Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1999, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 15.03.1999, Blaðsíða 12
204 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Tafla II. Algengi óþœginda (%) frá hreyfi- og stoðkerfi síðast- liðna 12 mánuði meðal kvenna (n=279) og karla (n=86) er tóku þátt í rannsókninni. Líkamssvæði Konur Karlar Háls 67 42 Herðar 77 44 Olnbogar 13 6 Úlnliðir 27 14 Efra bak 38 21 Mjóbak 68 66 Mjaðmir 26 17 Hné 30 33 Ökklar 19 16 Dofi 22 10 Við rannsóknina var notaður norrænn spurn- ingalisti (13) um óþægindi frá hreyfi- og stoð- kerfi, almenni hlutinn, en í honum er spurt um óþægindi (sársauka, verki, ónot) síðastliðna 12 mánuði og síðastliðna sjö daga frá níu líkams- svæðum. Að auki var spurt um dofa í höndum/ fingrum. Spurt var hvort óþægindin hefðu hindrað viðkomandi í að stunda dagleg störf undangengið ár. Bætt var við spurningum um lengd tjarvista frá vinnu vegna framangreindra óþæginda og hvort viðkomandi hafi leitað meðferðar vegna þeirra. Auk þessa var spurt um vinnuaðstæður, vinnuskipulag og vinnu- álag. Spurt var um starfssvið svarenda og gefnir sex valkostir (tafla I). Flokkun í starfssvið og nákvæm lýsing þeirra var gerð í samvinnu við samráðsnefnd sem í sátu fulltrúar verslunareig- enda og stéttarfélaga verslunarfólks og var lögð áhersla á að starfssviðin væru lýsandi fyrir þau störf sem unnin eru í matvöruverslunum. Til að tryggja að þátttakendur skildu spurn- ingar og ættu auðvelt með að finna réttan val- möguleika í svari var gerð forkönnun meðal 11 starfsmanna í matvöruverslun sem var lík versl- ununum í rannsókninni að því undanskildu að þar var, auk matvöru, einnig seld ýmiss konar sérvara. I kjölfar forkönnunar var bætt við einu starfssviði, tveimur efnisatriðum og gerðar tjórar breytingar varðandi uppsetningu og orð- alag. Kom hér að góðum notum þekking ofan- nefndrar samráðsnefndar á vinnuaðstæðum. Þar sem svörun karla var mjög lítil og þeir fáir var algengi óþæginda einungis athugað hjá þeim í heild og ekki gerður samanburður milli starfssviða karla (tafla 11). Leyfi Tölvunefndar var fengið til að vinna efnivið rannsóknarinnar í tölvu. Þar sem rann- sóknin var ekki gerð í tengslum við heilbrigðis- stofnun var ekki hægt að leita álits ákveðinnar vísindasiðanefndar, en Tölvunefnd aflar slíks álits ef henni sýnist þörf á. Algengi óþæginda kvenna sem unnu ein- göngu við afgreiðslukassa var borið saman við algengi óþæginda kvenna í öðrum störfum. Sérstakri athygli var beint að konum sem unnu 20 klukkustundir á viku eða lengur við af- greiðslukassa. Gerður var hlutfallslegur sam- anburður og reiknað áhættuhlutfall (odds ratio, OR) og 95% öryggismörk (confidence interval, CI). Beitt var reikniaðferðum sem taka tillit til að hóparnir eru fámennir og að einkennin eru ekki normaldreifð. Við samanburð var notuð Mantel-Haenszel jafna og var lagskipt annars vegar eftir lífaldri og hins vegar eftir starfs- aldri. Við lagskiptingu eftir aldri var konunum skipt í fjóra aldurshópa, það er 15-24 ára, 25- 34 ára, 35-44 ára og 45 ára og eldri. Við lag- skiptingu eftir starfsaldri var konunum einnig skipt í fjóra hópa, það er konur sem höfðu unn- ið í 12 mánuði eða skemur, þær sem höfðu unn- ið 13-36 mánuði, þær sem höfðu unnið í 37-60 mánuði og þær sem höfðu unnið í 60 mánuði eða lengur. Niðurstöður Af öllum konum í rannsókninni höfðu 93% fundið til einhverra óþæginda frá hreyfi- og stoðkerfi undangengið ár og voru óþægindi tíðust í herðum, mjóbaki og hálsi (tafla II). Af þeim sem höfðu haft óþægindi höfðu 39% leit- að aðstoðar í heilbrigðiskerfinu þeirra vegna. Af þeim sem höfðu verið frá vinnu vegna óþæg- indanna sögðust 26% hafa verið fjarverandi einn til sjö daga, 7% fjarverandi í 8-30 daga og 1% lengur en 30 daga. Óþægindi frá mjóbaki (18%), hálsi (10%) og herðum (10%) komu oftast í veg fyrir að konurnar gætu stundað dag- leg störf síðastliðna 12 mánuði. Konur sem unnu í kjötdeild, á lager og við afgreiðslukassa höfðu oftast óþægindi. Ekki reyndist vera marktækur munur á al- gengi óþæginda meðal kvenna sem unnu við afgreiðslukassa og kvenna í öðrum störfum þegar allur hópurinn var skoðaður að því und- anskildu að konur við afgreiðslukassa voru síð- ur með óþægindi frá mjöðmum. Óþægindi reyndust hins vegar mun tíðari frá hálsi, herðum og efri hluta baks meðal kvenna sem unnu við afgreiðslukassa 20 klukkustundir eða lengur á viku en meðal annarra kvenna í verslunum. Níu af hverjum 10 þeirra höfðu haft
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.