Sagnir - 01.06.2007, Síða 36

Sagnir - 01.06.2007, Síða 36
Varaskeifur, stuðpúðar eða brú milli framboðs og eftirspumar Christine R. Stanley frá Kenýa við vinnu hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur 1979. atvinnuleyfi og valt starfsöryggi hans ekki lengur á atvinnuástandinu á hverjum tíma. í öðru lagi fengu ákveðnir hópar undanþágu ffá umsóknum um atvinnuleyfi, þ.e. útlendingar sem undanþegnir voru atvinnuleyfi samkvæmt alþjóðasamningum sem þá voru einkum ríkisborgarar annarra Norðurlanda sem dvalið höfðu samfleytt á Islandi í þrjú ár. Þann 22. júní 1982 fullgilti Alþingi nýjan Norðurlandasamning um sameiginlegan norrænan vinnumarkað. Þar stóð: „Akvæði um vinnumarkaðinn í landi hverju mega ekki gera ríkisborgara annarra samningslanda verr setta en eigin ríkisborgara landsins."37 I fyrsta skipti síðan 1927 gat hópur útlendinga ráðið sig til vinnu á sömu forsendum og Islendingar. Til þess þurfti alþjóðasamning enda voru íslensk stjómvöld ávallt treg til að veita útlendingum frjálsan aðgang að íslenskum vinnumarkaði. Heiðarleg tilraun var gerð árið 1991 til að veita tæknimenntuðu starfsfólki nánast frjálsan aðgang að íslenskum vinnumarkaði óháð þjóðemi. Sú breyting var hins vegar dregin til baka með lögum 1. janúar árið 1993 sem þó mörkuðu næsta stóra skref til að opna vinnumarkaðinn fyrir útlendingum ákveðinna landa en þá fullgilti Alþingi samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Lögvernduð starfsheiti og erlendir ríkisborgarar Á sjötta áratug 20. aldar færðist í vöxt að sett væm lög um ákveðnar starfsstéttir að undirlagi viðkomandi starfsgreinasamtaka í því skyni að lögvemda starfsheitið. Flest starfsgreinalaganna kváðu á um að einungis íslenskir ríkisborgarar skyldu fá leyfi til starfans38 en nokkuð 32 - Sagnir bar á ákvæðum um undanþágur fyrir erlenda ríkisborgara.39 Þó gilti þetta ekki um allar starfsgreinar. Réttindi erlendra hjúkmnarfræðinga til að starfa hér á landi vom ekki skert með lögum hefðu þeir fullnægjandi menntun. Vafalaust má rekja þessa undantekningu til hins mikla hjúkrunarfræðingaskorts sem hefur verið landlægur á Islandi um áratuga skeið.40 Því hefði reynst óraunhæft að hefta aðgang erlendra hjúkmnarfræðinga að lausum störfum. Hjúkmnarlögin em því enn eitt dæmi þess að íslensk stjómvöld litu á erlent vinnuafl sem varaskeifu þegar innlendan vinnukraft var ekki að fá. Þau starfsgreinalög, sem hér er fjallað um, vom yfirleitt sett að undirlagi viðkomandi starfsgreinasamtaka og byggð á tillögum þeirra. Réttindi útlendinga ultu á því hvort hagsmunir samtakanna og félagsmanna þeirra kvæðu á um takmarkanir eða aukið aðgengi erlendra ríkisborgara að starfsgreininni. Hins vegar var það Alþingis að setja lögin og virðist sem stefna þess í málefnum útlendinga hafi farið saman við stefnu starfsgreinasamtakanna, því hömlur gegn starfsemi útlendinga í viðkomandi atvinnugreinum virðast hafa endurspeglað framboð og eftirspurn eftir innlendu vinnuafli. Strax í byrjun níunda áratugar 20. aldar bar meira á umburðarlyndi starfsgreinasamtaka gagnvart starfsemi útlendinga enda gætti um gjörvalla Evrópu viðleitni til að veita útlendingum aukin réttindi.41 Árið 1963 varð íslenskur ríkisborgararéttur að skilyrði leyfis til að stunda lyfsölu.42 Fimmtán árum seinna gátu erlendir lyfjafræðingar sótt um starfsleyfi hjá ráðherra.43 Einnig var rýmkað um möguleika erlendra ríkisborgara til að starfa sem sjúkraliðar, meinatæknar eða læknar.44 I mars 1988 tók ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar við völdum. Málefnasamningur stjómarinnar kvað á um fijálsræði í milliríkjaviðskiptum og athafnafrelsi einstaklinga og fyrirtækja.45 Það var eitt af síðustu verkefnum stjómarinnar árið 1991 að gera breytingar á ýmsum lögum i anda málefnasamningsins, m.a. á starfsgreinalöggjöfinni. Utlendingar, sem höfðu átt lögheimilisvist á Islandi í eitt ár, urðu skyndilega undanþegnir skilyrðum um íslenskan ríkisborgararétt. Gilti það um útgefendur blaða og tímarita, sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa, lyijafræðinga, sjóntækjafræðinga og þá sem ráku verslun, iðnað og uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla.46 Með lögunum frá 1991 var aðaláhersla lögð á menntun við veitingu starfsréttinda. Ennfremur bera lögin þess vitni að viðhorfsbreyting hafi orðið hjá íslenskum yfirvöldum gagnvart erlendu tæknimenntuðu fólki sem vildi stunda vinnu í samræmi við menntun sína. Aðeins sjö ámm fyrir setningu laganna mátti greina mikinn ótta á þingi um að útlendingar yfirtækju íslenska markaði á sínum sérsviðum.47 Þrátt fyrir að lagabreytingamar frá apríl 1991 séu til marks um ákveðna viðhorfsbreytingu þá var ný ríkisstjóm ekki tilbúin til að veita öllum útlendingum rétt til að stunda fag sitt eftir eins árs lögheimilisvist. Ákvæðin vom dregin til baka árið 1993 þegar Alþingi fullgilti EES-samningnum varðandi alla þá útlendinga sem stóðu utan þess. Þrátt fyrir að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið hefði í for með sér aukna möguleika fyrir ríkisborgara aðildarlandanna til að hreyfa sig frjálst á íslenska vinnumarkaðnum þá var um leið dregið úr tækifæmm annarra innflytjenda til að gera hið sama. Samkvæmt lögum um breytingar á lagaákvæðum á sviði heilbrigðis- og tryggingamála frá 1993 var rétturinn til að öðlast starfsleyfi sem sjúkraþjálfi, iðjuþjálfi og sjóntækjafræðingur háður ríkisfangi á Islandi eða í aðildarlöndum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.48 Aðrir útlendingar þurftu á ný að fá sérstakt leyfi frá heilbrigðisráðherra til að fá að stunda þessi störf. í greinargerð sem fylgdi með frumvarpinu segir: „Rýmkun laga nr. 23/1991 þykir óþarflega mikil og því ákveðið að erlendir ríkisborgarar, aðrir en EES-borgarar, skuli sæta óbreyttum reglum frá því sem var fyrir gildistöku laganna nr. 23/1991.“49 Þessu samkvæmt vom sett lög árið 1993 um viðurkenningu á menntun og prófskírteinum sem tryggðu aðeins ríkisborgumm Norðurlanda og EES-landa sama rétt til fullgildingar og Islendingum.50
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.