Læknablaðið - 15.06.1998, Page 40
490
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Nýr doktor í geðlæknisfræði
Ólafur Þór Ævarsson geðlækn-
ir varði doktorsritgerð sína í geð-
læknisfræði við Háskólann í
Gautaborg þann 16. apríl síðast-
liðinn Heiti ritgerðarinnar er
„Dementia and aging. An epi-
demiological study of the de-
tection, preclinical phase,
course and prognosis of de-
mentia at age 85 to 88“. And-
mælandi var prófessor Knut
Engedal frá Osló. Fjallar ritgerð-
in um heilabilun og öldrun og er
faraldsfræðileg rannsókn á for-
stigum, sjúkdómsgangi og horfum helstu sjúk-
dóma sem valda heilabilun.
Heilabilun (dementia) er nú skilgreind sem
heilkenni með áunnri truflun á minni, áttun,
hugsun, skilningi, tali og dómgreind. Einnig
geta komið fram breytingar á persónuleika og
truflað tilfinningalíf. Sjúkdómsgangur er
venjulega langur og ástand fer versnandi og
dregur úr daglegri getu. Heilabilun er einn
stærsti heilbrigðisvandi okkar daga vegna
þjáninga sjúklinga, mikilla þarfa á heilbrigðis-
þjónustu, kostnaðar í umönnun og álags á að-
standendur. Talið er að yfir þrjú þúsund ein-
staklingar þjáist af heilabilun á ýmsum stigum
á Islandi í dag. Aður var talið að heilabilun
væri eðlilegur fylgifiskur elli og talið að allir
yrðu heilabilaðir ef þeir yrðu nægilega gamlir.
Margt bendir til að svo sé ekki og er nú litið á
heilabilun sem sérstaka og óeðlilega sjúkdóms-
þróun.
Algengustu sjúkdómar sem valda heilabilun
eru Alzheimers sjúkdómur og truflanir í æða-
kerfi heilans (æðaheilabilun) en fjölmargir aðr-
ir sjúkdómar koma til greina. Talsverður hluti
þeirra sjúkdóma sem valdið geta heilabilun eru
læknanlegir og því mikilvægt að greina þá sem
fyrst.
Rannsóknin fór fram í Gautaborg og var öll-
um borgurum sem fæddir voru 1901-2 boðin
þátttaka í athugun á heilsufari við 85 ára aldur.
Fylgst var með hópnum og skoðun endurtekin
þremur árum síðar. ítarleg geðskoðun var gerð
og tekið viðtal við aðstandendur. Þá var gerð
líkamleg skoðun, ásamt rannsóknum með
hjartalínuriti, röntgenmynd af hjarta og lung-
um, sálfræðimati og umfangsmiklum blóðrann-
sóknum. Tölvusneiðmyndir og
blóðflæðimælingar á heila voru
einnig gerðar.
Helstu niðurstöður rannsókn-
arinnar eru að algengi heilabilun-
ar í þjóðfélaginu eykst hratt með
aldri hjá háöldruðum og er tæp-
lega helmingur einstaklinga við
88 ára aldur með einkenni heila-
bilunar. Virðist sem konur hafi
einhvern verndandi þátt gegn
heilabilun og veikist síðar á æv-
inni en karlar. Niðurstöður gefa
nýjar upplýsingar um áhrif helstu
tegunda heilabilunar á dánartíðni og tengsl við
aðra geðræna kvilla og líkamlega sjúkdóma.
Fram kom að aðrir sjúkdómar en Alzheimers
sjúkdómur geta skipt verulegu máli,
sérstaklega æðaheilabilun.
Rannsóknin varpar skýrara ljósi á forstig
helstu tegunda heilabilunar og eykur því færni
í að greina veikindi af þessu tagi á fyrri stigum
en gert er í dag og um leið möguleika á skjótari
greiningu og fyrirbyggjandi aðgerðum. Þetta er
sérstaklega mikilvægt þar sem nú eru að þróast
aðferðir til að hafa áhrif á að takmarka hugsan-
legar skemmdir í kjölfar heiladreps eða blæð-
inga og nýjar lyfjameðferðir standa nú til boða
gegn Alzheimers sjúkdómi.
Dissertation abstract
A representative population sample living in
the community or in institutions in the city of
Gothenburg, Sweden, was followed from the
age of 85 (N=494) to 88 (N=248).
Methods included a neuropsychiatric and
physical examination, key informant interview,
MMSE and computerized tomography of the
head. Medical records and death certificates
were studied. The survey was part of the geron-
tological and geriatric population studies in
Gothenburg (H70).
I. The prevalence of dementia in the age
group under study increased from age 85 to age
88 in women (from 31% to 46%) but not in
men (from 27% to 25%). The increase was
mostly attributed to a higher rate of new cases
among women than among men. The propor-
tion of moderate to severe dementia increased