Sagnir - 01.06.2007, Side 29
þeirra var þýskt. Athyglisvert er að Anna Lísa Valtýsdóttir sagðist
ekki hafa orðið vör við fordóma fyrr en hún fluttist í bæinn.56 Getur
verið að fólk í dreifbýli sé, eða a.m.k. hafi verið, minna fordómafullt
en íbúar þéttbýlis? Nokkrir viðmælendur voru þeirrar skoðunar að
íslendingar væru haldnir fordómum gagnvart útlendingum almennt en
ekki Þjóðverjum sérstaklega.57 „Eg hef orðið vör við fordóma í garð
útlendinga almennt. íslendingar virðast líta á alla sem ekki eru fæddir á
íslandi sem útlendinga,"58 sagði Hildur Bjömsson.
Ekki fór hjá því að sumar stúlkumar urðu fyrir kynferðislegri áreimi.
I einu tilfelli hafði þýsk kona kært húsbónda sinn fýrir sýslumanni.
Sýslumaður brást rösklega við og annaðist ráðningu konunnar á
annan bæ.59 í öðm bréfi segir umboðsmaður Búnaðarfélagsins frá því
að hann hafi kannað aðstæður á bæ einum í sveitinni. Segir þar: „Um
húsbóndann skal ég ekkert segja að svo stöddu ... flestir karlmenn em
meira og minna kvensamir ... Hún er víst ung ekkja.“60 Hér má lesa
milli línanna að bóndinn hafi verið ágengur við stúlkuna en bréfritari
telur það greinilega ekki tiltökumál því þetta „liggi bara í mannlegu
eðli“! Hætt er við að fleiri málum af þessum toga hafi verið sópað undir
teppið. Langalvarlegust em þó viðbrögð starfsmanna Búnaðarfélagsins
í þriðja málinu. Stúlka hafði kvartað yfir kynferðislegri áreimi
sonarins á bænum og húsbóndinn hafi einnig leitað á hana.61 Viðbrögð
Búnaðarfélagsins vom þau að stúlkunni var bent á að vegna framtíðar
hennar hér á landi (en hún taldi sig ekki vilja fara aftur til Þýskalands),
væri betra að hún fari í fullum sáttum frá þessu heimili, þótt hún hefði
eitthvað við það að athuga.62
Sest að á íslandi
Þó að það hafi sennilega sjaldnast verið ásemingur þýska fólksins í
upphafi að setjast að hér á landi höguðu atvik eða forlög því svo að
töluverður hluti þess settist að hér á landi til frambúðar. Þetta gekk
hinsvegar ekki eins fljótt fyrir sig og menn hafa álitið á síðari tímum.
Ein af mörgum þjóðsögum um komu þýska landbúnaðarverkafólksins
er að fjöldinn allur af stúlkunum hafi gifst íslenskum bændum eftir
örfárra mánaða dvöl á landinu. Þannig segir í grein í Morgunblaðinu
21. september 1997: „í desember 1949, hálfu ári eftir komu
Þjóðveijanna, sagði Einar Olgeirsson alþingismaður ffá því á þingi að
„upp undir 40 þýskar stúlkur sem komið hafa hingað til lands á vegum
búnaðarsamtakanna hafi gifst íslenskum karlmönnum og þar með
öðlast íslenskan ríkisborgararétt."63 Þessi orð sagði Einar að vísu ekki
í desember 1949 heldur þann 28. mars 1950.64 Það breytir hinsvegar
engu um að staðhæfingin er að öllum líkindum yfirdrifin. Við fljótlega
og yfirborðslega athugun á giftingum kvennanna fundust ekki nema
þrjár af þýsku konunum sem höfðu gifst íslenskum körlum fyrir árslok
1949 og sautján til viðbótar sem svo háttaði til um á árinu 1950. Karlar,
hvort sem þeir voru kvæntir íslenskum konum eða ekki, urðu að sækja
um dvalar- og atvinnuleyfi á hálfs árs fresti. Það sama gilti um konur
sem ekki voru giftar íslenskum körlum. Það var langt í frá sjálfgefið að
þessi leyfi fengjust. Er af þeim ástæðum nokkuð erfitt að ákveða hveijir
vildu setjast að hér á landi. Fullur ásemingur gat verið hjá útlendingi að
setjast að hér á landi en yfirvöld gerðu það ekki auðvelt svo ekki sé tekið
dýpra í árinni. í töflu 3 er miðað við að viðkomandi hafi dvalist hér á
landi a.m.k. í fimm ár frá komu sinni
Tafla 3
Fólk sem settist hér aö eftir uppruna sínum
Landsvæði Fiöldi Settist að %
Slésvík og Holtsetaland 119 57 47,9
Aðrir hlutar hemámssvæðis Vesturv. 32 12 37,5
Vestur-Þýskaland alls 151 69 45,7
Hemámssvæði Sovétríkjanna og Berlín 44 30 68,2
Pommem, Slésía og Austur-Brandenb. 45 25 55,6
Frá Memel til Melrakkasléttu
Austur-Prússland 21 9 42,9
Danzig og Memelsvæðið 17 7 41,2
Önnur lönd 12 5 41,7
Flóttamenn alls 139 76 54,7
Upprani óljós 24 1 4,2
Samtals 314 146 46,5
Heimildir: Heimilda : í þessa töflu var aflað mjög
víða. Helstu heimildir voru: Þ.í. Spjaldskrá
útlendingaeftirlitsins, — Þ.í. Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið 2002, sbr. heimildaskrá, — S.A.
