Læknablaðið - 15.03.1999, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
229
dómsmálum geta lagaákvæði staðið í vegi fyrir
því. Einnig getur þurft að beita sérstökum lög-
bundnum aðferðum við að afla slíkra gagna eða
að lagaákvæði mæli fyrir um hvernig með þau
verði farið. Loks getur skortur á lagaákvæðum
leitt til ýmissa vandamála fyrir þá sem vilja
byggja rétt sinn á gögnum þar sem fram koma
trúnaðarupplýsingar.
1. Lagaákvæði sem geta komið í veg fyrir
að gagna verði aflað
Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. læknalaga ber
lækni að gæta fyllstu þagmælsku og hindra að
óviðkomandi fái upplýsingar um sjúkdóma og
önnur einkamál er hann kann að komast að sem
læknir. I 2. mgr. sömu lagagreinar segir þó að
þetta gildi ekki ef lög bjóði annað eða rökstudd
ástæða sé til að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnn-
ar nauðsynjar. Samþykki sjúklings sem orðinn
er 16 ára leysir lækni undan þagnarskyldu en ella
samþykki forráðamanns, sbr. 3. mgr. lagagrein-
arinnar. Þá ber lækni samkvæmt 4. gr. reglna um
gerð og útgáfu læknisvottorða nr. 586/1991 að
gæta þess sérstaklega að óviðkomandi aðilum sé
ekki látið í té læknisvottorð nema fyrir liggi
samþykki sjúklings, foreldris eða forráðamanns
eða annars umboðsmanns hans.
I 12. gr. laga um réttindi sjúklinga segir að
starfsmaður í heilbrigðisþjónustu skuli gæta
fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kom-
ist að í starfi sínu um heilsufar sjúklings,
ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð
ásamt öðrum persónulegum upplýsingum.
Þagnarskyldan helst þó að sjúklingur andist og
þó að starfsmaður láti af störfum. Mæli ríkar
ástæður með því getur starfsmaður látið í té
upplýsingar með hliðsjón af vilja hins látna og
hagsmunum hlutaðeigandi. Sé starfsmaður í
vafa getur hann borið málið undir landlækni.
Undanþágur frá þagnarskyldunni eru í 13. gr.
laganna en þar segir meðal annars að samþykki
sjúklings eða forráðamanns leysi starfsmann
undan þagnarskyldu.
Samkvæmt réttarfarslögum er almenna regl-
an sú að öllum er skylt að koma fyrir dóm sem
vitni til að svara munnlega spumingum um
málsatvik. Því er hugsanlegt að læknir verði
kallaður fyrir dóm sem vitni. Embættislækni er
þó ekki skylt að koma fyrir dóm til að vitna um
atvik sem hafa gerst í embætti hans og leiða má
nægjanlega í ljós með vottorði úr embættisbók
eða öðru opinberu skjali. I þeim tilfellum nægir
að leggja fram læknisvottorð. En ef upplýsing-
ar sem þar koma fram eru ekki nægjanlegar eða
ef þær eru vefengdar verður læknir væntanlega
að koma fyrir dóminn sem vitni.
Vitni er óheimilt samkvæmt 2. mgr. b liðar
53. gr. laga um meðferð einkamála án leyfis
þess sem í hlut á að svara spurningum um
einkahagi manns sem vitninu hefur verið trúað
fyrir eða það hefur komist að á annan hátt í
starfi sem læknir. Sama regla gildir um aðrar
starfsstéttir sem taldar eru upp í lagaákvæðinu,
þar á meðal presta og lögfræðinga (12). Dóm-
ari getur þó lagt fyrir vitni að svara spurningu
þótt leyfi sé ekki veitt til þess, ef hann telur
hagsmuni aðila verulega meiri af því að upp-
lýst verði um atriði sem hér um ræðir en hags-
muni hlutaðeiganda af því að leynd verði hald-
ið, enda feli þá svarið ekki í sér frásögn af
einkahögum manns sem á ekki aðild að máli
(13). Þá segir í 4. mgr. 15. gr. læknalaga að
læknir verði ekki leiddur sem vitni í einkamál-
um gegn vilja sjúklings nema ætla megi að úr-
slit málsins velti á vitnisburði hans eða málið
sé mikilvægt fyrir málsaðila eða þjóðfélagið,
hvort tveggja að mati dómara. í slíkum tilvik-
um ber lækni að skýra frá öllu sem hann veit og
telur að hugsanlega geti haft áhrif á málið.
Samkvæmt 1. mgr. b liðar 55. gr. laga um
meðferð opinberra mála er læknum óheimilt að
svara spumingum fyrir dómi án leyfis þess sem
í hlut á þegar um er að ræða atriði sem varða
einkahagi manna og þeim hefur verið trúað
fyrir í starfa sínum, nema um afbrot sé að ræða
sem varði minnst tveggja ára fangelsi. Og í 2.
málsgrein sömu lagagreinar segir að ef vitnis-
burður er talinn nauðsynlegur sakborningi til
varnar geti dómari ákveðið vitnaleiðslu með
úrskurði.
Lagaákvæði um þagnarskyldu geta þannig
komið í veg fyrir að dómari fái upplýsingar
sem nauðsynlegar eru til þess að réttur dómur
verði lagður á málið. I ákveðnum tilvikum met-
ur dómarinn þó hagsmunina, sem í húfi eru, í
samræmi við lagafyrirmæli og getur hann þá,
ef skilyrði samkvæmt þeim eru fyrir hendi, lagt
fyrir vitni að svara spumingum sem ekki væri
annars heimilt að svara.
IIV. kafla laga um réttindi sjúklinga er fjall-
að um meðferð upplýsinga í sjúkraskrá. Sam-
kvæmt 14. gr. laganna skal varðveita sjúkra-
skrá á heilbrigðisstofnun þar sem hún er færð
eða hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni
sem hana færir á eigin starfsstofu. Lækni er
skylt samkvæmt sömu lagagrein að sýna sjúk-