Læknablaðið - 15.06.1998, Qupperneq 43
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
493
/
Formannaráðstefna LI
Frá formannaráðstefnu LÍ 1998. Formenn samninganefnda: Hall-
dór Kolbeinsson, Ingunn Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Ingi Eyj-
ólfsson og Gunnar Ingi Gunnarsson. Ljósm.: Lbl.
Þann 15. maí síðastliðinn efndi
Læknafélag íslands til formanna-
ráðstefnu samkvæmt venju.
Formaður félagsins Guðmund-
ur Björnsson setti ráðstefnuna og
rakti störf stjórnar frá síðasta
aðalfundi. A aðalfundinum, sem
haldinn var í Borgarnesi í sept-
ember síðastliðið haust, voru
samþykktar ýmsar tillögur og
gerði Guðmundur grein fyrir því
hvaða afgreiðslu hver og ein
þeirra hefði hlotið. Ymis mál
komu til kasta stjórnarinnar í
vetur leið og, má þar til nefna
hnefaleika, ölvunarakstur og
frumvarp til laga um gagna-
grunna á heilbrigðissviði, en um
öll þessu mál hefur stjórn LÍ
fjallað ítarlega og beitt sér út á
við. Að auki hefur verið óskað
eftir álitsgerðum stjórnar LI um
margvísleg lagafrumvörp sem
verið hafa til meðferðar á Al-
þingi í vetur. Formaður reifaði
þau má og gerði ennfremur grein
fyrir stöðunni í kjaramálum
lækna, en þrátt fyrir það að
samningar hafi víða tekist eru
víða ýmsir endar enn lausir.
Sigurbjörn Sveinsson gjald-
keri félagsins fjallaði um þær
breytingar sem gerðar hafa verið
á starfsemi skrifstofu félagsins,
bæði hvað varðar mannafla og
skipulag starfs, en eins og félög-
um LÍ er ef til vill kunnugt hefur
starfsmönnum skrifstofu LI ver-
ið fækkað og hefur niðurskurð-
urinn reyndar líka bitnað á
Læknablaðinu.
Forsvarsmenn einstakra starfs-
nefnda greindu frá stöðu mála á
sínum vettvangi.
Vilhjálmur Rafnsson ábyrgð-
armaður Læknablaðsins gerði
grein fyrir þeim breytingum sem
þegar hafa orðið og eru framund-
an á rekstri Læknablaðsins. Eins
og að ofan getur hefur starfs-
mönnum fækkað við blaðið, en
jafnframt er aukin vinna að fær-
ast í hendur starfsmanna, svo
sem endanlegt umbrot. Þröstur
Haraldsson blaðamaður hefur
verið ráðinn í hlutastarf að blað-
inu en auk hans starfa þar sem
áður Ásta Jensdóttir og Birna
Þórðardóttir.
Jón Snædal varaformaður LI
kynnti væntanlega útgáfu sögu
læknisfræðinnar sem unnið hefur
verið að síðustu árin og Gunn-
laugur Haraldsson þjóðhátta-
fræðingur greindi frá undirbún-
ingsvinnu að útgáfu nýs Lækna-
tals, en þegar er farið að kalla
eftir upplýsingum í þá útgáfu
þótt svör hafi verið nokkuð
dræm til þess.
Árni Björn Stefánsson for-
maður orlofsnefndar gerði grein
fyrir stöðu orlofsmála, en nokk-
uð er framtíðin óljós í þeim
málaflokki þar sem ekki er greitt
í orlofssjóð fyrir þá lækna er nú
fá greidd laun samkvæmt úrskurði
kjaranefndar (heilsugæslulækn-
ar).
Formaður stjórnar Lífeyris-
sjóðs lækna Eiríkur Benjamíns-
son skýrði fjárhagslega stöðu
sjóðsins, sem er mjög góð, og
gerði jafnframt gein fyrir helstu
fjárfestingum og þeirri stefnu
sem rekin er í þeim málum.
Stefán B. Matthíasson formað-
ur stjórnar hinnar nýju Fræðslu-
stofnunar sagði mál þar á góðu
róli. Nú hafa verið sendir út
spurningalistar til félagsmanna
þar sem óskað er eftir ábending-
um og hugmyndum um mögu-
lega starfsemi á vegum stofnun-
arinnar. Stefán kvað margvísleg-
ar hugmyndir í gangi og augljós-
lega næg og spennandi verkefni
framundan.
Á formannaráðstefnunni var
heimasíða LÍ formlega opnuð.
Magnús Jóhannsson útskýrði
uppbyggingu síðunnar og tíund-
aði þær upplýsingar sem fyrir-
hugað er að hlaða þar inn smátt
og smátt, síðan kallaði hann til
Snorra Pál Snorrason fyrrverandi
formann LÍ sem formlega opnaði
upplýsingasíðuna. Það þótti
skemmtilega táknrænt að tengja
á þennan hátt fortíð og framtíð,
reynsluna við áframhaldandi
þekkingarleit.
Daginn eftir, þann 16. maí var
efnt til kjaramálaráðstefnu á
vegum LI. Forystumenn hinna
ýmsu samninganefnda læknafé-
laganna greindu frá starfi sínu og
stöðu mála. Auk þeirra fluttu