Umsóknir um íslenskan rikisborgararétt, - Þjóðskrá,
- íslendingabók, — Viðtöl, — Ýmis ættfræðirit, —
Stéttatöl, — íbúaskrár - Minningargreinar - Símtöl við
afkomendur — o.fl.
Eins og sést í töflunni settist tæpur helmingur þýska landbúnaðarfólksins
að hér á landi, samkvæmt ofangreindri skilgreiningu. Rúmlega
helmingur þeirra, sem töldust vera flóttamenn, settust að á landinu en
tæplega helmingur þeirra sem voru fæddir á því landsvæði sem síðar
varð Vestur-Þýskaland. Raunar skera sig einungis tvö landsvæði úr ef
athugaðar eru hlutfallstölur. Þau sem ættuð voru af öðrum landsvæðum
Vesmr-Þýskalands en Slésvík og Holtsetaland voru hvað tregust til að
setjastað hérá landi en afflóttamönnum fráhemámssvæði Sovétríkjanna
og Berlín settust nærri 70% hér að. Af þessum 146 einstaklingum, sem
settust hér að, vom 114 konur af 238 konum i heild og 32 karlar af
76.1 hundraðstölum reiknað settust 47,9% kvennanna hér að en 42,1%
karlanna. Miðað við umræðuna, bæði við komu fólksins árið 1949 og
seinni tíma umfjöllun á ýmsum vettvangi, hlýtur að koma á óvart hve
hátt hlutfall karla settist hér að. Var þó mun meiri erfiðleikum bundið
fyrir þá að festa rætur hér en konumar sem öðluðust sjálfkrafa íslenskan
ríkisborgararétt þegar þær giftust íslenskum körlum ef það var fyrir 1.
janúar1953.
Fjölskylda og afkomendur
Langflestir Þjóðverjanna sem settust hér að giftust eða kvæntust
íslenskum mökum. Eftir því sem næst verður komist hafa þau hjónabönd
flest verið farsæl. Tiltölulega fá dæmi em um að þessi hjónabönd hafi
endað með skilnaði þó að nokkur tilfelli finnist. Nokkrir Þjóðverjanna
giftust innbyrðis bæði mökum úr landbúnaðarhópnum, svo og öðmm
Þjóðverjum sem komu um svipað leyti til landsins. Allir karlmennimir,
sem settust að hér á landi, svo og allar konumar sem ekki höfðu gengið
í hjónaband með Islendingi fyrir 1. janúar 1953, urðu að sækja um
íslenskan ríkisborgararétt ef þau vildu tryggja sér ömgga dvöl hér á
landi til langframa. Á síðari hluta sjötta áratugs 20. aldarinnar, svo og á
þeim sjöunda, sótti fjölmargt af þýska landbúnaðarfólkinu um íslenskan
ríkisborgararétt svo sem sjá má í Alþingis- og Stjórnartíðindum frá
þessum tíma. Mun þeim undantekningarlaust hafa verið veittur þessi
réttur. Þýska verkafólkið átti margt fjölda bama með mökum sínum.
Eftir því sem næst verður komist, í íbúaskrám ffá ýmsum timum svo
og öðrum heimildum, urðu böm þessa fólks sem upp komust 340. Ef
að líkum lætur em afkomendumir núna orðnir á annað þúsund en það
hefur þó ekki verið kannað sérstaklega. Þann 3. ágúst 2006 vom enn 55
einstaklingar úr upphaflega hópnum á lífi og búsettir á íslandi. Þar af
em tvær konur sem enn búa á býlinu sem þær vora upphaflega ráðnar
til. Báðar era þær ekkjur og báðar búa þær í Norður-Þingeyjarsýslu.
Niðurlag
Ekki era heimildir fyrir öðra en að það fólk sem settist hér að hafi
undantekningarlaust orðið hinir bestu þegnar. Þau hafi samlagast íslensku
þjóðinni svo fúllkomlega að þau hafa týnst í fjöldanum. Mjög líklegt er
að þau hafi flutt með sér ýmis hin bestu einkenni þýsku þjóðarinnar eins
Sagnir - 25