Læknablaðið - 15.06.1998, Page 58
508
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Lyfjamál 67
Frá Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneyti og landlækni
Notkun geð-
deyfðarlyfja eykst
Enn og aftur fjöllum við um
geðdeyfðarlyf og vísum til súlu-
rits í Lyfjamálum 63 í febrúar
síðastliðnum. Þar er sýnd notk-
unin á Norðurlöndum nokkur
síðustu ár. Nú liggja fyrir notk-
unartölur á Islandi á síðasta ári
og enn heldur aukning áfram.
Flokkur N06AB, sérhæfðir
blokkarar serótónín endurupp-
töku (SSRI), vex úr 24,2 DDD/
1000 íbúa/dag 1996 í 28,6 (18%).
Flokkur N06AA, ósérhæfðir
blokkarar mónóamín endurupp-
töku (TCA) vex einnig í svipuðu
hlutfalli, 10,0 DDD/1000 íbúa/
dag 1996 í 11,5 og er það nokkur
breyting því notkunin hefur ver-
ið tiltölulega stöðug síðustu ár.
Söluverðmæti geðdeyfðarlyfja
(N06A) vex úr 468 mkr 1996 í
558 mkr 1997 reiknað á apóteks-
verði með vsk. Þar af er flokkur
N06AB 419 mkr á síðasta ári.
A vegum Canadian Coordinat-
ing Ojfice for Health Tecnology
Assessment fór á síðasta ári fram
yfirlitsathugun (meta-analysis) á
162 lyfjarannsóknum þar sem
borin er saman geðdeyfðarmeð-
ferð með SSRI lyfjum annars
vegar og TCA lyfjum hins vegar
þegar um er að ræða mikla geð-
deyfð (severe depression). Til-
gangurinn var að bera saman
virkni, meðferðarheldni og auka-
verkanir. Aðeins voru athugaðar
tvíblindar slembiúrtaks rann-
sóknir þar sem meðferðartími var
4-12 vikur og niðurstöður voru
sýndar tölulega eða myndrænt.
Niðurstöður voru í aðalatrið-
um þær að lyfjaflokkarnir væru
jafngildir að virkni og meðferð-
arheldni einnig svipuð. Tíðni
aukaverkana var meiri með
SSRI-lyfjum og voru helstar
ógleði og kvíði, en með TCA-
lyfjum voru helstu aukaverkanir
munnþurrkur og hægðatregða.
Fyrir neðan birtist sama mynd
og í lyfjamálum 63, nema að nú
hafa bæst við tölur frá Færeyjum
1996og 1997, Finnlandi 1996og
íslandi 1997.
DDD/ioooíb./dag Sa|g geödeyföarlyfja á Noröurlöndum
45 0 N06AX Önnurgeðdeyfðarlyf
□ N06AG MAO blokkarar, aðrir
en hydrazíð
■ N06AB Séræfðir blokkarar
serótónín endurupptöku
N06AA Ósérhæfðir blokkara
mónóamín endurupptöku
10
5 B
Danmörk
Finnland
ísland
Noregur
Svíþjóö
Færeyjar