Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1999, Page 26

Læknablaðið - 15.03.1999, Page 26
214 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Tilfelli 4. Átján ára gamall karlmaður veikt- ist með hita og slappleika fimm dögum fyrir innlögn. Degi síðar fann hann fyrir verkjum í uppmagálssvæði sem versnuðu við mat. Dag- inn fyrir innlögn tók hann eftir sári í munnviki og rauðum bletti á brjósti með brunatilfinn- ingu. Fæðu- og vökvaneysla var erfið í tvo daga fyrir innlögn þrátt fyrir lansóprasól. Saga var um náin líkamleg kynni 10 dögum áður. Hiti var 37,9°C, sár var í hægra munnviki og vægur roði í afturvegg koks. Aumur eitill þreif- aðist á hálsi. Miðlægt við hægri geirvörtu var rautt sár, þakið hrúðri að mestu leyti. Speglun sýndi grunn sár og bjúg í neðsta hluta vélinda. Smásjárskoðun vélindasýna sýndi bráða bólgu, margkjama risafrumur og Cowdry innlyksur af gerð A í þekju (mynd 1). Ónæmisvefjalitun með mótefnum gegn herpes simplex veiru var jákvæð. Herpes simplex veira-1 óx aðeins úr sári á brjósti. Herpes simplex veiru IgM mót- efni voru jákvæð í sermi við innlögn en ekki IgG. Sautján dögum síðar var IgM hækkandi í sermi og IgG einnig jákvætt. Mótefni gegn HIV mældust ekki. Meðferð fólst í vökvagjöf og acíklóvír 750 mg x 3 á dag í æð. Einkenni löguðust hratt og var sjúklingur útskrifaður tveimur dögum eftir innlögn á valacíklóvír töflum 500 mg x 2 í 5 daga. Niðurstöður könnunar ritaðs máls og íslenskra sjúkratilfella Við fundum 12 sjúkratilfelli í rituðu máli sem fullnægðu að minnsta kosti þremur af fjórum skilmerkjum okkar til greiningar á herpes simplex vélindabólgu í einstaklingum sem eru ekki ónæmisbældir. Tafla I sýnir yfirlit yfir okkar tilfelli (nr. 1-4) og hin tilfellin 12 (nr. 5- 16) sem lýst hafði verið áður (5-11). Skýrt var frá þeim í greinum á árabilinu 1977 til 1987 og voru tvö frá Kanada (5,9) og 10 frá Bandaríkj- um Norður-Ameríku (6-8,10,11). Okkar sjúk- lingar voru allir íslenskir og var herpes simplex vélindabólga talin ákveðin hjá sjúklingum eitt og fjögur en líkleg hjá tilfellum tvö og þrjú. Allir einstaklingarnir 16 höfðu verið hraustir fyrir greiningu og ekki var saga um meltingar- sjúkdóm eða svipuð einkenni áður. Sjúklingar númer 2 og 4 höfðu sögu um nýleg skyndi- kynni. Sjúklingar númer 6 og 15 höfðu sögu um maka með nýlegar frunsur. Allir voru hvítir á hörund, 14 karlmenn og tvær konur. Aldurs- bilið var 18 til 50 ár (meðaltal 26 ár). Meðal- aldur okkar tilfella var 20,8 ár. Einkenni voru Fig. 1. HE stain of esophageal biopsy from patient 4. There is marked infiltration of segmented neutrophils among epithelial cells some ofwhich are multinucleated and contain Cowdry type A intranuclear inclusions. allt frá því að vera væg yfir í mjög slæm. Fjórir sjúklinganna höfðu fyrirboðaeinkenni eins og hita (fjórir), hálsbólgu (þrír) og tveir voru með vöðvaverki. Algengasta einkennið var verkur við kyngingu (11 af 16), þrír fundu fyrir erfið- leikum við kyngingu (dysphagia), einum fannst aðskotahlutur vera undir bringubeini, tveir höfðu verki í ofanverðum kvið og einn undir bringubeini. Sjúklingur númer eitt hafði ein- kenni sem vöktu grun um hjartasjúkdóm. Sjúk- lingur númer tvö hafði verki undir hægra rifja- barði og var grunaður um gallblöðrubólgu. Tímalengd einkenna fyrir greiningu var allt frá innan við sólarhring og upp í 20 daga. Hita var lýst hjá átta sjúklingum ýmist sem fyrirboða- einkenni og/eða við skoðun. Sex einstakling- anna höfðu mein í húð og/ eða slímhúð, fjórir í munni, einn á höndum og fótum og einn á brjóstkassa. Speglun var framkvæmd hjá öllum. Algeng- ast var að greina sár, venjulega í neðsta hluta vélinda (13 af 16 sjúklingum), en tveir sjúkling- ar höfðu sár í miðhluta vélindans og einn eftir endilöngu líffærinu. Oftast var sárum lýst sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.