Sagnir - 01.06.2007, Side 25

Sagnir - 01.06.2007, Side 25
að fá hlutdeild i þeim litlu gæðum sem heimamenn höfðu. Þetta var gróðrarstía fyrir misskilning, fordóma og átök. I seinni tíma umfjöliun um þýska landbúnaðarverkafólkið hefúr það ranghermi komið fram að þessi ráðstöfún Búnaðarfélagsins hafi verið nokkurs konar tilraun til hjónabandsmiðlunar fyrir einhleypa íslenska bændur. Á þessu viðhorfi ber t.d. í sjónvarpsþætti sem gerður var af Einari Heimissyni árið 1990 og hét Innflytjendur á Islandi. Þar segir að vinnuaflsskortur og röskun á kynjahlutfalli í sveitum landsins hafi verið orsök þess að leitað var eftir þýsku kvenfólki til landbúnaðarstarfa.3 Enn greinilegar kemur þetta fram í sjónvarpsþætti sem Miriam Halberstam gerði árið 1999 í tilefni þess að 50 ár voru liðin frá því að fólkið kom til landsins. Þar er mjög sterklega gefið í skyn að konumar hefðu verið ráðnar í þeim tilgangi að útvega íslenskum bændum kvenfólk. Ekki er minnst á það í þessum þætti að karlmenn hafi einnig verið í hópnum.4 Þar með er ekki verið að halda því fram að einhverjum einhleypum bóndanum eða bóndasyni hafi ekki dottið í hug að þýsk kaupakona gæti verið góður kvenkostur. I tveimur bréfúm til Búnaðarfélagsins, þar sem óskað er eftir þýsku fólki, er þetta beinlínis gefið i skyn. Bóndi einn skrifar Búnaðarfélaginu vegna ráðningar á stúlku: „Ég veit ekki hvort fleira er sem máli skiptir, nema ef ástarguðir hefðu hönd í bagga gæti hjúskapur komið til greina.“ Annar bóndi skrifar: „Ég á 26 ára son sem er nú einn eftir heima af bömum mínum og aldrei veit maður hvað skeður þegar piltur og stúlka finnast."5 Hvernig var staöið að ráðningunum? Ámi Siemsen sendi fféttatilkynningu til útvarps og 20 dagblaða í Slésvík og Holtsetalandi þar sem sagði að Islendingar væm að leita að fólki til vinnu í landbúnaði. Atvinnumálaráðuneytið réði tvo menn til Þýskalandsfarar, þá Jón Helgason, blaðamann á Tímanum, og Þorstein Jósepsson, blaðamann á Morgunblaðinu. Áttu þeir, ásamt Áma Siemsen að sjá um alla framkvæmd við ráðningu fólksins. Það vom margvísleg vandamál sem biðu sendimanna þegar þeir komu út. Meira en nóg var af umsóknum frá karlmönnum en mjög skorti umsóknir frá stúlkum. Sendimennimir og Ámi settu upp „leiksýningu" með því að fá blaðamenn, ljósmyndara og hóp af fólki sem lék umsækjendur „til þess að láta þýsku þjóðina sjá að margir væm fúsir til þess að fara til íslands!“6 í Lúbecker Freie Presse má sjá árangur „leiksýningarinnar" sem sett var upp við íslensku ræðismannsskrifstofúna. Undir yfirskriftinni: „Gen Island woll'n sie fahren”, „til íslands ætla þau að farabirtist þar mynd af biðröð fyrir utan hús íslensku ræðismannsskrifstofúnnar. Ámi Siemsen, vararæðismaður, virðist einnig hafa gripið sjálfúr til óhefðbundinna aðgerða þegar hann beinlínis persónulega falast eftir ráðningu stúlku „úti í bæ“.7 Útvegun vegabréfa, vottorða og leyfis frá hemámsyfirvöldum reyndist í heild tafsamara en menn hafði órað fyrir i upphafi. Þann 24. maí höfðu einungis tólf fengið fúllnaðarafgreiðslu á öllum skilríkjum.8 Nokkuð var um það að mönnum hér heima þætti seint ganga og sýndu lítinn skilning á þeim erfiðleikum sem við var að etja.9 Ástœður Þjóðverja til að leita eftir vinnu á Islandi Ekkert er finnanlegt í skjölum um ástæður þess að Þjóðverjar sóttust eftir vinnu á Islandi. En vissar ályktanir má draga ef litið er til ástands mála í Þýskalandi á þessum tíma. Viðtöl við fólkið sem settist að á Islandi gefa líka nokkrar upplýsingar ásamt viðtali við Jón Helgason í