Læknablaðið - 15.09.1999, Blaðsíða 104
758
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
SJÚKRAHÚS
REYKJAVÍKUR
Geðsvið
Deildarlæknar
Lausar eru til umsóknar stööur deildarlækna við geðsvið Sjúkrahúss Reykjavíkur. Stöðurn-
ar veitast eftir samkomulagi.
Hér er um að ræða stöður við bráðamóttökudeild A-2 og dagdeildir á Hvítabandi. Vaktir
(staðarvaktir) eru við A-2 og bráðaþjónustu geðsviðs á G-2 (slysa- og bráðamóttöku). Um
er að ræða fjölbreytt störf við greiningu, meðferð og endurhæfingu. Ráðning í heilsársstöðu
gefur möguleika á þátttöku í hópmeðferðardeild þar sem um er að ræða langtíma innsæis-
meðferð.
Ýmsir möguleikar eru á rannsóknarverkefnum og góð fræðsla er í boði. Stöðurnar leggja
góðan grunn að framhaldsnámi í ýmsum greinum læknisfræðinnar, eru einnig góðar til við-
haldsmenntunar reyndra lækna og fyrir þá sem eru að koma heim úr sérnámi.
Upplýsingar veita:
Halldór Kolbeinsson forstöðulæknir, símar 525 1000 og 525 1400. Netfang: halldork@
shr.is. Ásgeir Karlsson yfirlæknir, sími 525 1000. Ingvar Kristjánsson sérfræðingur hópmeð-
ferðardeild, sími 525 1940.
Umsóknir berist Halldóri Kolbeinssyni forstöðulækni fyrir 15. september 1999.
Heilsustofnun NLFÍ
Læknir óskast til afleysinga
Læknir óskast til starfa við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Um er að ræða 12 mánaða
afleysingastöðu sérfræðings sem möguleiki er að framlengja til lengri tíma. Æskilegt er að
viðkomandi sé sérfræðingur í endurhæfingar-, hjarta-, gigt- eða taugalækningum. Þá gæti
staðan verið tilvalin fyrir reyndan heimilislækni, sem vill breyta til um tíma, með áhuga eða
reynslu í endurhæfingu og meðferð stoðkerfisvandamála.
Heilsustofnun er staðsett í friðsælu og fallegu umhverfi. í stofnuninni er starfandi framsækið
teymi fagfólks sem notar það besta úr hefðbundinni læknisfræði og náttúrulækningum til
endurhæfingar og forvarna gegn sjúkdómum. Vinnuandi er eins og best verður kosið.
Staðan er laus eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar veitir Guðmundur Björnsson yfir-
læknir í símum 483 0300 og 581 1821.