Sagnir - 01.06.1996, Blaðsíða 47

Sagnir - 01.06.1996, Blaðsíða 47
Marxís.k JÁ.L5ÝN. Marx og Engels leiða rök aö því að öreigum muni safnast lið úr miðstéttum þjóðfélagsins ýmist fyrir þá sök að fjármagn þeirra hrekkur ekki til stóriðju og þíður lægri hlut í samkeþþni um stórauðmagnið, eða vegna hins, að verklag þeirra úreldist vegna nýrra framleiðsluaðferða. þarfnast einhverrar yfirstjórnar, hagræð- ingar, réttlætingar. Þessu hlutverki gegnir ríkið í krafti viðeigandi stofnana s.s. hers, embættismannakerfis, hugmynda- fræði, o.s.frv. Ríkið er tæki til að ríkja og þá tæki ríkjandi stéttar. Marx og Engels leiða rök að því að öreigum muni safnast lið úr miðstéttum þjóðfélagsins, ýmist fyrir þá sök að fjármagn þeirra hrekkur ekki til stóriðju og bíður lægri hlut í samkeppni um stórauðmagnið, eða vegna hins, að verk- lag þeirra úreldist vegna nýrra fram- leiðsluaðferða. I Kommúnistaávarpinu er því spáð að í fyrstu berjist einstakir verkamenn, þá verkamenn einnar verk- smiðju, því næst verkamenn í einni atv- innugrein á einum og sama stað, gegn hinum einstaka borgara, sem arðrænir þá. Ahersla er lögð á að þeir beini ekki aðeins skeytum sínum að sjálfum fram- leiðsluháttum borgarastéttarinnar. Ráð- ist verði á sjálf framleiðslutækin. I kjöl- far þessa muni verkamenn mynda samtök gegn borgarastéttinni. Samtök hinna ýmsu landshluta tengist síðan auðveld- lega í krafti bættra samgangna, en þá verði hinar mörgu launadeilur að alþjóð- abaráttu, stéttabaráttu.27 Firringarhugtakið er i brennidepli sem fyrr. I „Parísarhandritunum" heldur Marx því fram að verkaskipting og sérhæfing séu orsakir firringar og stéttaskiptingar. Stéttaskipting endursp- eglar firringu. Meðlimir stétta eru ekki heilsteyptir menn. Hvaða stétt sem maður tilheyrir þá er alltaf hluti af honum í annarri stétt. Ef uppræta á firringu er nauðsynlegt að eyða verka- skiptingu og henni verður aðeins útrýmt ef kapítalisminn og stéttafyrirkomulag hans hverfa. Marx sá enga þverstæðu í því að verndun friðarins útheimti bar- áttu. Stéttabarátta þar sem einn stendur uppi sem sigurvegari er vænlegri til þess að útrýma stéttum en stéttasamvinna sem byggist á málamiðlun.28 Stéttabar- áttan á fyrst og fremst rót í hagsmuna- árekstrum, ... andstæðum efnahagslegum hags- munum sem eiga rót mismunandi afstöðu stéttanna til framleiðslunnar, ólíkra tengsla við framleiðslutækin og ólíkra aðferða við öflun félagslegra gæða.29 Stéttaskiptingin endurspeglar þau framleiðslu- og félagstengsl sem rikja og tengist þannig þeirri þverstæðu fram- leiðsluafla- og tengsla sem henni er ætlað að leysa. I ferli stéttabaráttunnar eru framleiðslutengsl löguð að fram- leiðsluöflum (framleiðsluhættir fela hvort tveggja í sér: framleiðsluöfl og framleiðslutengsl. Ymis orð eru notuð yfir framleiðslutengsl t.d. „félagstengsl" eða „eignatengsl'*, en merkingin er hin sama).30 Stéttabaráttan hefur þá fyrst þýðingu þegar framleiðsluöflin hafa þróast á það stig að félagstengsl þ.e. eignatengsl verða fjötrar sem hamla frek- ari þróun. Þetta stafar af því að hin ríkj- andi stétt stendur vörð um ríkjandi framleiðslutengsl, á meðan hin rísandi stétt beinir kröftum sínum að því að rjúfa þessi tengsl. Þegar hin undirokaða stétt verður vör við þessar þverstæður þá verður bylting. I sigurvímunni nýtir ör- eigastéttin ríkið og lögin sem tæki. Sam- kvæmt Marx htldur þetta ferli áfram þar til einkaeign er afnumin og þar með sk- ipting þjóðfélagsins í andstæðar stétt- ir.31 Markmið Marx var að breyta öreig- astéttinni úr s étt í sjálfu sér (class in itself) í stétt fy..r sig (class for itself), meðvitaða stétt. Þá mun hún fær um að ryðja kapítalismanum til hliðar, ná tök- um á ríkisvaldinu og koma á alræði ör- eiganna, forstigi kommúnísks þjóðfélags. Stéttaskipting og stéttabarátta heyra sög- unni til, og þar með ríkisvaldið, endur- skin stéttahagsmuna. Eldskírnin Saga Frakklands um miðja 19. öld er prófsteinn marxískrar kenningar. Þá gerðist það sem Victor Hugo ræddi um í Vesalingunum, að úr djúpi dimmunnar, angistarinnar, eymdarinnar og heiftar- innar; gagnstætt öllum reglum um frelsi og jöfnuð og fóstbræðralag, reis götu- lýðurinn upp gegn þjóðinni.32 Skír- skotað er til byltingarinnar 1848 og pólittskra sviptivinda næstu ára á eftir. Stjórnartíð Louis-Philippe sem nefnd er Júlí-lýðveldið einkenndist af friði hið ytra, en af biturð og árekstrum hið 47-Sagnir 1996
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.