Læknablaðið - 15.06.1998, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
513
Opni EQuiP fundurinn
um gæðaþróun
Reykjavík 5. nóvember 1998
Þann 5.-7. nóvember næstkomandi verður haldinn í Reykjavík fundur vinnuhóps EQuiP,
en eins og margir vita er þetta vinnuhópur heimilislækna í Evrópu um gæðaþróun. í
tengslum við fundi vinnuhópsins verður opinn fundur á Hótel Sögu fimmtudaginn 5.
nóvember kl. 10:00-17:00 og er hann ætlaður heimilislæknum og öðru fagfólki í heilsu-
gæslu. Aðrir sem áhuga hafa á gæðaþróun eru velkomnir. Þrír erlendir fyrirlesarar frá
EQuiP hópnum verða með fyrirlestra og auk þess verða fjölmörg erindi frá íslenskum
heimilislæknum. Fundur þessi tengist vísindaþingi Félags íslenskra heimilislækna, sem
haldið verður á sama stað 6. og 7. nóvember. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.
Gunnar Helgi Guðmundsson,
formaður gæðaráðs Félags íslenskra heimilislækna,
Heilsugæslustöðinni Fossvogi
Fjórða vísindaþing
Félags íslenskra
heimilislækna
Reykjavík 6.-7. nóvember 1998
Á þinginu verða bæði frjálsir fyrirlestrar og spjaldasýning. Kynntar verða rannsóknir og
rannsóknaráætlanir sem tengjast heilsugæslu. Auk þess verða bæði innlendir og erlendir
gestafyrirlestrar.
Ágrip skal skrifa á A4-blað með sama sniði og á fyrri þingum. Þar skal koma fram tilgangur
rannsóknarinnar, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Ágripum skal skilað á
disklingum ásamt einu útprenti til Emils L. Sigurðssonar, Heilsugæslutöðinni Sólvangi,
220 Hafnarfirði fyrir 15. september.
Ágripin verða birt í sérstöku blaði þingsins sem dreift er til allra lækna á íslandi.
Vísindaþingsnefndin
Emil L. Sigurðsson
Jón Steinar Jónsson
Sigríður Dóra Magnúsdóttir