Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1999, Side 35

Læknablaðið - 15.03.1999, Side 35
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 221 hlítandi hátt úr viðfangsefninu. í öðrum tilfell- um getur komið upp hagsmunaárekstur, til dæmis þannig að tiltekið lagaákvæði samrýmist ekki öðru eða öðrum lagaákvæðum sem einnig geta átt við um tilvikið sem um ræðir. Hér á eftir verður fjallað um lögfræðileg álitaefni og lagareglur sem eiga við um læknis- fræðileg gögn sem aflað er vegna reksturs dómsmála. Reynt verður að svara ýmsum spurn- ingum sem varða efnið. Einnig er ætlunin að vekja athygli á lagalegum vandamálum varð- andi öflun og notkun læknisfræðilegra gagna við meðferð dómsmála svo og hvernig dóm- stólar hafa tekið á álitaefnum sem hafa vaknað í því sambandi. Reifuð verða helstu sjónarmið sem hafa þýðingu í þessum efnum og vísað verður til dóma þar sem reynt hefur á nokkur þessara álitamála. Erfiðara er að fást við vanda- mál í tilfellum þar sem engar lagareglur eru fyrir hendi og dómstólar hafa ekki enn fjallað um. Samkvæmt réttarfarslögum verða dómstólar ekki krafðir álits um lögfræðileg efni nema að því leyti sem slíkt er nauðsynlegt til úrlausnar ákveðinni kröfu í dómsmáli. Af þessu leiðir að mörgum spumingum, sem lög veita ekki nægjanlega skýr svör við varðandi læknisfræðileg sönnunargögn, er enn ósvarað. II. Sönnunarfærsla Dómsmál eru rekin annað hvort sem opinber mál eða sem einkamál. Opinber mál höfða handhafar ríkisvaldsins til refsingar lögum samkvæmt. Þau eru því einnig nefnd sakamál. Um rekstur þeirra og rannsóknir brotamála fer samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Einkamál eru mál sem einstakling- ar, félög eða stofnanir höfða á hendur öðrum einstaklingum, félögum eða stofnunum í þeim tilgangi að fá skorið úr deilu um réttindi og skyldur. Rekstur einkamála fer eftir lögum um meðferð einkamála nr. 91/1991. í sakamálum þarf ákæruvaldið að leggja fram fullnægjandi sönnunargögn fyrir því að sá sem ákærður er sé sekur um það afbrot sem hann er ákærður fyrir. í einkamálum þarf hvor málsaðili að leggja fram fullnægjandi sönnunargögn fyrir þeim staðhæfingum sínum sem hann byggir kröfur sínar í málinu á. Sönnunargögn í dómsmálum geta verið bæði munnleg og skrifleg. Þannig getur vitnisburður læknis fyrir dómi verið hluti af sönnunarfærslu í málinu og talist til læknisfræðilegra gagna. Önnur læknisfræðileg gögn geta til dæmis ver- ið læknisvottorð, greinargerðir, umsagnir, sér- fræðilegar álitsgerðir, matsgerðir og niðurstöð- ur sérfræðilegra rannsókna. 1. Hvenær eru Iæknisfræðileg gögn notuð í dómsmálum? Því má svara þannig að afla þurfi læknis- fræðilegra gagna í dómsmáli þegar þau skipta máli fyrir úrlausn þess. I ákveðnum tegundum mála er algengt að úrlausnir þeirra byggist á læknisfræðilegum gögnum. Þau helstu eru eftirfarandi: l.a. Skaðabótamál vegna líkams- eða heilsu- tjóns Samkvæmt 1. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 skal sá sem ber bótaábyrgð á líkamstjóni greiða skaðabætur fyrir atvinnutjón, sjúkrakostnað og annað fjártjón sem af því hlýst og enn fremur þjáningabætur. Ef líkamstjón hefur varanlegar afleiðingar fyrir viðkomandi einstakling ber einnig að greiða bætur fyrir miska og örorku en örorka er varanlegur missir eða skerðing á getu til að afla vinnutekna. I 4. gr. laganna segir að við ákvörðun bóta fyrir varanlegan miska skuli litið til þess hvers eðlis og hversu miklar af- leiðingar tjóns eru frá læknisfræðilegu sjónar- miði, svo og til erfiðleika sem það veldur í lífi tjónþola. Varanlegur miski er metinn í stigum, sem tilgreind eru í hundraðshlutum, en miska- bætur eru reiknaðar út frá þeim. Örorkunefnd semur töflur um miskastig, sbr. 3. mgr. 10. gr. skaðabótalaga. Til þess að unnt sé að ákveða fjárhæð skaðabóta vegna varanlegrar örorku þarf að liggja fyrir hver örorkan er en hún er reiknuð í örorkustigum, sem eru eins og miska- stig, tilgreind í hundraðshlutum, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna. Samkvæmt 10. gr. skaðabótalaga er gert ráð fyrir því að bæði tjónþoli og sá sem ber ábyrgð á tjóni geti hvor um sig óskað ákvörðunar um miskastig og örorkustig hjá örorkunefnd (1). I örorkunefnd eiga sæti tveir læknar og einn lög- fræðingur. Varanleg örorka er þó í sumum til- fellum ákveðin þannig að fram fer örorkumat hjá lækni (2). Alit örorkunefndar og örorkumat eru í þessum tilfellum mikilvæg læknisfræðileg gögn. Læknisfræðileg gögn eru oftast mikilvæg í málum þar sem krafist er bóta fyrir líkams- eða heilsutjón vegna læknamistaka. I því sambandi er rétt að hafa í huga að skortur á gögnum getur leitt til þess að læknir, eða sá sem ábyrgð ber á tjóninu, verði látinn bera halla af sönnunar-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.