Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1999, Page 51

Læknablaðið - 15.03.1999, Page 51
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 235 þeim að veita meðferð, svo sem í réttargeð- læknisfræði, að skýra eðli þess nákvæmlega fyrir þeim sem í hlut á (15). 3. Forsendur Matsgerð eða sérfræðileg álitsgerð er byggð á ákveðnum forsendum. Þessar forsendur eiga að koma fram í matsgerð eða álitsgerð og þær þarf að setja fram með skýrum hætti. Sérfræðingar sem standa að matsgerð eða sérfræðilegri álitsgerð byggja hana á athugun- um, skoðun eða jafnvel rannsóknum sem þeir gera sjálfir eða gerðar eru af öðrum sérfræðing- um. Læknar skoða meiðsl þegar meta þarf af- leiðingar líkams- eða heilsutjóns, þeir fara yfír gögn sem þegar liggja fyrir og þeir gæta þess að fram fari fullnægjandi rannsókn á öllu því sem máli skiptir fyrir matið eða álitsgerðina. Þessu þarf að gera skil í matsgerð eða sérfræði- legri álitsgerð svo og öðrum atriðum sem skipta máli og hafa haft áhrif á matið eða álits- gerðina. Með því er ljóst á hvaða forsendum þessi læknisfræðilegu gögn eru byggð. Mikilvægt er að matsgerð eða læknisfræði- leg álitsgerð sé byggð á traustum grunni. Stundum eru atriði þó óljós. hugsanlega vantar upplýsingar eða vafinn snýst um atriði sem ekki er fullvissa fyrir. Algengt er að ekki er vit- að hver framvinda verður um ástand þess sem orðið hefur fyrir líkams- eða heilsutjóni (16). Slíkir fyrirvarar skipta máli og nauðsynlegt er að fram komi í hinum læknisfræðilegu gögnum hverjir fyrirvararnir eru, að hvaða leyti þeir skipta máli og hvemig þeir hafa haft áhrif á matið eða álitsgerðina. Verði það ekki gert eru forsendur mats eða álitsgerðar óljósar. 4. Rökstuðningur Læknisfræðileg gögn verða venjulega til hjá læknum. Tilefnið getur verið að óskað er upp- lýsinga um ákveðin atriði sem þegar liggja fyr- ir upplýsingar um, til dæmis í sjúkraskrá. Þann- ig er í mörgum tilfellum aðeins óskað upplýs- inga um staðreyndir. I öðrum tilfellum er óskað eftir því að gerð verði rannsókn, sem fram fer í tilefni af því, sem leiðir þá oftast til ákveðinnar niðurstöðu. Loks getur verið um að ræða beiðni um sérfræðilega álitsgerð eða mat, til dæmis á örorku. Rannsóknir, sérfræðilegar álitsgerðir og mats- gerðir eiga að vera studdar fullnægjandi rök- um. Aður hefur komið fram að niðurstöður læknaráðs eiga að vera rökstuddar, sbr. 4. mgr. 6. gr. laga um læknaráð. Niðurstöðu örorku- nefndar skal fylgja stuttur rökstuðningur, sbr. 4. gr. reglugerðar um starfsháttu örorkunefndar nr. 335/1993. Samkvæmt 1. mgr. 66. gr. laga um meðferð einkamála sker dómari úr ágrein- ingi um hvort matsgerð sé nægjanlega rök- studd. Það getur þó verið álitamál hvenær rök- stuðningur verður metinn fullnægjandi. Dómar eiga að vera rökstuddir en fyrir kemur þó að þeir séu gagnrýndir fyrir að vera illa eða ekki rökstuddir. í sumum tilfellum getur verið erfitt að rökstyðja niðurstöður. Mikilvægt er að rök- stuðningur sé réttilega upp byggður en ekki eru þó endilega til einhlít svör við því hvað telst rétt í þeim efnum. Þrátt fyrir óvissuna sem hér hefur verið bent á eru þó ýmis atriði sem hafa má til viðmiðunar. Þegar sagt er að matsgerð eða álitsgerð eigi að vera rökstudd er átt við að fram þurfi að koma hvaða rök hafi leitt til niðurstöðu matsins eða álitsins. Einnig þarf að koma fram hvort niðurstöður séu byggðar á traustum grunni eða hvort eitthvað, og þá hvað, veiki gildi þeirra. í því sambandi er mikilvægt að hlutleysis sé gætt og að ekki séu dregnar rangar ályktanir af rann- sóknum eða umfram það sem niðurstöður þeirra gefa tilefni til. Lögfræðilegar ályktanir eiga yfirleitt ekki heima í þessum gögnum. Hins vegar getur þurft að skera úr um ákveðið or- sakasamband, til dæmis hvort tilteknir líkams- áverkar séu til komnir vegna líkamsárásar. Röksemdafærslan á að vera skýr. Fram þarf að koma á hverju niðurstöður eru byggðar og hvað hafi leitt til þeirra. Framsetning og orða- lag þarf að vera skýrt en óljóst orðalag getur haft þær afleiðingar að rangar ályktanir verði dregnar af því sem fram kemur. Onákvæmni í orðavali getur enn fremur leitt til rangtúlkunar á atriðum sem geta hugsanlega haft þýðingu fyrir úrlausn málsins. Loks er mikilvægt að læknisfræðilegar rannsóknir og aðrar athuganir séu byggðar á viðurkenndum aðferðum og að sérfræðingur byggi ekki niðurstöður á öðru en því sem hann hefur fullnægjandi þekkingu til að meta. V. Mat á sönnunargildi gagna í dómsmálum hafa málsaðilar í meginatrið- um forræði á sönnunarfærslunni. Þeir ákveða því sjálfir án afskipta dómara hverra sönnunar- gagna þeir afla til að leggja fram í dómsmáli. Dómarinn leggur hins vegar inat á það hvort
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.