Læknablaðið - 15.06.1998, Page 42
492
LÆKNABLAÐIÐ 1998: 84
Umræða og fréttir
Formannsspjall
Læknafélag íslands komiö á netið
Heimasíða Læknafélags ís-
lands „www.icemed.is“ var
formlega opnuð af Snorra Páli
Snorrasyni fyrrverandi formanni
LI á formannaráðstefnu LI þann
15. maí síðastliðinn. Opnun
heimasíðunnar og læknavefsins
er merkilegur áfangi í sögu
læknasamtakanna og býður upp
á rnikla möguleika fyrir lækna til
upplýsingamiðlunar og sam-
skipta.
Samtökin stíga nú inn á upp-
lýsingahraðbrautina, inn í nýtt
tímabil þar sem upplýsingatækni
kemur til með að hafa afgerandi
áhrif á miðlun þekkingar. Það er
sérþekking lækna sem er styrkur
þeirra. Það er aðgangur að þekk-
ingu og möguleiki til miðlunar,
sem ræður mestu um möguleika
lækna til að nýta þekkingu sína
og til mótunar samfélagsins í
framtíðinni.
Stórstígar framfarir í upplýs-
ingatækni hafa átt sér stað og nú
taka læknasamtökin af fullum
krafti þátt í þeirri þróun. Notkun
tækninnar hentar læknum vel í
starfi sínu og stefnt verður að því
að gera læknavefinn aðgengileg-
an og gagnlegan fyrir alla ís-
lenska lækna. Mín tilfinning er
sú að þessi starfsemi eigi eftir að
sameina lækna enn frekar en
orðið er og koma í veg fyrir
óþarfa misklíð og misskilning.
Um leið og ég óska íslenskum
læknum til hamingju með opnun
læknavefsins vil ég þakka stýri-
hópi LÍ í upplýsingatækni, og þá
sérstaklega formanni hans
Magnúsi Jóhannssyni, fyrir vel
unnið starf við að koma þessu
verkefni af stað á jafn myndar-
legan hátt og raun ber vitni. Þá
vil ég sérstaklega þakka Mar-
gréti Aðalsteinsdóttur hjá LI og
„vefaranum" okkar Arna Má
Jónssyni. Mikið starf er enn
óunnið við gerð læknavefsins,
og munu ýmsar nýjungar skjóta
upp kollinum á næstu misserum.
Velkomin á upplýsingahrað-
brautina.
Guðmundur Björnsson
formaður LI
form @icemed.is
Snorrí Páll Snorrason býr sig undir að opna formlega heima-
síðu Lœknafélags íslands. Magnús Jóhannsson fylgist með.
Og liér aðgœta þeir félagar í ofvami livort síðan birtist ekki á
stóra skjánum eins og til var œtlast.