphaf
HIV (human immunodeficiency virus) farald-
ursins, er áætlaður fjöldi alnæmissýktra f heim-
inum 22,6 milljónir (1), og á íslandi höfðu
greinst 104 HIV sýktir einstaklingar, þar af 41
með alnæmi (2).
Miklar framfarir hafa orðið í lyfjameðferð
HIV sýkingar einkum með tilkomu fjöllyfja-
meðferðar og nýs lyfjaflokks, próteasahemla,
sem hamla verkun veiru próteasa. Fram til árs-
ins 1996 höfðu eingöngu lyf úr flokki bakrita-
hemla (reverse transcriptase) verið notuð gegn
veirunni. Zídóvúdín (azidothymidine, Retro-
vir) kom fram á sjónarsviðið 1987 en síðan
hafa fjögur önnur lyf úr sama flokki fylgt í
kjölfarið. Lyf þessi verka snemma í lífhring
HIV-1 (HIV af gerð 1), en hafa þann ókost að
virkni er fremur lítil. A árinu 1996 hafa hins
vegar lyf úr flokki próteasahemla, sem verka á
lokastig í þroska veirunnar og bæla fjölgun
hennar af meiri krafti en bakritahemlar, haslað
sér völl í meðferð HIV sýkingar. Eitt þeirra,
sakvínavír (Invirase), var tekið í notkun hér á
landi í byrjun febrúar 1996, rítonavír (Norvir)
fylgdi á hæla þess og síðan hafa bæst við fleiri
öflugir próteasahemlar. Jafnframt hafa rnenn
orðið margs vísari um gang sjúkdómsins og
meingerð.
Ýmsar mælistikur hafa verið notaðar til að
meta áhrif lyfja á sjúkdóminn svo sem ein-
kenni, fylgisýkingar, fjöldi CD4+ frumna og
dauði. Þegar meðferð gegn HIV ber árangur
fylgist yfirleitt að fjölgun CD4+ frumna og
lækkun veirumagns í plasma. Síðastliðin tvö ár
hafa rannsóknir leitt í ljós að næmasta mæli-
stikan á áhrif lyfja gegn retróveirum er magn
veiru í plasma sjúklings (3). Mælingar á RNA
alnæmisveirunnar í plasrna hafa því verið að
vinna sér sess í meðferð HIV sýktra. Það telst
marktæk breyting ef magn veiru í plasnta
lækkar um hálfan logariþma (-0,5 logio) (4).
Auk þess að vera hjálplegar við að meta svörun
við lyfjameðferð, gefa HIV-1 RNA mælingar í
plasma til kynna hverjar líkur eru á að sjúk-
dómur ágerist (5-7).
Tilgangur þessarar rannsóknar var annars
vegar að mæla HIV-1 RNA í plasma HIV
sýktra einstaklinga á Islandi og hins vegar að
meta áhrif nýrra lyfjasamsetninga á veirumagn
í plasma og fjölda CD4+ frumna í blóði.
Efniviður og aðferðir
Rannsókninni var hrundið af stað í septem-
ber 1995 með kynningu meðal lækna sem með-
höndla HIV sýkta einstaklinga á Islandi á HIV-
1 RNA mælingum svo og töku og meðferð