Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.1999, Page 108

Læknablaðið - 15.09.1999, Page 108
VALUE (Valsartan Antihypertensive Long-Term Use Evaluation Trial). 14.400 sjúklingar í 6 ár. VAL-HEFT (Valsartan Heart Failure Trial). 4.800 sjúklingar í 3 ár. VALIANT (Valsartan in Acute Myocardial Infarction Trial). DIOVAN 14.500 sjúklingar í 4 ár. ABCD-2V (Appropriate Blood Pressure Control in Diabetes Trial Part 2 With Valsartan). 800 sjúklingar í 5 ár. NOVARTIS Nýtt: Nú einnig Diovan 160 mg. Ekki ætti að meðhöndla sjúklinga með aldósterónheilkenni með Diovan þar sem sjúkdómurinn hefur áhrif á renin- angíótensín kerfið. Aukaverkanir: Eftirfarandi aukaverkanir hafa komið fram i samanburðarrannsóknum þar sem lyfleysa var notuð og sjúklingar meðhöndlaðir með Diovan. Tíðni aukaverkana var sambærileg við það sem fram kom með lyfleysu. Algengar (>1%): Höfuðverkur, svimi, veirusýkingar, sýkingar í efri öndunarvegi, hósti, niðurgangur, þreyta, nefslímubólga, skútabólga, bakverkir, kviðverkir, ógleði, kokbólga, liðverkir, hlutleysiskyrningafæð (neutropenia). Sjaldgæfar (<1%): Liðbólgur, þróttleysi (asthenia), tárubólga, blóðnasir, þunglyndi, maga- og garnabólga, krampar i fótum, vöðvakrampar, vöðvaþrautir, taugahvot (neuralgia), svefnleysi, svimi. Mjög sjaldgæfar: Lækkun á hemóglóbíni og hematókrít og hækkun á lifrargildum. Lýst hefur verið einu tilfelli af ofsabjúg (angioedema). Milliverkanir: Samtimis notkun kalíumuppbótar, kalíumsparandi þvagræsilyfja, saltuppbótar sem inniheldur kalium eða annarra lyfja sem geta aukið kaliumþéttni (heparín o.s.fv.) ætti að nota með mikilli varúð og með tíðum mælingum á kalium. Auka má áhrifin á háþrýsting með því að gefa önnur háþrýstingslyf samtímis. Við samtímis notkun Diovan og litíumsalta er ráðlagt að mæla styrk litíums i blóði. Ofskömmtun: Enn er engin reynsla komin á ofskömmtun af Diovan. Helsta einkenni ofskömmtunar gæti verið áberandi lágþrýstingur með svima. Meðhöndlun fer eftir tíma frá inntöku og tegund og alvarleika einkenna, þar sem mikilvægast er að gera ástand blóðrásar stöðugt. Ef að sjúklingurinn hefur nýlega tekið skammtinn, ætti að framkalla uppköst. Ef einhver tími hefur liðið frá inntöku ætti að gefa sjúklingunum nægjanlegt magn af lyfjakolum. Ef lágþrýstingur kemur fram, skal sjúklingi komið fyrir liggjandi á bakinu og salt og rúmmálsaukandi meðferð hafin hratt. Ekki er hægt að skilja valsartan úr blóðrás með blóðskilun vegna sterkrar próteinbindingar þess. Skammtastærðir handa fullorðnum: Ráðlagður skammtur af Diovan er 80 mg einu sinni á dag. Auka má skammtinn í 160 mg einu sinni á dag. Diovan á að taka með vökva, en má taka óháð máltíðum. Diovan má einnig gefa með öðrum blóðþrýstingslyfjum. Samtímis gjöf þvagræsilyfja, svo sem hýdróklórtíazíðs mun lækka blóðþrýsting enn meira hjá þessum sjúklingum. Ekki þarf að aðlaga skammta sérstaklega fyrir sjúklinga með skerta nýrnarstarfsemi (kreatínínklerans > 10 ml/mín). Hjá sjúklingum með vægt til í meðallagi skerta lifrarstarfsemi án gallteppu ætti skammtur af valsartan ekki að fara yfir 80 mg. Skammtastærðir handa