Sagnir - 01.06.1996, Page 17

Sagnir - 01.06.1996, Page 17
.BLÓRMQfi.Q.lMOfiOLN.BQMBQRN. Á hermannaböllum var fjöldi karlmanna I engu samræmi viö fjölda kvenfólks. Ýmislegt var reynt til þess aö laða konurnar aö. fram sú skoðun þeirra aS þetta sé ekki þess vert. Þess verður líka víða vart að þótt sama stúlkan hafi haft mök við fleiri en einn hermann í einu, finnst henni þá fyrst sóma sínum misboðið, er henni er boðin borgun. I stuttu máli: - Islenskum konum er hvergi nærri ljós munurinn á vændiskonunni og óspilltu konunni. Þær virðast líta svo á að merkjalínan þar á milli sé fjárhagslegs eðlis. Kona, sem hefur mök við fimm hermenn í sama skál- anum í sama skiptið, telur sig heið- arlega konu, ef hún þiggur ekki fé að launum, kona, sem sefur hjá liðsfor- ingja í gistihúsi, er helsærð ef hann vill greiða ómakið, kona, sem tekur við aurum, er vændiskona. Munurinn á siðlegri konu og vændiskonu er því að dómi fjölmargra reykvískra kvenna, ekki siðferðilegur heldur fjárhags- og atvinnulegur. „Astandsnefndin" lauk máli sínu nieð herhvöt til bjargar framtíð þjóð- arinnar. Hún taldi það mestu máli skipta að hver einstaklingur gerði skyldu sína, að innanlands skapaðist sterkt almenn- ingsálit sem krefðist þess „að íslenskt þjóðerni, íslensk menning og íslensk tunga verði vernduð, að íslendingar verði framvegis sjálfstæð menningarþjóð. Framtíð íslensku þjóðarinnar er fólgin í því einu, að æska landsins gleymi ekki þegnlegri skyldu við blóð sitt og móðurmold."25 Enda þótt „ástandsskýrslan" þætti vandlega unnin og bréf landlæknis skýr og skorinorð fór ekki hjá því að karla- sjónarmið væru þar ríkjandi. Á styrj- aldarárunum ofbauð mörgum körlum samkeppnin um kvenfólkið og e.t.v. báru heimildirnar þess nokkur merki, kannski hafa þær magnað þann fjölda kvenna sem taldar voru viðriðnar „ástandið" og „afbrigðilega" hegðun þeirra. Þarna var á ferðinni nefnd sem taldi sig þess um- komna að segja að konur almennt hafi haft rangar hugmyndir um það hvað það væri að vera „vændiskona" og hvað það væri að vera „óspillt kona". En spyrja má hvort það hafi ekki verið fólk al- mennt, samfélagið, sem setti sér siðaboð °g gat þá þt'ggj3 manna nefnd menntaðra karlmanna sagt að konur hafi almennt haft rangar hugmyndir í þessum efnum? Ekki er heldur fjarri lagi að einhvers misskilnings hafi gætt á því hvert viðhorf fólks til þessara mála var yfirleitt og þá helst kvenfólksins. Og e.t.v. gerðu menn sér ekki almennilega grein fyrir því hvaða siðferðishugmyndir fólk hafði almennt og hvaða hugmyndir það hafði rétt á að hafa.26 Reyndar hafa ýmsar kannanir sýnt að fólk er mun lauslátara í kynferðisefnum en yfirleitt er gert ráð fyrir.27 I raun þurfti ekki erlent herlið til þess og kannski var áfengið, sem hermennirnir virtust hafa haft svo greiðan aðgang að, meira böl en bein- línis lausungin í kynferðisefnum. Em- bættisbréf landlæknis og skýrsla nefndarinnar einkenndust að ýmsu leyti „af grófum ummælum og harðorðum dómum um konur," ritaði Kristinn Kristjánsson bókmenntafræðingur árið 19 84.28 „Ástandsnefndin" 'hafði það hlutverk að rannsaka „siðferðileg vanda- mál" í tengslum við sambúð útlending- anna og landsmanna og miðað við þær forsendur sem hún gekk út frá kom í 17 - Sagnir 1996

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.