Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1999, Side 83

Læknablaðið - 15.03.1999, Side 83
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 261 ln memoriam Bjarni Jónsson dr. med. 1909-1999 Bjarni Jónsson lézt á heim- ili sínu að Gnitanesi í Skerja- firði 15. febrúar 1999 og átti þá tæpa eitt hundrað daga í ní- rætt, en hann var fæddur á Isa- firði 21. maí 1909. Hann kom ungur til Reykjavíkur og ólst upp í Þingholtunum, Grjóta- þorpinu og á Bráðræðisholt- inu. Stúdent varð hann 1929 frá stærðfræðideild Menntaskól- ans í Reykjavík og lauk emb- ættisprófi í læknisfræði frá læknadeild Háskóla Islands vorið 1935. Hann hóf aðstoðarlæknis- störf á Sánkti Jósefsspítala 1. janúar 1936, fyrstur kandídata á Landakoti. Varð það upphaf rúmlega fimmtíu ára tengsla við sjúkrahúsið og skyldi eng- an furða að vitnað hefir verið til hans, fyrr og síðar, sem Bjarna á Landakoti. Framhaldsnám í bæklunar- skurðlækningum stundaði hann í fjögur ár, fyrst á Epp- endorf í Hamborg, síðan í Berlín og síðast í Kaupmanna- höfn. Arið 1940 kom hann heim ásamt eiginkonu sinni, Þóru Amadóttur (kaupmanns og leikara Eiríkssonar), eftir sögufræga ferð með Esjunni frá Höfn, um Petsamo á Kola- skaga, til Reykjavíkur. Ekki gat hann snúið sér að lækn- ingum með það sama, þar sem Bretar, sem höfðu hertekið landið þá um vorið, þóttust eiga eitthvað sökótt við hann vegna námsdvalarinnar á Epp- endorfer Krankenhaus. Dvöl sinni í dýflissu Hans hátignar Georgs konungs fimmta í Lundúnum hefir Bjami lýst á frábæran hátt í Virkinu í norðri. Endanlega heimkominn hóf hann störf á Landakoti 1941 og gerðist jafnframt heimilis- læknir í Reykjavfk, eins og þá þótti sjálfsagt. Viðurkenning á bæklunar- skurðlækningum sem sérgrein innan handlækninganna kom ekki af sjálfu sér. Bjarna seg- ist svo frá, að landlækni hafi fundizt að greinin hefði ekki næga burði til þess að standa ein. Bjarna fannst hún það viðamikil að henni væri minnkunn gerð með því að gera hana að fylgifiski ann- arrar greinar, en landlæknir bauð viðurkenningu í hand- lækningum með bæklunar- lækningarnar sem aukagrein. Bjami sat fast við sinn keip og að lokum fékkst viðurkenn- ingin 3. júní 1941, en þá hafði þrefið við landlækni staðið í hálft ár. Bæklunarlækningar hans þarf ekki að mæra. Al- menningur gaf honum sæmd- arheitið Beina-Bjarni. Eftir stríð fór hann til Bandaríkjanna í hálft annað ár (1947-9) í framhalds- og við- haldsnám í sérgrein sinni og árið 1954 varði hann doktors- ritgerð sína um spengingar við hryj>gskekkju. Árið 1953 fórst dr. Bjarni Oddsson í bílslysi, fyrsti ís- lenzki taugaskurðlæknirinn. Þá varð læknum ljóst, að þeir áttu hvergi athvarf með höf- uðslys. Ráðamenn lögðu hart að Bjarna Jónssyni að leysa vandann og var honum boðinn árs styrkur frá Heilbrigðis- stofnun þjóðanna, en ekki þótti heilbrigðisstjórninni ástæða til að greiða honum nein laun meðan á náminu stæði. I bókinni „Á Landa- koti“ segir hann: „Kunningjum mínum mörg- um þótti þetta óráð og sumum glapræði. Styrkurinn var ætl- aður einum manni til fram- færslu og þó í hóf stillt, en ég var fjölskyldumaður með tvö börn, orðinn 47 ára og ekki kominn úr skuldum. Konan mín var fús að taka aftur upp stúdentalíf og neita sér um þægindi, og ég lét slag standa.“ Þá sem ávallt fyrr og síðar voru þau samhent hjónin, Þóra og Bjarni. Bjarni Jónsson var í læri hjá prófessor Eduard Busch á Rík- isspítalanum í Kaupmanna-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.