Læknablaðið - 15.03.1999, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
209
kassa var styttri en annarra starfsmanna og er
það hugsanlega vegna þess að þær fá óþægindi
af hinni einhæfu vinnu og leita því í önnur
störf. Starfsmenn við afgreiðslukassa eru oft
einu aðilamir sem viðskiptavinir matvörubúða
hafa samskipti við. Þessar niðurstöður ættu að
vera umhugsunarefni fyrir stjórnendur verslana
því það hlýtur að vera mikilvægt fyrir verslan-
irnar að hafa stöðugan og traustan mannafla
sem viðheldur tengslum við viðskiptavinina og
hefur góða vöruþekkingu.
Til að samanburður á starfshópum, eins og
gerður hefur verið í þessari rannsókn, verði
áreiðanlegur er mikilvægt að starfsheiti og
verksvið séu lýsandi þannig að starfsmenn séu
ekki í vafa um hvaða hópi þeir tilheyra. Aðeins
fjórar af 279 konum merktu ekki við starfssvið.
Þátttakendur gerðu engar athugasemdir um
flokkun starfa. Af þessu og niðurstöðum for-
könnunarinnar er dregin sú ályktun að flokkun
þátttakenda eftir starfssviðum hafi verið þeim
auðveld og hún gefi skýra mynd af störfum
kvennanna sem hægt sé að byggja samanburð
á. Við samanburð á starfshópum innan sömu
atvinnugreinar eins og hér var gerður næst
stjóm á truflandi þáttum svo sem þjóðfélags-
stöðu og menntun frekar en ef gerður er saman-
burður milli hópa úr ólíkum atvinnugreinum.
Norræni spumingalistinn um óþægindi frá
hreyfi- og stoðkerfi hefur verið notaður í fjöl-
mörgum rannsóknum og notagildi hans metið
(13.18). I rannsókn sem kennd er við Stokk-
hólm (19) var meðal annars lagt mat á norræna
spurningalistann. Algengi óþæginda frá hreyfi-
og stoðkerfi reyndist hærra í læknisviðtali bor-
ið saman við svör sömu einstaklinga við nor-
ræna spurningalistanum. Það bendir til að ekki
sé verið að ofmeta algengi óþæginda þegar nor-
ræni listinn er notaður sem mælitæki. Listinn
var talinn heppilegur til að gefa upplýsingar
um algengi óþæginda hjá rannsóknarhópum en
ekki mælt með honuin til skimunar.
Lokaorð
Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til
þess að eðli vinnunnar og lengd vinnutíma í
viku hverri við afgreiðslukassa hafi veruleg
áhrif á algengi álagseinkenna. Lagt er til að
vinnufyrirkomulagi við afgreiðslukassa verði
breytt þannig að starfsmenn hafi fjölbreytt
verkefni sem geri ólíkar kröfur bæði líkamlega
og andlega. Samtímis er þörf á að huga að
vinnuaðstöðu í verslunum þannig að starfs-
menn geti bæði setið og staðið í þægilegum
vinnustellingum með verkefnin innan þægi-
legrar seilingar og án þess að þurfa að lyfta
vörunum. Mikilvægt er að hönnuðir og versl-
unareigendur hugi að þessum málum í sam-
starfi við starfsmenn, því heilbrigt og ánægt
starfsfólk sem býr við góðar vinnuaðstæður
laðar að viðskiptavini og veitir góða þjónustu.
HEIMIDLIR
1. Margolis W, Kraus J. The Prevalence of Carpal Tunnel
Syndrome Symptoms in Female Supermarkets Checkers. J
Occup Med 1987; 29: 953-6.
2. Ryan A. The prevalence of musculoskeletal symptoms in
supermarket workers. Ergonomics 1989; 32: 359-71.
3. Harber P, Pena L, Bland G, Beck J. Upper Extremity Symp-
toms in Supermarket Workers. Am J Ind Med 1992; 22:
873-84.
4. Hinnen U, Laubli T, Guggenbiihl U, Krueger H. Design of
check-out systems including laser scanners for sitting work
posture. Scand J Work Environ Health 1992; 18: 186-94.
5. Harber P, Bloswick D, Beck J, Pena L, Baker D, Lee J.
Supermarket Checker Motions and Cumulative Trauma
Risk. J Occup Med 1993; 35: 805-11.
6. Nakata M, Brundin L, Marklund M, Jonsson B. Muskulo-
skeletala besvar bland snabbköpskassörer. Undersöknings-
rapport 1993:23. Solna: Arbetsmiljöinstitutet 1993.
7. Mackay C, Burton K, Boocock M, Tillotson M, Dickinson
C. Musculoskeletal Disorders in Supermarket Cashiers.
Norwich: HSE Books 1998.
8. Baron S, Habes D. Occupational musculoskeletal disorders
among supermarket cashiers. Scand J Work Environ Health
1992; 18: 127-9.
9. Ayoub MA. Ergonomic Deficiencies: I. Pain at Work. J
Occup Med 1990; 32: 52-7.
10. Steingrímsdóttir ÓA, Rafnsson V, Sveinsdóttir Þ, Ólafsson
M. Einkenni frá hreyfi- og stoðkerfi. Hóprannsókn á úrtaki
íslendinga I. Læknablaðið 1988; 74: 223-32.
11. Ólafsdóttir H, Steingrímsdóttir ÓA, Rafnsson V. Óþægindi
frá stoðkerfi meðal fiskvinnslufólks. Læknablaðið 1993;
79: 29-35.
12. Ólafsdóttir H, Rafnsson V. Increase in musculoskeletal
symptoms after introduction of the flow-line in fish-fillet
plants. Int J Ind Erg 1998; 21: 69-77.
13. Kuorinka I, Jonsson B, Kilbom A, Vinterberg H, Biering-
Sörensen F, Andersson G, et al. Standardised Nordic quest-
ionnaire for the analysis of musculoskeletal symptoms.
Appl Ergonomics 1987; 18: 233-7.
14. Harber P, Bloswick D, Pena L, Beck J, Lee J, Baker D. The
Ergonomic Challenge of Repetitive Motion with Varying
Ergonomic Stresses. J Occup Med 1992; 34: 518-28.
15. Sveinsdóttir Þ, Hauksson Ó, Arnason G. Vinnuvemdarátak
í matvöruverslunum. Reykjavík: Vinnueftirlit ríkisins 1997.
16. Silverstein B. Fine LJ, Armstrong TJ. Occupational Factors
and Carpal Tunnel Syndrome. Am J Ind Med 1987; 11:343-
58.
17. Lannerstein L, Harms-Ringdahl K. Neck and shoulder
activity during work with different cash register systems.
Ergonomics 1990; 33: 49-65.
18. Dickinson CE, Campion K, Foster AF, Newman SJ,
O’Rourke AMT, Thomas PG. Questionnaire development:
an examination of the Nordic Musculoskeletal Question-
naire. Appl Ergonomics 1992; 23: 197-201.
19. Hagberg M, Hogstedt C. Stockholmsundersökningen 1.
Utvárdering av metoder för att máta hálsa och exponeringar
i epidemiologiska studier av rörelseorganens sjukdomar.
Stockholm: Music Books 1993.