Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1931, Page 68
466
Frá Alþingi.
['Stefnii
málum. En þó verður því ekki
neitað, að ágæt framfaramál
lágu efir á vígvellinum í hóp
þeirra mörgu mála, sem óút-
rædd voru. Má hiklaust þakka
þetta, að ekki tókst ver til en
raun varð á, því, að hinn skyn-
samari hluti stjórnarflokksins
hélt all fast í taumana. En hætt
er við, að hér sé ekki nema um
stundarfrið að ræða. Því að eng-
um getur dulist, að einmitt sá
fylkingararmur stjórnarflokksins
sem veit að sósialistum, sem kalla
mætti Jónasardeild flokksins,
hefir mjög aukist að kröftum við
síðustu kosningar. Þangað er nú
Jónas kominn, Þorbergsson, sem
hugsar og talar eins og hrein-
ræktaður sósialisti, þar eru þeir
Bergur sýslumaður, síra Svein-
björn Högnason og Steingrímur
skólastjóri á Hólum, sem allir
hafa verið sósialistar (og jafn-
vel kommúnistar), og sýndu það
á þessu þingi, að þeir báru fram
og fylgdu jafnan því, sem ó-
gætilegast var. Og í þinglokin
kom svo nýja stjórnin með Jón-
as Jónsson í sínu gamla sæti —
sönnunin fyrir því að óróahorn-
ið er og verður óviðráðanlegt
fyrir hina gætnari í flokknum.
Er mjög athyglisvert, og þyrfti
að draga það skýrt fram í dags-
ljósið, hvernig þessi flokkur hef-
ir verið og er að ummyndast
hægt og hægt en ómótstæðilega,
úr bændaflokknum, sem mynd-
aði uppistöðu hans í fyrstu, £
róttækan gerbreytingaflokk, sem
ekki er skyldari bændum eða
sveitamenning, en nóttin líkist
deginum. Bændurnir þurkast út
en inn koma embættismenn og
kaupsýslumenn og skoðanamun-
urinn er eftir þessu.
En hvað um það, gætnari hluti
stjórnarflokksins sleppti ekkí
taumhaldinu á þessu stutta þingi
— fyr en í þinglokin.
Hér skal svo vikið að af-
greiðslu nokkurra mála:
Landbúnaðarmál.
'Tvenn lög koma hér til greina,
bæði frá vetrarþinginu. Annað
er um það að heimila stjórninni
að flytja inn sauðfé til slátur-
f járbóta. Á að flytja inn fé frá
Bretlandi og Þýskalandi, ein-
angra hér og hafa til einblend-
ingsræktar. Miklar reglur ern
um sóttvarnir, enda hefir sýk-
ingarhættan verið aðal mótbáran
gegn innflutningi alidýra frá út-
löndum. Menn muna vel spönskn
hrútana, sem komu með fJal'
kláðann. Önnur mótbára geE1]
kynblöndun er sú, að féð verðr