Sagnir - 01.06.1996, Side 13

Sagnir - 01.06.1996, Side 13
Bretar hernámu ísland 10. maí 1940. Strax á hernámsdaginn varfariö að ræöa um samneyti reykvískra kvenna og hermanna. Ungar stúlkur og erlendir „gestir“ A heimsstyrjaldarárunum var æska Reykjavíkur oft harðlega gagnrýnd. Hún þótti m.a. vera of ginnkeypt fyrir erlend- um áhrifum og leggja litla rækt við upp- runa sinn og menningu þjóðarinnar. Hitt þótti þó sýnu alvarlegra, ef æskulýðurinn hafði beint samband við útlendingana. Einkum lágu blómarósir bæjarins undir ámæli fyrir slíka hegðan. Hinir eldri höfðu af henni verulegar áhyggjur. Engu var líkara en dætur höfuðstaðarins væru upp til hópa í „ástandinu" sem svo var kallað, hefðu svo náin kynni af setu- liðinu að til vandræða horfði. Gæfi stúlka sig á tal við hermann lá við að hún væri nánast sam- stundis stimpluð portkona.8 Strax á fyrsta degi her- námsins höfðu menn á því orð að sumar stúlkurnar í Reykjavik kynnu vart fótum sínum forráð. Rit að var:9 „Ekki hafði hið breska herlið verið fyrsta daginn til kvölds hér í bænum, án þess augljóst væri að risið hefði vandamál, sem full vansæmd er að fyrir Reykjavík. Og það er framferði götudrósanna. Svo freklega sneru þær sér að þessum aðkomumönnum að bæði dátunum og bæjarbúum ofbauð." Aug- Ijóst þótti að ekki yrði hjá því komist að grípa til ráðstafana yrði dvöl hermann- anna í bænum löng, ráðstafana sem væru áður óþekktar á Islandi „til þess að stemma stigu fyrir ósiðsömu háttalagi þessa vesalings kvenfólks." Bent var á aðgerðir til úrbóta: „Mönnum hefur dottið í hug að koma því þannig fyrir að stúlkur þessar ættu á hættu að verða svo auðkenndar að þær af þeim ástæðum bættu ráð sitt.“ Slík útilokun úr „siðuðu mannfélagi" þótti hins vegar ekki sam- ræmast „mannúðarkröfum nútímans.“ Annað kom til álita: „Best væru þessir aumingjar komnir á afskekktan stað, þar sem vinna og strangur agi kenndi þeim sjálfsvirðing. Þetta ætti að vera fram- kvæmanlegt, þar eð hér er um mjög fá- mennan hóp kvenfólks að ræða, sem þó nægir til að varpa skugga á ekki stærri bæ en Reykjavík." Oánægja með fram- ferði ungra stúlkna í höfuðstaðnum magnaðist næstu mánuði og ár. Víða var skeggrætt um samskipti þeirra og her- mannanna, og mikið um þau ritað. Pískrað var um stúlkurnar og þær jafnvel stimplaðar lauslætisdrósir af minnsta til- efni. Svo virtist sem fólki þætti sjálfsagt að leggja allt út á versta veg og vel kryddaðar slúðursögur um hvaða smæstu atvik fóru með Ieifturhraða um bæinn. Sumir smjöttuðu á þessum sögum en öðrum þótti þær alvörumál og áhyggju- efni, ýmist af siðferðilegri vandlætingu, þjóðlegum metnaði eða persónulegum áhyggjum um þá sem voru þeim kærir, og raunar stundum allt þetta til samans.10 Sumum ofbauð umræðan um dætur höfuðstaðarins. Ung Reykjavíkurstúlka ruddist fram á ritvöllinn miðsumars 1940 til þess að reyna að rétta hlut kvenn- anna. Víst þótti henni ansi margar stúlk- ur fara „á veiðar" á kvöldin til að krækja sér í stráka og ekki datt henni í hug að verja málstað þeirra og gjörðir. Hitt vildi hún hins vegar benda á að hægt var að kynnast hermönnum af hreinni tilviljun án þess að leggja snörur og slíkur kunningsskapur gæti verið hreinn og heiðvirð- ur. Þessu virtust alltof margir líta framhjá. Fólk virtist eiga erfitt með að geta litið á hermennina sem einstaklinga og það athugaði ekki að í jafn fjölmenn- um hópi hermanna og var i Reykjavík hlytu að vera allar manntegundir, „bæði siðaðir og ósiðaðir, góðir og vondir menn - en af því að það heyrir Ijótar 13 — Sagnir 1996

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.