Læknablaðið - 15.06.1998, Qupperneq 57
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
507
Lyfjasýnishorn
Nokkur umræða hefur átt sér
stað að undanförnu um lyfjasýn-
ishorn og reglur sem gilda um
þau. Umræðan er ekki einskorð-
uð við Island og má til dæmis
finna grein um þetta efni á
heimasíðu sænsku lyfjamála-
stofnunarinnar.
í 17. gr. lyfjalaga nr. 93/1994
er fjallað um lyfjasýnishorn. Þar
segir:
Heimilt er að afhenda per-
sónulega lækni, tannlækni eða
dýralækni lyfjasýnishorn í
minnstu pakkningu og án
greiðslu enda sé um að ræða
nýskráð lyf til kynningar hér á
markaði sem ekki teljast
ávana- eða fíknilyf. Slík af-
hending er einungis heimil að
fenginni dagsettri og undirrit-
aðri beiðni læknis.
Önnur afhending eða póst-
sending lyfjasýnishorna í aug-
lýsingaskyni er óheimil.
Framangreind ákvæði lyfja-
laga eru byggð á tilskipun ráðs
Evrópubandalaganna nr. 92/28/
EBE um auglýsingu lyfja sem
ætluð eru mönnum. Akvæðin eru
nánar útfærð í IV. kafla reglu-
gerðar nr. 328/1995 um lyfjaaug-
lýsingar.
Heimild til afhendingar lyfja-
sýnishoma er veitt til þess að sá
sem leyfi hefur til að ávísa við-
komandi lyfi, geti til dæmis
kynnt sér hvernig viðkomandi
lyf og pakkning lítur út:
Eru töflurnar stórar og erfitt að
gleypa þær?
Er deiliskora í töflunni?
Hvernig er taflan á litinn og
hver er lögun hennar?
Hvernig eru umbúðirnar? Er
til dæmis auðvelt að opna þær?
Hver er texti fylgiseðils eða
annarra upplýsinga sem lyfinu
fylgja?
Og svo framvegis.
Einnig getur verið um að ræða
lyf sem sjúklingur fær afhent í
eða með sérstökum hjálpartækj-
um, til dæmis insúlín og ýmis
innúðalyf.
Sú regla gildir á Islandi að
lyfjasýnishorn skal vera minnsta
pakkning lyfs, sem veitt hefur
verið markaðsleyfi fyrir. Jafn-
framt er aðeins heimilt að af-
henda lækni eitt sýnishom á ári
enda sé um að ræða lyf sem ný-
lega hefur verið veitt markaðs-
leyfi fyrir.
Svo sem ljóst má vera af fram-
ansögðu eru lyfjasýnishom ætl-
uð til þess að læknir, sem ávísa
má viðkomandi lyfi, geti kynnt
sér útlit þess, umbúðir, merking-
ar og fylgiseðil. Lyfjasýnishom
má ekki afhenda sjúklingi. Þau
em ekki ætluð til notkunar og
eiga að vera auðkennd merking-
unni Ókeypis lyfjasýnishorn -
Ekki til sölu.
Sérstakar reglur gilda um af-
hendingu lyfjasýnishorna frá
lyfjaheildsölum og minnt skal á
að litið er á lyfjasýnishom sem
lyf, að öllu öðru leyti en því að
þau má ekki afhenda til notkun-
ar. Hér er til dæmis vísað til inn-
flutnings lyfjasýnishorna og af-
hendingu frá lyfjaheildsölum.
Einnig gilda sérstakar reglur um
skráningu á afhendingu lyfjasýn-
ishoma. Þeir, sem leyfi hafa til
að afhenda lyfjasýnishorn, þurfa
að hafa í gæðakerfum sínum sér-
stakar reglur hér um.
í sænsku greininni sem fyrr er
vitnað til kemur fram að þess
þekkjast dæmi að lyfjasýnishorn
séu notuð við áfyllingar í lyfja-
öskjur sjúklinga. Slíkt er að
sjálfsögðu óheimilt, bæði í Sví-
þjóð og á íslandi. Öll lyf sem
ætluð eru sjúklingum skulu af-
greidd í samræmi við reglur þar
um - í lyfjabúð eða frá sjúkra-
húsapóteki eða lyfjageymslu
stofnunar.
Þess má geta að meðhöndlun
og afhending lyfjasýnishoma er
meðal þess sem Lyfjaeftirlit rík-
isins kannar við úttektir í fyrir-
tækjum. Hið sama gildir um út-
tektir sem gerðar em á sjúkra-
stofnunum, heilsugæslustöðvum
og læknastöðvum sem Lyfjaeft-
irlit ríkisins hefur eftirlit með.
Frá Lyfjaeftirliti ríkisins
Gallup-könnun fyrir landlækni
Almenningur vill að ríkið leggi
meira til heilbrigðismála
í könnun sem Gallup gerði í
vor á afstöðu almennings til
þess hvort útgjöld til heilbrigð-
ismála væru hæfileg hér á
landi kemur í ljóst að 85,8%
þeirra sem afstöðu tóku fannst
að rétt væri að auka framlög
ríkisins til heilbrigðismála frá
því sem nú er. 13,1% töldu rétt
að halda þeim óbreyttum en
1,1% vildi lækka þau.
Alls vora 780 manns spurðir
en af þeim tóku 95,9% afstöðu.
Ef litið er á það hvemig svörin
flokkast eftir tekjum kemur í
Ijós að þeir sem vilja auka
framlög ríkisins eru flestir í
tekjulægstu hópunum en fækk-
ar eftir því sem tekjur hækka.
Hjá þeim sem höfðu yfir 300
þúsund kr. á mánuði í fjöl-
skyldutekjur vora 78,3% fylgj-
andi því að auka framlög rikis-
ins til heilbrigðismála. -ÞH