Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Side 26

Sagnir - 01.10.1983, Side 26
unarkenningar, þróunarsálfræði, rann- sóknir á unglingamenningu og daglegu lífi unglinga, o.s.frv. 2. Skólinn. Námskrárrannsóknir, athug- anir á skipulagi skólans og hlutverki kennsl- unnar. 3. Sögurannsóknir. Rannsóknir á þema- efnum sem eru miðlæg í sögukennslu, makró- ogsamtengjandi rannsóknir, o.s.frv. 4. Samfélagið. Samfélagslegt hlutverk skólans og sögukennslunnar, umræður um hvað séu forgangsverkefni. Kennslufræði þessi verður að vera sam- tengjandi, kerfisbundin og þverfagleg. Höfuðatriði í nýjum félagsmótunarkenn- ingum sem eflaust eru framandi venjuleg- um sögukennurum reynast oft hafa mikið gildi fyrir þá. Pað þarf að fá yfirlit yfir og umfram allt skikk á rannsóknir fremur en að safna nýjum upplýsingum endalaust. Hugsið ykkur ef tíundi hluti sagnfræðistú- denta einbeitti sér að viðfangsefninu: Hvers konar sögurannsóknir koma skólunum að mestu gagni? Hvernig geta sögukennarar (og nemendur) nýtt sér þær rannsóknir sem fyrir liggja? (Þetta hefur reyndar verið lítil- lega reynt í H.í. með einu 10 punkta nám- skeiði á kandidatsstigi.) En svo lengi sem þetta er ekki almennt ættu grunn- og framhaldsskólakennarar að halda námskeið fyrir háskólaprófessora og lektora en ekki öfugt. Þá myndu skólarnir og vandi nemenda og kennara þar lenda í sviðsljósinu. Annars yrði þessi fagkennslu- fræði bara eitt nýtt rannsóknarsvið sagn- fræðinnar með nýrri tegund möppudýra til að segja sögukennurum fyrir. 1. Erik Rudeng: „Fagdidaktiske muligheter i histori". Noter om historic & undervisning, nr. 52,1977. 24

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.