Læknablaðið - 15.09.1999, Blaðsíða 46
710
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Umræða
Ættlægni krabbameins í blöðruhálskirtli gæti
orsakast af sameiginlegum umhverfisþáttum, til
dæmis mataræði sem og arfgengum þáttum.
Einnig getur aukin árvekni hjá ættingjum þeirra
manna sem greinast með sjúkdóminn skýrt að
hluta til ættlægni.
Aldur ættvísis við greiningu í þessari rann-
sókn virðist ekki hafa afgerandi áhrif á áhætt-
una þegar fyrsta, annað og þriðja skyldleikastig
eru tekin saman en er þó aukin hjá yngri ættvís-
unum ef fyrsta og annað skyldleikastig eru
skoðuð ein sér. Ef um arfgengan þátt er að ræða
má búast við mestri áhættu ættingja yngri ætt-
vísanna. Hafa verður þó í huga að aldur við
greiningu er verulega háður greiningartækni
sem og árvekni lækna og sjúklinga. Arin sem
skoðuð voru eru til dæmis fyrir tíð PSA (pro-
stata specific antigen), bættrar tækni við sýna-
töku og við upphaf nýgengisaukningarinnar.
Ættvísar geta af þeim sökum verið eldri við
greiningu en ella.
Flestar erlendar rannsóknir af þessu tagi hafa
byggst á viðtölum við sjúklinga og ættingja og
ná ekki til heils samfélags eins og rannsóknin
sem hér er greint frá. Þar er treyst á minni þátt-
takenda auk þess sem einungis er hægt að
henda reiður á allra nánustu ættingjum. Kostir
rannsóknar af þessu tagi á Islandi eru ótvíræðir
vegna ítarlegra ættfræðiupplýsinga og sameig-
inlegrar krabbameinsskrár sem gefur upplýs-
ingar um heilt samfélag en ekki útvalinn hóp
sjúklinga.
Ályktun
Greinist íslenskur karlmaður með krabba-
mein í blöðruhálskirtli eru karlkynsættingjar
hans í meiri áhættu en ella að fá samskonar
sjúkdóm.
Þakkir
Rannsókn þessi var styrkt af Rannsóknaráði
Islands og Vísindasjóði Borgarspítalans.
HEIMILDIR
1. Arsskýrsla Krabbameinsfélags fslands fyrir árið 1995.
Reykjavík: Krabbameinsfélag íslands 1997.
2. Heilbrigðisskýrsla landlæknis 1995. f handriti 1999.
3. Ekman P, Pan Y, Li C, Dich J. Environmental and genetic
factors: a possible link with prostate cancer. Br J Urol 1997;
79/Suppl. 2: 35-41.
4. Woolf CM. An investigation of familial aspect of carcinoma
of the prostate. Cancer 1960; 13: 739-44.
5. Steinberg GD, Carter BS, Beaty TH, Childs B, Walsh PC.
Family history and the risk of prostate cancer. Prostate
1990; 17:337-47.
6. Neuhausen SL, Skolnick MH, Cannon-Albright L. Familia!
prostate cancer studies in Utah. BrJUroi 1997; 79/Suppl. 1:
15-20.
7. Carter BS, Beaty TH, Steinberg GD, Childs B, Walsh C.
Mendelian inheritance of familial prostate cancer. Proc Natl
Acad Sci USA 1992; 89: 3367-71.
8. Smith JR, Freije D, Carpten JD, Gronberg H, Xu J, Isaacs
SD, et al. Major susceptibility locus for prostate cancer on
chromosome 1 suggested by a genome-wide search.
Science 1996; 274: 1371-4.
9. Xu J, Meyers D, Freije D, Isaacs S. Evidence for a prostate
cancer susceptibility locus on the X chromosome. Nat
Genetics 1998:20:175-9.