börnum: Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun Diovan hjá börnum. Verð: Hylki 80 mg: 28 stk. -1846 kr, 98 stk. -6220 kr. Hylki 160 mg: 28stk, -2215 kr, 98 stk. 7463. Umboðsaðili: Thorarensen-Lyf, Vatnagörðum 18, simi: 530 7100. Júni 1999. Diovan (Novartis, 960135). Hylki; A 04 A D 01. Hver hylki inniheldur: Valsartanum INN, 80 mg eða 160 mg. Eiginleikar: Virka hormónið í renín-angíótensin-aldósterón kerfinu er angíótensín II, sem myndast úr angíótensíni I vegna áhrifa hvata (ACE = angiotensin converting enzyme). Angíótensín II binst sérhæfðum viðtökum sem eru staðsettir í frumuhimnum í ýmsum vefjum. Það hefur mjög víðtæk lífeðlisfræðileg áhrif, þar með talið bæði bein og óbein áhrif á stjórnun blóðþrýstings. Vegna sterkra æðaþrengjandi áhrifa hefur angíótensín II bein áhrif á blóðþrýsting og stuðlar að auki að minnkun natríum útskilnaðar og örvun á aldósterón seytingu. Diovan er sterkur og sérhæfður angíótensín II viðtaka blokkari sem er virkur við inntöku. Valsartan frásogast hratt eftir inntöku en meðal aðgengi er 23%. Hjá flestum sjúklingum, eftir gjöf eins skammts, koma áhrif á blóðþrýsting fram á innan við 2 klukkustundum og hámarkslækkun blóðþrýstings næst innan 4-6 klukkustunda. Áhrifin vara í meira en 24 klukkustundir eftir inntöku. Við endurtekna lyfjagjöf næst hámarkslækkun blóðþrýstings, með hvaða skammti sem er, yfirleitt innan 2-4 vikna og er viðhaldið með langtímameðferð. Ef Diovan er gefið samhliða hýdróklórtíazíði fæst marktæk umframlækkun i blóðþrýstingi. Próteinbinding valsartans í blóði er mikil (94-97%), aðallega við albúmín. Dreifirúmmál er um 17 I. Klerans er tiltölulega lágur (um 2 l/klst.) samanborið við lifrarblóðflæði (um 30 l/klst.). Eftir inntöku er 83% skilið út með saur og 13% i þvagi, að mestu sem óbreytt efni. Ábendingar: Hækkaður blóðþrýstingur. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Meðganga. Alvarleg lifrarbilun, skorpulifur og gallteppa. Alvarlega skert nýrnastarfsemi (kreatínínklerans < 10 ml/min) og sjúklingar í blóðskilun. Meðganga og brjóstagjöf: Jafnvel þó ekki sé reynsla af notkun Diovan hjá barnshafandi konum, geta ACE hemlar valdið fósturskaða og fósturdauða hjá konum á öðrum og þriðja þriðjungi meðgöngu. Þvi, eins og fyrir önnur lyf sem hafa áhrif á renín-angíótensin-aldósterón kerfið, ætti ekki að nota Diovan á meðgöngu. Ef þungun verður á meðan á meðferð stendur skal hætta Diovan meðferð eins fljótt og hægt er. Ekki er vitað hvort valsartan skilst út í brjóstamjólk. Valsartan fannst í mjólk hjá mjólkandi rottum. Þvi er ekki ráðlagt að konur með barn á brjósti noti Diovan. Varúð: Natríumskort og/eða minnkað blóðrúmmál á að leiðrétta áður en meðferð er hafin með Diovan t.d. með því að minnka skammta af þvagræsilyfjum. Gæta skal varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með nýrnaslagæðarþröng báðu megin eða með þrengingar til annars nýrans, ósæðar- eða míturlokuþrengsli eða hjartavöðvakvilla með þrengingu, alvarlega hjartabilun eða vægt til í meðallagi skerta lifrarstarfsemi án gallteppu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.