Sagnir - 01.10.1983, Page 56
Þorvaldur Bragason:
. . er þjóðveldi á
hyggilegum grundvelli manninum
samboðnast stjórnarform . . .“
Hugmyndir Jóns Ólafssonar ritstjóra (1850-1916)
um vald, frelsi og framfarir
íslensk hugmyndasaga hcfur lítið verið
rannsökuð af íslenskum sagnfræðingum
fram til þessa og lítið hefur verið gefið út af
ritum hér á landi þar sem beinlínis hefur
verið fjallað um þess háttar efni. Hug-
myndasagan er oftast í mestum tengslum
við heimspeki og stjórnmál, en hin almenna
menningarsaga er þá yfirleitt sem nokkurs
konar baksvið.
Þau skrif sem hér birtast eru tekin úr
stærri ritgerð þar sem ætlunin var að veita
nokkra innsýn í þetta viðfangsefni. Aðferð
mín í þeirri ritgerð var sú að taka fyrir
ákveðinn íslenskan stjórnmálamann á
síðari hluta 19. aldar, sem einnig starfaði
töluvert fram yfir aldamót og reyna að túlka
skoðanir hans og viðhorf með tilliti til þeirra
hugmynda og skoðana sem um þetta leyti
voru að hasla sér völl bæði í Englandi og á
meginlandi Evrópu. Fyrir valinu varð Jón
Ólafsson ritstjóri, skáld og þingmaður, en
hann lét verulega að sér kveða í íslenskum
stjórnmálum á sinni tíð. Ástæða þess að Jón
varð fyrir valinu er einkum sérstaða hans
meðal annarra stjórnmála- og fræðimanna
á þessum tíma.
í fyrsta lagi er hann einn af fyrstu stjórn-
málafrömuðum hér á landi sem reynir að
fjalla um stjórn- og stjórnskipunarmál með
sérstöku tilliti til þeirra hugmynda sem ofar-
lega voru á baugi í hinum engilsaxneska
heimi, gagnstætt þeim íslensku stjórnmála-
og menntamönnum sem höfðu baksvið sitt
mótað dönskum áhrifum. í öðru lagi má
nefna sérstæða söguskoðun, en í þeim
efnum kemur hann fram með ákveðnar
hugmyndir um orsakaskýringar en það
verður að teljast sjaldgæft á þessum tíma. í
þriðja lagi verður Jón að teljast maður nýs
tíma og nýrra hugmynda því skrif hans um
vísindi, framfarir, frjálshyggju og þróun-
arkenningu hleypa nýju lífi í alla stjórn-
mála- og þjóðfélagsumræðu.
Hugmyndir Jóns um stjórn-
skipunarmál
Það virðist nokkuð Ijóst, að Jón hefur að
fyrirmynd í umfjöllun sinni um stjórnskip-
unarmál margar af þeim hugmyndum sem
höfðu verið að gerjast víða í Evrópu á þess-
um tíma. Flestar þeirra mætti rekja á einn
eða annan hátt til forngrískrar stjórnmála-
heimspeki og enskrar raunhyggju þó hæpið
X
54