Læknablaðið - 15.03.1999, Qupperneq 33
SCHERING
Schering, 940261
eloclen
20 pg etínýlöstradíól/75 |ig gestoden
Thorarensen LYF
Vatnagarðar 18 • 104 Rcykjavík • Sími 530 7100
Öruggur og þægilegur valkostur
með lágu hormónainnihaldi
(einungis 20 |ig etínýlöstradíól og 75 |ig gestoden)
sem þolist vel
Meloden er hinn fullkomni félagi
fyrir þær sem eru að byrja að nota getnaðarvarnatöflur
TÖFLUR: G03AA10. Hver tafla inniheldur: Ethinylestradiolum INN 20
míkróg, Gestodenum INN 75 míkróg.
Ábendingar: Getnaðarvöm.
Frábendingar: Þungun, alvarleg röskun á starfsemi lifrarinnar, gula eða þrá-
látur kláði við fyrri þungun, Dubin-Johnson heilkenni, Rotor heilkenni, æxli í
lifur eða saga um æxli í lifur, segarek, saga um segarek eða aðstæður sem
valda hættu á því, t.d. truflun á blóðstorkuþáttum, hjartalokusjúkdómar og
gáttatitringur, sigðfmmublóðleysi, þekkt æxli eða saga um æxli sem kyn-
hormónar geta haft áhrif á, t.d. krabbamein í brjósti eða legslímhúð, alvarleg
sykursýki með æðabreytingum, tmflanir á fituefnaskiptum, saga um herpes,
„herpes gestationis“ er ákveðinn húðsjúkdómur, sem getur komið upp á
meðgöngu og lýsir sér m.a. með blöðmm á húð, brengluðum lifrarprófum o.fl.,
versnandi kölkun í miðeyra á meðgöngutíma, blæðingar úr leggöngum af
óþekktri orsök, ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna Meloden.
Aukaverkanir: Sjaldgæfar em höfuðverkur, magakveisa, ógleði, eymsli í
brjóstum, breytingar á líkamsþyngd, breytingar á kynhvöt, þunglyndi getur
komið fyrir. Hjá konum sem hafa tilhneigingu til þess, getur notkun lyfsins
stundum valdið litarbreytingum í andliti (chloasma), sem aukast við sólskin.
Þær konur ættu að forðast að vera lengi í sólskini. Greint hefur verið frá ein-
staka tilvikum af óþoli gagnvart augnlinsum við notkun getnaðarvamataflna.
Þær konur sem nota linsur og verða fyrir breyttu þoli gagnvart þeim ættu að
fara í skoðun til augnlæknis.
Varúð: Ástæður til að hætta notkun Meloden strax: Mígrenihöfuðverkur í
fyrsta sinn, versnun á mígreni eða aukin tíðni óvenjulega mikils höfuðverkjar,
skyndileg truflun á sjón eða heyrn eða aðrar skyntmflanir, fyrstu merki um
æðasegabólgu eða segarek (t.d. óvenjulegir verkir eða þroti í fótum, stingandi
verkur samfara öndun eða hósti án nokkurrar augljósrar ástæðu), verkur og
þrengsli fyrir brjósti, sex vikum fyrir fyrirhugaða skurðaðgerð og meðan á
rúmlegu stendur, t.d. eftir slys, skurðaðgerð, gula, lifrarbólga, kláði um allan
líkamann, aukin flogaveikisköst, marktæk hækkun blóðþrýstings, alvarlegt
þunglyndi, alvarlegir verkir í efri hluta kviðarhols eða stækkun lifrar, þungun.
Við eftirfarandi aðstæður skal ekki nota getnaðarvarnatöflur nema undir
ströngu eftirliti læknis. Versni einhverjar þessara aðstæðna, getur verið ástæða
til þess að hætta notkun getnaðarvarnalyfsins: sykursýki eða skert sykurþol,
háþrýstingur, æðahnútar, saga um bláæðabólgu, kölkun í miðeyra, MS-sjúk-
dómur (multiple sclerosis), flogaveiki, porfýría, kalkstjarfi (tetany),
Sydenham's chorea, skert nýmastarfsemi, saga um tmflun á blóðstorknun,
offita, saga um brjóstakrabbamein í fjölskyldunni og saga um hnúta í brjóst-
um, saga um þunglyndi, rauðir úlfar (systemic lupus erythematosus), vöðva-
hnútar í legi (uterine myoma) og mígreni.
