Sagnir


Sagnir - 01.10.1983, Side 58

Sagnir - 01.10.1983, Side 58
framfara- og markhyggjuviðhorf þar sem frelsi mannsins situr í fyrirrúmi og verður meira og minna að ákveðnu stefnumiði. Sem dæmi má taka viðhorf Jóns til einveld- isins sem hann telur vera á undanhaldi en samt sem áður óhjákvæmilegan áfanga af stærri heildarþróun: Þó er þetta eigi svo að skilja, sem einveldið sé orðið til eftir neinu blindu lögmáli innar skynlausu náttúru, heldr að það sé til orðið eftir lögmáli mannlegs anda og þannig fyrir nauðsyn tímanna, en meir eðr minna ósjálf- rátt þjóðunum. -En ef vér lítum frá upprun- anum í fyrstu bernsku og fram eftir tímunum, sjáum vér, hversu inir einveldislegu stjórnar- hættir hafa fengið fasta mynd og lögun fyrir sjálfráðan vilja og skoðun mannlegs anda, og endalokin hafa ávalt orðið þau, að stjórnar- hættirnir hafa breyzt í frjálslegri stefnu.6) J.S. Mill bendir á það í riti sínu Um frelsið, að í fornöld hafi ættjarðarvinir leit- ast við að takmarka vald það sem valdhaf- arnir höfðu á hendi enda var þetta vald þá mun meira yfir þegnunum. Þessi tak- mörkun valdsins segir Mill, að menn hafi kallað frelsi en þetta frelsi hafi þeir síðan reynt að tryggja í sessi með tvennu móti þ.e. annars vegar að fá sett fram ýmis ákvæði sem kölluð voru stjórnfrelsisákvæði eða réttarskrár. Hins vegar var um að ræða nokkuð sem kom síðar fram á sjónarsviðið, en það var að setja stjórnarskrá sem gerði samþykki þegnanna að ófrávíkjanlegu skil- yrði í ýmsum mikilvægum aðgerðum stjórn- valda. Sagan hafi sýnt að valdhafar Evrópu hafi smám saman neyðst til að láta undan stjórnfrelsiskröfum að meira eða minna leyti og að almenningur hafi stöðugt verið að fá viðurkenndar ýmsar undanþágur eða einkaréttindi.7) Þannig má draga þá ályktun af skrifum Mills að frelsishugsjónin hafi stöðugt verið í sókn í Evrópu. Jón Ólafsson bendir einnig á, svipað og Mill, að þeir stjórnarhættir sem miðuðu að þátttöku allr- ar þjóðarinnar í stjórn sinni hafi ávallt leitt til frelsis og hafi það um leið borið vott um andlegan þroska og hátt menningarstig.8) 56 John Stuart Mill. Ýmislegt í skrifum Jóns Ölafs- sonar ber sérstakan keim af þeim hugmyndum sem Mill setti fram í riti sínu, Um frelsið. Hvað þetta atriði varðar, virðist það að nokkru leyti koma heim og saman við kenn- inguna um stöðugt meiri fullkomnun mannsins í samfélagi þar sem réttur ein- staklingsins er hafður í fyrirrúmi, og mætti þess vegna tengja þetta grískri stjórnmála- heimspeki, eða eins og Jón orðar það: „ið sannasta stjórnarform eftir hugsjóninni.“9) Frelsishugtakið í stjórn- málahugsun Jóns En hver er þá nánari skilgreining Jóns á frelsishugtakinu? Hann reynir í nokkuð hnitmiðuðu formi, svipað og J.S. Mill að sýna fram á stöðuga sókn frelsishugsjónar- innar og ber þá saman það frelsi sem hann áleit að ríkt hafi til forna og frelsi samtím- ans: Frelsisást vorra tíma er veruleg („positiv") ást á frelsinu. Frelsisást fornmanna virðist oss meira andveruleg (,,negativ“), þ.e. meira hatr eða óbeit á mótsetning frelsisins - ófrels- inu. Eigingirnin, þ.e. hugsunin um, að hafa sjálfr frelsi fyrir sig (og sína stétt) var in ríkj- andi hvöt. En mannréttindin (hugmyndin, að maðurinn sem maðr hefði helgan rétt) voru eigi til í þeirra skoðun.10)

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.