Sagnir - 01.06.1996, Síða 56

Sagnir - 01.06.1996, Síða 56
.Sisftú.N.Sjö.umftQö.Tm á þessum árum og verður reynt að gera þessu nokkur skil hér á eftir. FYRRI HLUTI ástkæra elskuríka móðir Þegar Olafur Johnsen vaknaði um morg- uninn var það hans fyrsta verk að fá sér kaffisopa. Magnús Pjetursson herbergis- félagi hans var sofandi svo að Ólafur læddist inn í innra herbergið sem þeir deildu með sér og settist þar við skrif- borð. Gufuskipið hafði komið deginum áður og á þessum fallega júlímorgni var veislumatur á boðstólum í litla her- berginu á Garði. Ólafur smurði þykku lagi af íslenskum mysuosti á brauðið og leit í Þjóðólf.* ÞjóSólf sendi faðir hans honum reglulega, allan þann tíma sem bréfin vitna um, en Ólafi líkaði innihald blaðs- ins oft á tíðum illa. Vorið 1873 skrifaði hann: „Ljóta bladid er Þjódólfur, eins og vant er, þvílíkur þvættingur og togasíni; hann hefur skrítid gaman af allara handa chronique scandalense!,,2 Kjaftablað sagði Ólafur en sjálfur hafði hann nú lúmskt gaman af kjaftasögum. Sumarið 1868 skrifaði hann föður sínum til að mynda: „En hvad var Gudrún Hjaltalín ad vilja heim núna? Hún er þó ekki skilin vid manninn? Eiga þau í basli eda er hann drykkfeldur?"3 Já, það voru ekki bara hinar marg- rómuðu kjaftakerlingar sem stungu saman nefjum. Karlmennirnir áttu það einnig til að velta sér upp úr lífi náung- ans og bréfin sem fóru á milli Reykja- víkur og Hafnar innihéldu ófáar kjafta- sögurnar. Sú var að minnsta kosti raunin með bréfin sem Steingrimur, bróðir Ólafs, skrifaði heim á námsárum sínum í Höfn, 1866-1873. Steingrímur skrifaði mikið um daglegt líf sitt og kunningja sinna í Höfn en Ólafur lagði aftur á móti meiri áherslu á tilfinningar sínar og upplifanir og skrifaði jafnframt mikið um þjóðfélagsmál. Þær ólíku áherslur sem þeir bræður lögðu á í bréfum sínum endurspegla per- sónuleika þeirra upp að ákveðnu marki. Steingrímur bægði til að mynda frá sér óþægilegum umræðuefnum um stríð og annað þvíumlikt rétt eins og hann forðaðist að horfast í augu við eigin mistök og raunveruleika. Steingrímur vildi eiga áhyggjulaus æskuár í Höfn og þar sem bæði peningaáhyggjur og ófriður í landinu settu svartan blett á hans draumaveröld bægði hann frá sér öllum hugsunum þar að lútandi. Hann vildi vera ungur og áhyggjulaus en um leið sjálfstæður og frjáls. Það var dálítið snúið að sameina þessa þætti og olli það Steingrími þungum áhyggjum þegar fram liðu stundir eins og síðar verður komið að. Ef við hverfum nú aftur til 4. júlí 1857 þar sem Ólafur sat við skrifborðið sitt á Garði og las í ÞjóSólfi sjáum við að hann hefur tekið fram hvitt bréfsefni. Hann hefur ákveðið að bæta nokkrum línum við bréfið sem hann hóf að skrifa móður sinni í gær. Stundum skrifaði hann mörg bréf á dag en það gátu einnig liðið margar vikur á milli skrifanna. Stundum skrifaði hann eitt langt bréf og nokkur styttri, sendi þau svo af stað hvert á eftir öðru með sitt hvoru skip- inu, ef svo skyldi fara að eitt skipið kæmi á undan öðru til Reykjavíkur.4 A þeim tímum sem Danir áttu i blóðugum erjum við Prússa um yfirráð í Slésvík fækkaði skipaferðum til muna, einkum yfir veturinn og þótti mörgum námsmanninum sambandsleysið erfitt. Þann 30. september 1864 skrifaði Ólafur móður sinni: Ólafur var ekki feiminn við að hleypa foreldrum sínum inn í hugarheim