Læknablaðið - 15.09.1999, Blaðsíða 36
702
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Tafla I. Hlutfallsleg skipting sjúklinga eftir lýðfrœðilegum þáttum, fjölda fyrri innlagna og sjúkdómsgreiningum ásamt hlutfalli sem
hélt bindindi í 28 mánuði*.
Deild 33A Vífilsstaðir Vogur Alls Bindindi f 28 mánuði
Fjöldi 112 118 121 351 56
Hlutfall % % % % %
Karlar 65,3 61,9 80,2 70,9 16,5
Konur 34,7 38,1 19,8 29,1 15,7
15- 29 ára 16,1 14,4 33,1 21,1 24,3
30- 49 ára 42,0 61,9 45,5 49,9 12,6
50 ára og eldri 42,0 23,7 21,5 28,8 16,8
Ógiftir 20,5 36,4 43,0 33,6 16,9
Giftir 34,8 21,2 31,4 29,2 27,5
Fráskildir 32,1 36,4 23,1 30,4 6,5
Fullvinnandi 28,1 45,8 57,0 44,7 22,9
Aldrei húsnæðislaus 59,5 76,3 77,7 72,9 17,7
Fjórar eða fleiri fyrri komur 47,9 42,4 27,3 40,2 7,1
Aðeins vímuefnagreining 20,7 16,9 24,8 21,4 22,7
Vímuefna- og aðrar geðgreiningar 79,3 83,1 75,2 78,6 14,5
* Fjöldi ekkna og ekkla ekki sýndur vegna þess að of fáir eru í þessum flokki.
Tafla II. Fjöldi sjúklinga eftir kyni á Vogi, deild 16 Vífdsstöðum og deild 33A Landspítalanum og hlutfall þeirra sem hélt bindindi.
Karlar Konur Bindindi fyrstu 16 mánuðina Bindindi í 17-28 mánuði Bindindi í 28 mánuði
Stofnun N N Karlar(%)' Konur(%): Karlar(%) Konur(%) Karlar(%)5 Konur(%)4
Vogur 97 24 33,0 37,5 48,5 41,7 25,7 29,2
Vífilsstaðir 73 45 23,3 6,7 32,9 33,3 15,1 4,4
Deild 33A 79 33 16,5 27,3 24,1 36.4 6,3 21,2
1. x2=6,5; df=2; p=0,04 (df=degrees of freedom=frítölur) 2. x:=10,4; df=2; p=0,005
3. x-12,1; df=2; p=0,002 4. x:=8,4; df=2; p=0,015
um eftir að hann leitaði meðferðar. Ef sjúkling-
ur fannst ekki var haft samband við aðila sem
hann hafði leyft að leitað væri til og myndi að
öllu jöfnu vita hvar sjúklinginn væri að finna. í
þessu bréfi var spurt hvort viðkomandi hefði
hafið drykkju eða neyslu annarra vímuefna að
nýju auk ýmissa annarra atriða. Með þessu
móti var hægt að flokka alla sjúklinga nema 14
karla og fjórar konur eftir því hvort þau höfðu
haldið bindindi eða ekki. Tuttugu og átta mán-
uðum eftir upphaf meðferðar var aftur leitað
upplýsinga með sama hætti og var þá aftur
hægt að flokka alla sjúklingana nema 38 karla
og 22 konur, eftir því hvort þau höfðu haldið
bindindi eða ekki. Samkvæmt upplýsingum að-
standenda lék grunur á, að þorri þeirra sem
vantaði upplýsingar um, væri við drykkju og/
eða neyslu annarra vímuefna, eða þeir höfðu
verið við drykkju þegar haft var samband við
þá 16 mánuðum eftir meðferð. Því voru allir
sem vantaði upplýsingar um taldir vera fallnir
aftur í neyslu.
Tölfræðilegar aðferðir sem notaðar voru í
greininni voru kí-kvaðrat þar sem borin voru
saman hlutföll og breytileikagreining (ANOVA)
til þess að greina mun á fleiri meðaltölum en
einu. Við gerð spálíkans fyrir því að hefja aftur
drykkju var notuð lógistísk aðhvarfsgreining.
Niðurstöður
Um 16% alls hópsins héldu bindindi í tvö ár
(tafla I). Þeir ungu, giftu og fullvinnandi (unnu
meira en 20 vikur á síðustu sex mánuðum) og
þeir sem ekki höfðu aðrar geðgreiningar en
áfengissýki náðu bestum árangri (23-28%
héldu bindindi), en þeir sem voru fráskildir eða
síkomusjúklingar náðu lökustum árangri, en
aðeins 7% þeirra náðu að halda bindindi í 28
mánuði. Tafla I sýnir glögglega að hlutfall
karla var hæst á Vogi, jafnframt var þriðjungur
sjúklinganna þar yngri en 29 ára, þar var lægst
hlutfall fráskilinna, hæst hlutfall þeirra sem
voru í fullri vinnu og þeirra sem aldrei höfðu
misst húsnæði sitt. Hlutfall síkomusjúklinga
var lægst þar. Þannig fer saman hátt algengi
þátta sem spá um góðar horfur og það að hafa
leitað meðferðar á Vogi og hins vegar hátt al-
gengi þátta sem spá um slæmar horfur og það
að hafa leitað til deildar 33A eða Vífilsstaða.
Tafla II sýnir, að eftir fyrsta árið hafa um 33%
karla á Vogi, 23% karla sem voru á Vífilsstöðum
og 17% karla sem voru á Landspítalanum haldið
bindindi. Er þetta marktækur munur milli stofn-
ana. Samsvarandi tölur fyrir konur sýna einnig
að árangur er bestur meðal kvenna sem sóttu
meðferð á Vogi, en lakastur á Vífilsstöðum
(6,7%). Eftir tvö ár er árangur enn bestur meðal