Læknablaðið - 15.03.1999, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
203
um og efri hluta baks meðal kvenna sem hafa
langan vinnudag við afgreiðslukassa gæti
tengst einhæfum, síendurteknum hreyfingum
sem starfið útheimtir. Mælt er með að starfs-
menn við afgreiðslukassa hafi fjölbreytt verk-
efni og vinnutíminn við afgreiðslukassann
verði styttur.
Inngangur
Erlendar rannsóknir hafa sýnt að óþægindi
frá vöðvum og liðum eru algeng meðal starfs-
fólks sem vinnur við afgreiðslukassa verslana
(1-7). Vinna við afgreiðslukassa einkennist oft
af einhæfum, endurteknum hreyfingum við að
handfjatla vörur, miklum hraða og einhæfum
vinnustellingum en þetta eru allt þekktir
áhættuþættir í þróun álagseinkenna. I nokkrum
rannsóknum hafa allir starfshópar verslana ver-
ið athugaðir og óþægindi þeirra borin saman.
Niðurstöður sýndu að óþægindi tengd herðum
og höndum voru tíðari meðal starfsfólks er
vann við afgreiðslukassa en annarra starfshópa
(2,8). Starfsmenn sem unnu eingöngu stand-
andi við afgreiðslukassana reyndust einnig
oftar hafa óþægindi frá mjóbaki og fótum (8,9).
Að frumkvæði atvinnusjúkdómadeildar
Vinnueftirlits ríkisins hefur nú verið gerð
könnun á óþægindum frá hreyfi- og stoðkerfi
meðal starfsmanna matvöruverslana hérlendis.
Er könnunin liður í vinnuvemdarátaki í mat-
vöruverslunum sem stofnunin hefur staðið að í
samstarfi við aðila vinnumarkaðarins. I könn-
uninni var notaður staðlaður norrænn spurn-
ingalisti sem hefur verið notaður áður í rann-
sóknum á óþægindum frá hreyfi- og stoðkerfi
meðal íslensku þjóðarinnar (10) og fisk-
vinnslufólks (11,12).
Tilgangur rannsóknarinnnar var að kanna
algengi óþæginda frá hreyfi- og stoðkerfi með-
al starfsfólks matvöruverslana og einkum hvort
óþægindin væru tíðari meðal þeirra sem vinna
við afgreiðslukassa en annarra.
Efniviður og aðferðir
Markhópurinn í rannsókninni voru allir
starfsmenn matvöruverslana í Reykjavík og á
Akureyri sem uppfylltu eftirfarandi skilyrði: a)
verslunin seldi eingöngu grunnvöru (matvöru
og smávöru), b) verslunin hafði þrjá af-
greiðslukassa eða fleiri og að minnsta kosti 10
starfsmenn. Búðir sem höfðu færri starfsmenn
voru einnig hafðar með ef starfið við af-
greiðslukassana var skipulagt þannig að ákveðn-
Tafla I. Upplýsingar um þátttakendur í rannsókninni.
Starfssvið Fjöldi (n) Meðal- Meðalaldur starfsaldur (ár) (ár) Meðalfjöldi vinnustunda á viku
Karlar: ÖII störf 86 28 5,3 45
Konur: Alager 58 41 7,5 29
í kjötdeild 34 40 5,5 35
Við afgreiðslu- kassa 81 25 2,8 27
Afgreiðsla yfír borð 25 34 4,2 30
Ymis störf 64 31 6,4 36
Stjómun 13 35 5,0 37
Svöruðu ekki starfssviði 4 43 13,7 30
Öll störf 279 33 5,3 32
ir starfsmenn unnu eingöngu við kassa. Tutt-
ugu og fimm verslanir uppfylltu framangreind
skilyrði.
Listar með nöfnum starfsmanna voru fengnir
hjá viðkomandi verslunarstjóra, starfsmanna-
stjóra og frá stéttarfélögum. í maí 1994 voru
sendir spumingalistar í pósti heim til 697 ein-
staklinga. Nokkuð var um að skrifstofu- og
ræstingafólk verslananna svaraði listanum og
var það tekið út úr rannsóknarhópnum. Einnig
voru starfsmenn, sem hætt höfðu störfum fyrir
meira en mánuði þegar þeir svöruðu listanum,
teknir úr hópnum. I markhópnum voru því 653
einstaklingar, 448 konur og 205 karlar. Itrekun-
arbréf voru send þrisvar til þeirra sem ekki
svöruðu listanum. Alls svöruðu 365 manns eða
55,9% þátttakenda (tafla I). Fleiri konur en
karlar svöruðu eða 279 konur sem jafngildir
62,3% svörun kvenna og 86 karlar eða 42%.
Þar sem svörun var lítil þrátt fyrir ítrekanir
var ákveðið að gera símakönnun meðal þeirra
sem ekki svöruðu. Hringt var í slembiúrtak
þeirra sem ekki höfðu svarað og ef ekki var
hægt að finna viðkomandi eftir leit í þjóðskrá
eða viðkomandi var hættur í starfi var hringt í
næsta mann. Alls var talað við 27 manns. A
þennan hátt fengust upplýsingar frá 17 konum
eða rúmum 10% þeirra sem ekki svöruðu bréf-
lega og frá 10 körlum eða tæpum 10%. Gerður
var samanburður milli þeirra sem svöruðu bréf-
lega og hinna sem náðist í símleiðis. Reyndust
hóparnir mjög svipaðir með tilliti til aldurs,
kyns og búsetu og hversu tíð óþægindi þeirra
voru. Því er ályktað að algengi óþæginda frá
hreyfi- og stoðkerfi meðal þátttakenda endur-
spegli markhópinn.