Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1931, Page 53
Stefnir]
Neyðaróp frá Rússlandi.
451
binda frjáls vísindi og spilla hin-
um siðferðilega grundvelli heim-
ilislífsins.
Vilji maður fá upptöku í sam-
band ungra kommúnista, en það
er eini möguleikinn til þess að
komast áfram, þá er það bundið
því skilyrði, að viðkomandi æsku-
maður skrifi undir svohljóðandi
yfirlýsingu: „Eg N. N. X ára að
aldri, til heimilis í Xgötu nr. X,
slít öllu sambandi við föður minn,
sem eg hefi ekkert framar saman
við að sælda, og er mér alveg ó-
viðkomandi upp frá þessu“. —
Því að allt þetta, sem vér nefn-
um verðmæti, trúarbrögð, heimil-
islíf og vísindi, eru því til fyrir-
stöðu, að takast megi að útrýma
öllu andlegu frelsi. Á heimilinu
vaknar og glæðist siðferðiskennd
mannsins; trúin gerir menn
frjálsa og sviftir af þeim öllum
jarðneskum hlekkjum, og rann-
sókn hinna sönnu vísinda á leynd-
avdómum og auðæfum tilverunn-
av skapar lotningu fyrir sannleik-
anum og sannleiksástinni.
Hin ógurlegasta kúgun á öllu
andlegu frelsi er sérkenni Bolse-
vikka. Nú stendur einnig til að
svifta meginþorra þjóðarinnar,
bændurna, heimilum sínum og
fjölskyldulífi, með því að þröngva
þeim í sambýlin í hinurn stóru
verkamannanýlendum ráðstjórn-
arinnar, sem gerðar eru til þess
að koma öllum frjálsum landbún-
aði fyrir kattarnef. — Ráðstjórn-
arríkið er stærsta fangelsi verald-
arinnar, — það er eitt stórt fang-
elsi. Miklu fleiri en þessir 5 þús-
und þýzk-rússnesku bændur ætl-
uðu að flýja land, en þeim var
synjað um brottfararleyfi, og hið
sama er að segja um óteljandi
rússneska bændur. Landamærin
eru lokuð og flóttatilraunum hegnt
með dauðarefsingu. Fyrir skömmu
tókst 700 rússneskum bændum að
sleppa í smáhópum yfir rússnesk-
pólsku landamærin, en rétt við
landamærin voru 100 bændur
skotnir af sovéthermönnum, að
pólsku landamæravörðunum áhorf-
andi. (Pólsk blöð, 15. marz 1930).
1 skýrslu nefndar þeirrar, sem
skipuð var, vegna þess að þýzk-
rússnesku bændurnir leituðu hæl-
is í Þýzkalandi, stendur m. a.
þetta:
„Nú eru kristindómsofsóknirn-
ar orðnar skipulagsbundnar. Þess
er krafizt af öllum kennurum, að
þeir vinni að útbreiðslu trúleysis
meðal barnanna. Aðeins það, að
einhver úr fjölskyldu hans er jarð-
aður kristilega, er talið landráð.
Kirkjuganga á sunnudögum er
gerð ómöguleg, með því að allir
29*