sinn og láta í Ijós tilfinningar sínar. Eg verð svo dapur við tilhugsinina um að þetta sé í síðasta sinn á þessu ári sem ég get látið heyra fra mér, ... bara að það væri búið að koma á ritsímasambandi á milli Danmerkur og Islands, þá þyrfti maður ekki að lifa í óvissunni um hvort allir væru á lífi heima. Svo gott er það vist ekki, svo að maður verður bara að lifa í voninni um það besta.5 I rauninni skiptir það okkur litlu máli að Ólafur hafði heimþrá. Heimþrá er ekkert annað en mannleg tilfinning, sem sýnir sig við ákveðnar aðstæður óháð stað og tíma, og hefur því ein og sér lítið sögulegt gildi. Hinsvegar má telja þá staðreynd að Ólafur tjáði sig um heimþrána og opinberaði tilfinningar sínar frásagnarverða. Ólafur var ekki feiminn við að hleypa foreldrum sínum inn í hugarheim sinn og láta í Ijós til- finningar sínar. Þann 9. október 1860, stuttu eftir að Ólafur fluttist út af Gamla Garði, lýsti hann tilfinningum sínum og einverunni til að mynda á eftirfarandi hátt: Á kvöldin er hér alveg jafn kyrrlátt og heima í Reykjavík, og ég er þess vegna ekki í vafa um að á komandi vetrarkvöldum eigi jeg eftir að ímynda mér að ég sé snúinn til baka til þess tima er ég sat heima og las undir skólann. Þá sat eg oft einn í herberginu mínu þar til kom að kvöldverðartima og hlakkaði til þeirrar stundar... hér, þar sem ég sit í kyrrðinni, það heyrist ekki svo mikið sem eitt múkk, og sjaldan sést til mannaferða ... verður mér oft hugsað til míns notarlega heimilis þar sem ætíð er góðan félagsskap að fá.6 Þessi orð Ólafs eru í mínum huga tíma- laus eins og er svo oft er um orð sem lýsa mannlegum tilfinningum og hafa ber í huga að þrátt fyrir að tilfinningin sem slík breytist ekki þá breytist umgjörð hennar og tjáning oft í samræmi við umhverfið. Það eru ekki tilfinningarnar sjálfar, heldur ytri umgjörð og tjáning þeirra sem gefur þeim sagnfræðilegt gildi. Því þykir mér ekki nauðsynlegt að færa sönnur á eða leggja sérstaka áherslu á að foreldrar Ólafs elskuðu hann og — — ■ — sýndu honum ást í bréfum sínum og að Ólafur elskaði að sama skapi börnin sín heitt.7 Hinsvegar ætla ------ ég að gera nokkra grein fyrir þvi hvernig þessi ást birtist og hvernig hægt er að draga ályktun um stöðu Ölafs sem karlmanns í fjölskyldunni út frá því. Áhugavert er að vita hvernig sam- bandi Ólafs við foreldra sína var háttað eftir að hann fluttist af landi brott. Voru þau enn nálæg í lífi hans og uppeldi eða þroskaðist hann og varð að manni upp á eigin spýtur á götum Kaupmannahafnar? Til þess að komast að þessu er nauð- synlegt að skoða umgjörð tilfinninganna og tjáningu þeirra eins og hún birtist í bréfaskriftum Ólafs við fjölskyldu sína. Bandaríski sagnfræðingurinn Stephen M. Frank fjallaði um kynskipt upp- eldishlutverk foreldra í grein sinni „Rendering aid and comfort: images of fatherhood in the letters of civil war soldiers from Massachusetts and Michigan" sem birtist í ]ournal of Social History, haustið 1992. Frank fullyrti út frá þeim 1300 sendibréfum, sem hann rannsakaði, að hlutverk föðurins í fjöl- skyldunni hafi einkum verið að undirbúa börnin undir framtíðarhlutverk sitt í þjóðfélaginu með því að þroska þau vitsmunalega en hlutverk móðurinnar að hlúa að tilfinningaþroska þeirra og gera Sagnir 1996 - 56
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.