Að því sem best er vitað er ekki hægt að útiloka samband milli notkunar
hormóna til getnaðarvama og aukinnar hættu á sjúkdómum er stafa af segareki
í slagæðum og bláæðum, svo sem kransæðastífla, blóðtappi í lungum, æða-
segabólga, slag eða segamyndun í sjónhimnu. Læknir skal vera á verði fyrir
fyrstu merkjum um slíka sjúkdóma. Vakni gmnur um einhvem þeirra, skal
strax hætta að nota Meloden. Hætta á segastíflu í slagæðum (t.d. slagi eða
kransæðastíflu) virðist aukast enn þegar miklar reykingar, hækkandi aldur og
notkun getnaðarvamataflna fer saman. Vegna þessa skal ráðleggja konum, sem
em eldri en 35 ára og nota getnaðarvamatöflur eindregið frá því að reykja. Auk
þess geta tilteknir sjúkdómar, svo sem of hár blóðþrýstingur, of há blóðFita,
ofFita og sykursýki aukið áhættuna hjá konum sem nota getnaðarvarnatöflur.
Meta skal hvort æskilegt sé að nota lyFið þegar um þessa sjúkdóma er að ræða
með tilliti til áhættunnar sem sjúkdómurinn veldur og ræða það við konuna
áður en hún ákveður að nota lyFið. Lýst hefur verið breytingum á þéttni
þríglýseríða, kólesteróls og lípóprótína í blóði samfara notkun getnaðar-
varnataflna. Getnaðarvamatöflur geta einnig valdið skertu sykurþoli. Lýst
hefur verið hækkuðum blóðþrýsting hjá konum sem nota getnaðarvamatöflur.
Blóðþrýstingurinn fer venjulega aftur í eðlilegt horf eftir að hætt er að nota
lyFið. Sumar konur geta orðið fyrir tíðateppu eða óreglulegum blæðingum
þegar þær hætta notkun getnaðarvamataflna, einkum þegar um slíkt var að
ræða áður en notkun þeirra hófst. Greina skal konum frá þeim möguleika. í
sjaldgæfum tilvikum hefur orðið vart við góðkynja og enn sjaldnar illkynja
lifraræxli sem geta leitt til einstakra tilvika af lífshættulegum innvortis
blæðingum eftir notkun hormóna á borð við þá sem em í lyFinu. Verði vart við
alvarlega verki í efri hluta kviðarhols, merki um stækkun á lifur eða blæðingar
í kviðarholi, skal hafa möguleika á lifraræxli í huga við sjúkdómsgreiningu.
Við fyrri rannsóknir var greint frá aukinni hættu á sjúkdómum í gallblöðru
sem vom staðfestir við uppskurð, hjá þeim konum sem notuðu estrógen og
getnaðarvarnatöflur. Síðari rannsóknir hafa hins vegar leitt í ljós að hættan á
sjúkdómum í gallblöðm sé hverfandi lítil.
Milliverkanir: Efnasambönd sem hvetja lifrarensím svo sem barbítúröt,
prímídón, hýdantóín, fenýlbútasón, rífampisín, karbamazepín og griseófúlvín
geta dregið úr verkun Meloden.
Skammtastœrðir: Fyrsta taflan úr Meloden pakkningunni skal tekin fyrsta dag
tíðahringsins. 1 tafla á dag næstu 21 daga en síðan er 7 daga hlé.
Pakkningar og verð: 21 stk. x 3; 2.235 kr. Nánari upplýsingar í texti Sérlyfjaskrár.
Handhafi markaðsleyfis: Schering AG.
Umboðsmaður á íslandi: Thorarensen Lyf ehf uis 98-58-Sept.98