Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1931, Blaðsíða 71
Stefnir]
Frá Alþingi.
469
snerta verzlun, og eru bæði um
einkasölu.
Annað er um síldareinkasöluna.
Það mun nú láta nærri að hún
sé búin að fara gersamlega með
þessa atvinnugrein í hundana.
Leiðir það sumpart af fyrirkomu-
laginU sjálfu og sumpart af
illri stjórn. Flestar eða allar spár
andstæðinganna hafa ræzt. Hún
hefir orðið mjög fjárfrek en átti
í upphafi ekki að þurfa nokkurn
eyri í rekstursfé. Hún þarf stór
ábyrgðir ríkissjóðs. Hún hefir
leitt til þess að þær þjóðir, sem
aðallega hafa keypt íslenzka
síld, hafa farið að veiða sjálfar
utan landhelgi, og mun nú svo
komið, að þær veiða allt, sem
þær þurfa. Þar með má segja að
atvinnugreinin sé búin. — En
mistökin á stjórn fyrirtækis-
ins koma fram í ýmsum óheppi-
legum ráðstöfunum eins og samn-
ingnum við Levy, tunnuskorti
þegar mest liggur á og nú salt-
skorti, forgöngu eins forstjórans
í verkfalli o. s. frv.
Auðvitað ætti að afnema þessa
einkasölu, þó að það sé nú ef til
vill orðið um seinan. En lög þau,
sem hér er um að ræða, eru um
b^eyting á stjórn einkasölunnar.
Hingað til hafa stjórnmálaflokk-
arnir ráðið þar nálega öllu, en
hinir, sem eiga atvinnu sína og
afkomu undir fyrirtækinu hafa
svo að segja hvergi nálægt kom-
ið. En hér er nú loks hlýtt á radd
ir þeirra, sem vildu í upphafi
láta þessa aðilja ráða, og eiga nú
fulltrúar atvinnuvegarins sjálfs
að kjósa mestan hluta útflutn-
ingsnefndar, og hún skipar svo
aftur forstjórana. —
Væntanlega er þetta miklu
betra fyrirkomulag, en hvort það
dugar til þess að rétta við þessa
vanhugsuðu stofnun, er annað
mál.
Hitt frumvarpið var um einka-
sölu á tóbaki.
Svo sem alkunnugt er, var hér
einkasala á árunum 1922—'25,
svo að full reynsla er fengin á
þessu bjargráði. Samkvæmt
skýrslu, sem Jón Þorláksson birti
í áliti um málið í efri deild er
reynslan þessi, m. a.:
Árin 1919—’21 er tollur af
tóbaki að meðaltali 584 þús.
Árin 1922—’25 (einkasölu-
árin) er tollur 481 þús. og ágóði
227 þús. eða samtals 758 þús. að
meðaltali.
Árin 1926—’29 er tollur að
meðaltali 1141 þús. krónur.
Þetta sýnir alveg ljóst og
ótvírætt, að einkasalan gefur
engar auknar tekjur að óbreyttu