Læknablaðið - 15.03.1999, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
219
Mynd 3. Opinn kviðslitssekkur (aðgerð). Kviðslitssekkurinn inni-
heldur gallstein (til hœgri) og kalkað fitudrep (til vinstri).
Sekkurinn innihélt um 1 sm stóran stein, að
útliti dæmigerður fyrir gallstein.
Mánuði eftir gallkögunina kom sjúklingur til
aðgerðar á kviðslitinu. I aðgerð kom í Ijós
þykknaður kviðslitssekkur, sem innihélt fitu,
brúnleitan vökva og tvo steinalíka hluti, um 'A-1
sm í þvermál (mynd 2).
Vefjagreining sýndi kviðslitsvef með ósér-
hæfðri bólgu. Innihald sekksins reyndist annars
vegar vera kalkað fitudrep ásamt storknuðu
blóði og hins vegar gallsteinn (mynd 3).
Umræða
Gallkögun er kjöraðgerð til að nema á brott
gallblöðru vegna gallsteina. Sýnt hefur verið
fram á yfirburði gallkögunar í samanburði við
opna gallblöðrutöku hvað varðar legutíma, verki
eftir aðgerð og svo framvegis. Þó eru ákveðnir
fylgikvillar algengari við gallkögun en við
opna aðgerð. Rof á gailblöðru með leka á galli
Mynd 4. Gallsteinn (smásjárskoðun). Pverskurður af gallstein-
inum.
og steinum út í kviðarhol er lýst í 10-30% gall-
kagana (1,2). Fylgikvillar vegna steina sem
verða eftir í kviðarholi eru sjaldgæfir en geta
verið alvarlegir og má þar nefna ígerðir og fist-
ilmyndanir. Gallsteini í kviðslitssekk eftir gall-
kögun hefur verið lýst erlendis (3) en ekki hér-
lendis.
Algengast er að gallblaðran skaðist þegar
gripið er í hana með töngum eða þegar hún er
losuð frá lifrarbeðnum og á þetta sérstaklega
við ef gallblaðran er bólgin. Einnig getur gall-
blaðran rifnað þegar hún er dregin út í gegnum
kviðvegginn. Ef gat kemur á gallblöðru er mælt
með því að opinu sé lokað með saumi eða heft-
um til að forðast leka úr gallblöðru. Þegar gall-
blaðran er laus er mælt með því að bólgin eða
rofin gallblaðra sé sett í poka og henni fylgt
eftir með kviðsjá þegar hún er tekin út gegnum
kviðvegg. Einnig gæti þurft að stækka skurð
eða soga innihald úr gallblöðrunni ef hún er
þanin eða ef steinamir eru stórir.
Ef rof kemur á gallblöðru í aðgerð og steinar
fara út í kviðarhol á að reyna að ná sem flestum
þeirra og tína upp í poka. Ekki er mælt með að
gallkögun sé breytt yfir í opna gallblöðrutöku
vegna rofs á gallblöðru.
HEIMILDIR
1. Lauffer JM, Krahenbiihl L, Baer HU, Mettler M, Biichier
MW. Clinical manifestations of lost gallstones after laparo-
scopic cholecystectomy: a case report with review of the
literature. Surg Laparosc Endosc 1997; 7: 103-10.
2. Targarona EM, Balagué C, Cifuentes A, Martínez J, Trías
M. The spilled stone. A potential danger after laparoscopic
cholecystectomy. Surg Endosc 1995; 9: 768-73.
3. Rosin D, Korianski Y, Yudich A, Ayalon A. Lost gallstones
found in ahemial sac. J Laparoendosc Surg 1995; 5:409-10.