dagblaðinu Timinn þann 21. júní 1949. Ástandið í Þýskalandi á vormánuðum 1949 var afskaplega erfitt og vonleysi meðal fólks var mikið. Fréttir af sjálfsmorðum úr neyð,10 niðurrif verksmiðja til þess að flytja þær til landa sigurvegaranna,11 húsnæðisleysi,12 slæmar atvinnuhorfúr fyrir ungt fólk,13 skortur á skólahúsnæði,14stóraukið vændi15 og mansal16 eru fféttaefni þýskra blaða á þessum tíma. Frá Memel til Melrakkaslettu Einnig er hægt að benda á mjög stranga skömmtun matvæla í Þýskalandi á eftirstríðsárunum. Haustið 1948 var þannig mánaðarskammtur af kjötmeti 300 grömm og af fiski 600 grömm. Skammturinn af mjólkurvörum var hálfúr lítri af undanrennu á viku, en 400 grömm af smjöri eða smjörlíki og 125 grömm af osti á mánuði.17 Menn þurfa ekki að vera næringarfræðingar til þess að geta getið sér til um að þessi fæðuskammtur sé tæplega til þess fallinn að gefa hraustlegt og heilbrigt útlit. Jón Helgason segir í viðtali við Tímann að margt af fólkinu eigi ekki annað en þunnar og lélegar dulur sem það standi í. Ein stúlka hafi komið gangandi berfætt 15 km leið til viðtals við þá. Tvær stúlkur hafi komið á sama hjólgarminum 45 km leið og áttu eftir að fara til baka um kvöldið.181 hópi umsækjanda var stór hópur flóttamanna, sérstaklega frá þeim héruðum Þýskalands sem voru afhent Póllandi og Sovétríkjunum í lok stríðsins. Einnig frá landsvæðum sem höfðu annaðhvort haft blandaða byggð, eins og í Efri-Slésíu, eða þar sem þýskur minnihluti hafði verið gerður burtrækur í stríðslok. Fómarlömb þessara þjóðemishreinsanna em talin hafa verið yfir 20 milljónir manna. Þar af týndu 2,8 til 3 milljónir lífi í þessum aðgerðum.19 Þeir sem eftir lifðu höfðu oft týnt öllum sínum nánustu á leiðinni að austan og bjuggu við lítinn kost í fióttamannabúðum. Þetta var fólk sem búið var að missa heimkynni, ættingja og allt sitt. Konum hafði verið nauðgað hvað eftir annað. Böm og unglingar höfðu verið áhorfandi að því þegar mæður þeirra eða systur vom beittar kynferðislegu ofbeldi. Það hafði staðið samanþjappað, fjögur á fermetra, á flóttamannaskipum á Eystrasaltinu á meðan sovéskar flugvélar létu vélbyssuskothríðina dynja á þilfarinu.201 eftirfarandi töflu er uppmni fólksins sem var ráðið til Islands sundurgreindur eftir þeim svæðum sem það kom frá og er þá miðað við fæðingarstað. Um nokkra einstaklinga reyndist ekki unnt að afla upplýsinga um fæðingarstað. Tafla 1 Uppruni fólksins sem ráðið var Landsvæði Fjöldi %_ Slésvík og Holtsetaland 119 37,9 Aðrir hlutar hemámssvæðis Vesturveldanna 32 10,2 Vestur-Þýskaland alls 151 48,1 Hemámssvæði Sovétríkjanna og Berlín 44 14,0 Pommem, Slésía og Austur-Brandenborg 45 14,3 Austur-Prússland 21 6,7 Danzig og Memelsvæðið 17 5,4 Önnur lönd 12 3,8 Flóttamenn alls 139 44,3 Uppmni óljós 24 7,6 Samtals 314 100,0 Heimildir: Heimilda í þessa töflu var aflað mjög víða. Helstu heimildir vom: Þ.í. Spjaldskrá útlendingaeftirlitsins,— Þ.í. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 2002, sbr. heimildaskrá, - S.A. Umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt, -Þjóðskrá, - íslendingabók, — Viðtöl, — Ýmis ættfræðirit, — Stéttatöl, — Ibúaskrár — Minningargreinar - Símtöl við afkomendur — o.fl. Eins og sést hafa þremenningamir sem sáu um ráðningamar, Ámi Siemsen, Jón Helgason og Þorsteinn Jósepsson, látið tilmæli um æskilegan uppmna fólksins sem vind um eyru þjóta. Einungis 37,9 % af fólkinu sem ráðið var átti uppmna sinn í Slésvík og Holtsetalandi. Sagnir - 21

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.