Sagnir - 01.06.1996, Síða 27

Sagnir - 01.06.1996, Síða 27
BrÉFSEFNIÐ.ER. AÐ.5.EC5JA FRÁ SJÁLFRI M.É.R Sigríði og ekki fer á milli mála að hún var vel greind. Hún fékk hvatningu frá móður sinni sem hét hesti í verðlaun ef henni tækist að ljúka barnalærdómnum fyrir vinnumálin. „... ieg rembdist eins og Riúpa vid staur og nádi hestinn”.30 Ung að aldri samdi hún eftirfarandi visu, sem er hreint ekki svo slæm miðað við aldur hennar, og sendi bróður sínum:31 Vil eg ekki ad verölld þad viti og hermi sínum Ad kunni eg ei ad klora blad Kiærastanum minum ounga skal því æfa hönd og ekki tefra leingur Listin er ei laung né vönd Litid á hvörnig geingur Það er athyglisvert að inntak kvæðisins lýtur allt að skriftarkunnáttunni sjálfri og má af því leiða mikilvægi hennar fyrir Sigríði. Eftir lát móðurinnar var það amman sem sá um að kenna þeim systrum. Sigriði fannst hún hins vegar ekki læra nóg hjá henni enda gamla konan farin að eldast og orðin nokkuð lasburða: „... framfarirnar mínar eru so litlar því ecki hefur Amma mín hentugleika til ad kenna mér anad en ad tæta ullina”32 Ekki er hægt að kenna áhugaleysi um því fram að því var amman mjög iðin við að kenna henni og hvatti hana óspart áfram. Hana langaði til að læra meira, líkt og þegar hún skrifaði: „... eg vildi óska ad þeir [eflaust fólkið á Kirkjubæ] giætu ként mér ad lesa dönsku og skrifa vel því til þeB er eg mikill klaufi”.33 Þrátt fyrir mikinn námsáhuga er ekki hægt að greina biturleika hjá henni út í skólagöngu bræðranna. Áframhaldandi menntun kvenna tiðkaðist ekki á þeim árum og virtist Sigríður fyllilega gera sér grein fyrir því.34 Uppistand í Laugarnesi Árið 1829 flutti Sigríður suður og gerðist þjónustustúlka hjá Steingrími Jónssyni biskupi. Hún dvaldi þar aðeins í tæplega tvö ár, eflaust mun skemur en fyrirhugað hafði verið. Dvölin hafði afdrifaríkar afleiðingar í för með sér. Þar hitti hún fyrri maka sinn, Þorstein Helgason, og má segja að samdráttur þeirra tveggja hafi ekki gengið hávaða- laust fyrir sig. Biskup rak þau skötuhjú burt úr Laugarnesi og fékk fólk nóg til að slúðra um. Bróðir hennar var sá eini sem hún gat trúað fyrir vanda sínum en í bréfunum gefur hún honum greinargóða lýsingu á atburðarásinni. Á biskupsheimilinu bjó dóttir Valgerðar biskupsfrúr, Sigríður, og var hún heitbundin Þorsteini Helgasyni. Að loknu námi í Kaupmannahöfn kom Þorsteinn til landsins og áttu menn von á giftingu. Bið varð hins vegar á því og má finna skýringuna í bréfi Sigríðar: 0L1 -f', J J v-r, / >, ,/ V - tc/ aJ ■vcrdéíd J>œc) ft/ijc og /li/rmi eJtnum tÆd AÍnru ad ÁÍora 'tÍaJ Uncja Jxai'jévt. a^a- 'fukJ iq -iAM tr €Í Jeuincj ní W&- r<. J'tunr+L-i * v rtS*vi, / ') /afo-ié/Covt /y /-yyr/ V*/i 'IÁ-W /iiijJ-t' -,yj 'SZLív,A^M^ ,, ocp-y? aUf/eq qfa Sétr/cJ- si- J-* *'j/ji 1 rv 't ry /r / /** / ti v/v t-rtn *<////*/'** \rZd icí ÆoJrfj fincjur. eJcyndtLr ... ecki hiálpar annad en seigia hvuria sögu eins og hun geingur og er þad þá ad ecki fór sem skildi fyrir Helgasen vin þínum því honum finst sér ómögulegt ad eiga Fraukenina en eg hef mergt ad honum væri vel vid mig enn þar var eg í fyrstuni ecki orsök til En nu get eg ecki ad því giert, ad eg elska hann hiartanlega enn þe6u leinum vid enn þá eins og mans mordi.33 Hjá Sigríði kemur fram að Þorsteinn reyndi að auðvelda fyrirhugað heitrof með því að koma „... séraf ásettu rádi ecki vel vid þaug”. Að því kom að Þorsteinn sagði biskupsdóttur og for- eldrum hennar „... meiningu sína” og reiddust þau honum mjög, Hvað snerti samband hennar og Þorsteins þá skrifaði Sigríður bróður sínum að „... eckert grunar þaug enn þá um ockur og má hamingan ráda hvurnin þeim verdur vid þad eg er ecki altid róleg ad hugsa fram á þetta alt saman”.36 Af tilviljun komst Valgerður bisk- upsfrú að sambandi skötuhjúanna. I bréfi sem hún ritaði Hannesi syni sínum til Kaupmannahafnar kemur fram hversu niðurlægjandi það var fyrir konu í hennar stöðu að láta þjónustustúlku Til vinstri er sýnishorn af skrift Sigríðar sem barns en að ofan sem fullorðinnar konu. ræna mannsefni dótturinnar. I orðum hennar afhjúpast stéttaskiptingin: ... þú ert þó víst búin ... ad heyra ádur, svo sem fliótrædi Þ. HS ad trúlofa sig Sigr: P.d: þad viBi eg fyrst föstudags qvölldid fyrsta i sumri ... og mátti þá seigia um mig ad sialdan væri eymd eyn - því svo mótlætislegt og vanvirdandi sem þad var ad hann sagdi systur þinni upp án allra saka, svo sýndist þetta ei bæta um ad taka i sama vetfángi þiónustu stúlku rett vid hlidina á ockur ... födur þinn liet eg þetta vita dagin eftir, og hann sagdi H. næsta sunudag ad hann og hún skyldu fara hiedan, því fyrr því helldur, þau fóru þá bædi dagin eftir, hann ad Lambastöd: enn hún til frændkonu sinnar Landfógeta Eckiunar ... enn þótti þér ecki þetta systir þin vifii eckert af enn sama morgunin að henni hvörnin fara dullt - þefiu fyrr Sigr: fór, ad eg sagdi komid væri.37 Sigríður Hannesdóttir var að vonum sár og skrifaði bróður sínum að „Aðferð þeirra og fljótræði á báðar síður held eg flesta stanzi á. Eg ætti að vera fáorð um það. Það er liðið.”38 Fiskisagan flaug og kom í ljós að bæði Páll og Þórunn, yngri systir þeirra, fengu að heyra hana, Páll búsettur á Snæfellsnesi en Þórunn fyrir austan. Þórunn skrifaði bróður sínum að henni 27-Sagnir 1996
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.