Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.1998, Page 65

Læknablaðið - 15.06.1998, Page 65
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 513 Opni EQuiP fundurinn um gæðaþróun Reykjavík 5. nóvember 1998 Þann 5.-7. nóvember næstkomandi verður haldinn í Reykjavík fundur vinnuhóps EQuiP, en eins og margir vita er þetta vinnuhópur heimilislækna í Evrópu um gæðaþróun. í tengslum við fundi vinnuhópsins verður opinn fundur á Hótel Sögu fimmtudaginn 5. nóvember kl. 10:00-17:00 og er hann ætlaður heimilislæknum og öðru fagfólki í heilsu- gæslu. Aðrir sem áhuga hafa á gæðaþróun eru velkomnir. Þrír erlendir fyrirlesarar frá EQuiP hópnum verða með fyrirlestra og auk þess verða fjölmörg erindi frá íslenskum heimilislæknum. Fundur þessi tengist vísindaþingi Félags íslenskra heimilislækna, sem haldið verður á sama stað 6. og 7. nóvember. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Gunnar Helgi Guðmundsson, formaður gæðaráðs Félags íslenskra heimilislækna, Heilsugæslustöðinni Fossvogi Fjórða vísindaþing Félags íslenskra heimilislækna Reykjavík 6.-7. nóvember 1998 Á þinginu verða bæði frjálsir fyrirlestrar og spjaldasýning. Kynntar verða rannsóknir og rannsóknaráætlanir sem tengjast heilsugæslu. Auk þess verða bæði innlendir og erlendir gestafyrirlestrar. Ágrip skal skrifa á A4-blað með sama sniði og á fyrri þingum. Þar skal koma fram tilgangur rannsóknarinnar, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Ágripum skal skilað á disklingum ásamt einu útprenti til Emils L. Sigurðssonar, Heilsugæslutöðinni Sólvangi, 220 Hafnarfirði fyrir 15. september. Ágripin verða birt í sérstöku blaði þingsins sem dreift er til allra lækna á íslandi. Vísindaþingsnefndin Emil L. Sigurðsson Jón Steinar Jónsson Sigríður Dóra Magnúsdóttir

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.