Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1931, Blaðsíða 32
430
— Við yður þætti mér það
mesta ánægja í lífi mínu, frú.
— Mér þykir svo gaman að
dansa við Frakka.
— Finnst yður þeir dansa vel?
— Nei, en þeir tala svo mikið
um leið og þeir dansa. Og þar
sem eg skil ekki frönsku, stígur
það mér til höfuðs svo undur
þægilega. Eg ímynda mér alltaf,
að þeir séu að segja mér eitt-
hvað svo æsandi!
Eg dansaði fox-trot við þessa
fögru vinkonu mína með ljósa
hárið og talaði mikið við hana.
Vínbannið hefir ekki ennþá getað
komið í veg fyrir orðin, sem stíga
til höfuðs eins og áfengi. Allt í
einu kleip frúin í handlegg minn
og sagði lágt:s
— Vel á minnst. Komið núna á
eftir upp í herbergi 836 ... Þar
verður á boðstólum ágætt krydd-
vín. Það verður mjög skemmti-
legt.
Eg þakkaði frú M... og leiddi
hana aftur til sætis. Nú voru þeg-
ar nokkrir gestir horfnir úr saln-
um; þar á meðal Freddy. Nú
taldi eg vera tækifærið til að fara
upp á eftir honum.
Eg var á leiðinni til lyftunnar,
þegar eg mætti í hótelganginum
manni, sem bar mjög þunga hand-
tösku. Eg þekkti hann ekki, en
[iStefnir
hann klappaði vingjarnlega á öxl-
ina á mér og sagði:
— You are French?
— Já.
— Það voruð þér, sem dönsuðuð
við konuna mína?
Mér fór ekki að verða um sel.
Eg gerði samanburð í huganum á
vöðvum mínum og mannsins með
handtöskuna. Eg anzaði:
— Hu, hu ... Jú ... Það er að
segja ... leyfið mér að ...
— Hlustið á. Mér líkar afar-vel
við Frakka, af því að þeir tala
ekki, þegar þeir eru að drekka.
Og það eru nú menn, sem hafa
vit á vínum! Munið númerið á
herbergi mínu: 638 ... Mér væri
ánægja að sjá yður þar. Farið ekki
upp í herbergið, sem konan mín
hefir, einiberjabrennivínið henn-
ar er af slæmri tegund.
— Þakka fyrir ... Þér eruð
mjög vænn að vara mig við . • •
En eruð þér að leggja í ferðalag
með þessa handtösku?
— Nei, það eru sex flöskur af
einiberjabrennivíni í henni. Við
hittumst þá bráðum.
Eiginmaður ljóshærðu konunnar
stökk burtu. Eg var á báðum átt-
um fyrir framan lyftuna. Eg leit-
aðist við að muna númer herbergJ'
anna. Hafði Freddy sagt 386 eða
368? Var Ijóshærða konan í núiW"
„Þurt“ brúðkaup.