Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Side 16

Sagnir - 01.10.1983, Side 16
Erla Kristjánsdóttir telur að í hefðbund- inni kennslu (staðreyndakennslu og yfir- heyrsluaðferð) sé lítill munur á aldursstig- um en ræðir síðan hvaða viðmið sé hægt að nota við að taka tillit til áhuga og þarfa nem- enda á öllum aldri: Á undanförnum árum hafa allmargar rann- sóknir beinst að hagnýtingu þroskakenningar J.Piaget fyrir sögukennslu. Niðurstöður þeirra hafa sterklega gefið til kynna að nem- endur ráði ekki við þá hugsanaferla sem flókin söguleg umfjöllun krefst fyrr en þeir hafa náð valdi á formlegri rökhugsun. Þessar niðurstöður hafa af ýmsum verið túlkaðar þannig að ekki eigi að kenna nemendum sögu fyrr en þeir hafi náð u.þ.b. 12 ára aldri. Þessi túlkun hefur einkum komið fram sem gagn- rýni á hefðbundna sögukennslu þar sem nem- endum er ætlað að læra um flókin fyrirbæri sem þeir hafa engar forsendur til að skilja né tengja við eigin reynslu. Margir telja það þó mestu firru að svipta ung börn þeirri ánægju er góð sögukennsla getur veitt þeim. Þá er bent á að flest börn hafa gaman að þjóðsög- um og ævintýrum og að hægt sé að leggja grunn að „raunverulegu" sögunámi síðar meir með því að nota efni sem höfði til nem- enda og örvi ímyndunarafl þeirra. Það sjón- armið sem ég tel vænlegast til árangurs er að leggja áherslu á félagslega sögu í grunnskóla og jafnvel einnig í framhaldsskólum. Hafa hliðsjón af þroskakenningu um samskipta- skilning (þ.e. hæfileika til að setja sig í spor annarra og sjá fleiri en eitt sjónarmið) við val viðfangsefna og hvernig unnið er að þeim. Nauðsynlegt er að skyggnast aðeins á bak við þá almennu fullyrðingu að ekki sé hægt að skilja nútíðina nema skilja fortíðina. Söguleg- ar upplýsingar einar leiða ekki til skilnings né getu til að sjá fleiri en eitt sjónarmið. Nem- endur verða að nota eigin gleraugu til að skoða söguna - en ekki reiða sig eingöngu á túlkun sagnfræðinga. í félagslegri sögu er reynt að efla samhygð nemenda og örva þá til að setja sig í spor persóna frá öðrum tíma og úr ólíkri menningu. Hvers vegna hagaði fólk sér á þennan hátt? Hvaða heimssýn hafði það? Hvernig er sú heimssýn í samanburði við heimssýn nemenda? Hverjar voru heim- ildir og hversu áreiðanlegar voru þær? Hverjar eru heimildir nemenda og hversu áreiðanlegar eru þær? O.s.frv. Viðfangsefni félagslegrar sögu (sérstaklega á yngri aldurs- stigum) tengjast mun betur lífi og reynslu nemenda en viðfangsefni sem taka til ein- stakra atburða og persóna. Hægt er að fjalla um þau á hlutbundinn hátt og undirbúa þann jarðveg sem sértæk og flókin fyrirbæri sögu- skoðunar spretta upp úr. Á að kenna nemendum í fram- halds- og grunnskólum aðferðir sagnfræðingsins? Ef svo er að hvaða marki og í hvaða tilgangi? Þessum spurningum svöruðu Erla Krist- jánsdóttir, Gunnar Karlsson, Ingi Sigurðs- son og Ingvar Sigurgeirsson. Þau voru sam- mála um að kenna ætti aðferðir sagnfræð- ingsins að því leyti sem það þjónaði mark- miðinu um sjálfstæða og gagnrýna hugsun. Gunnar Karlsson sagði svo: í grunnskólum held ég að eigi að kenna þau atriði sagnfræðilegra aðferða sem ætla má að fólk þurfi almennt á að halda í daglegu lífi. Þar á ég við hluti eins og að gera upp á milli heimilda, beita þjóðfélagslegum hugtökum, búa til og túlka línurit, skipuleggja umfjöll- unarefni og alhæfa út frá einstökum atriðum. Auðvitað eiga sagnfræðingar þessi vinnu- brögð ekki einir, og því mætti kenna þau í öðrum námsgreinum, en mín trú er að það geti haft talsvert til síns máls að kenna þau í sögu. Samt megum við ekki leggja svo mikið kapp á að þjálfa þessa hagnýtu hluti að við 14

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.