Sagnir - 01.06.2007, Síða 39

Sagnir - 01.06.2007, Síða 39
Tvær grænlenskar konur komnar til íslands að vinna 1979. Varaskeifur, stuðpúðar eða brú milli framboðs og eftirspumar íjalla aðeins um tíunda áratug 20. aldar. Hins vegar gefa þessi gögn einhveija hugmynd um stöðu innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði þar sem lagaumhverfið, sem margir þeirra bjuggu við á tíunda áratugnum, var að mörgu leyti óbreytt frá því fyrstu lög um atvinnuréttindi útlendinga voru sett árið 1951. Sigurður Guðmundsson, fyrrum forstöðumaður byggðaþróunarmála hjá Þjóðhagsstofnun, hélt á árunum 2000 og 2001 nokkra fyrirlestra um erlenda ríkisborgara og vinnumarkaðinn.64 í einum þeirra segir hann: „Tilkoma útlendinga losar um vinnuafl heimamanna sem þá ræðst til verðmætari starfa.“65 Enda tryggðu landslög lengi að útlendingar réðust aðeins til þeirra starfa sem íslendingar vildu ekki vinna. Vinna var jafnvel ein helsta forsenda þess að útlendingum var hleypt inn í landið þar sem hún hefur verið hjá flestum eina leiðin til þess að sanna að þeir gætu séð fyrir sér og sinum eins og lög um eftirlit með útlendingum kröfðust.66 Er ekki að undra að atvinnuþátttaka útlendinga sé mun hærri á íslandi en á hinum Norðurlöndunum enda er hún síst minni en hjá landsmönnum öllum.67 Hins vegar voru meðaltekjur útlendinga árið 2000 aðeins 70% af meðaltekjum allra framteljenda á íslandi sem skýrist að hluta til af því að útlendingar voru gjamari á að hverfa af landi brott áður en ffamtalsárið var liðið.68 Þó er ekki hægt að skýra þennan gríðarlega launamun eingöngu með brottflutningi fólks sérstaklega þar sem rannsóknir Sigurðar hafa leitt í ljós að fólk frá ríkjum Asíu var um aldamótin 2000 með aðeins 60% af tekjum landsmanna allra á meðan brottflutningur asískra innflytjenda var með minna móti.69 Þessar tölur segja þó ekki alla söguna því samkvæmt rannsókn Rannveigar Þórisdóttur, Sigurlaugar Hmndar Svavarsdóttur og Jóns Gunnars Bemburg frá 1997 var algengt að útlendingar ynnu langan vinnudag og væra í fleiri en einni vinnu sökum þess að þeim stóðu einungis ófaglærð störf til boða.70 Þvi hlýtur ofannefndur launamunur að skýrast að miklu leyti af því að útlendingar vora og era í verr launaðri vinnu enda er gert ráð fyrir því í lögum að íslendingar njóti forgangs í hvívetna. Því má gera ráð fyrir því að alltaf hafi verið einhver mismunur á meðaltekjum útlendinga og meðaltekjum landsmanna allra sem hefur að einhveiju leyti stafað af lögbundinni mismunun þeirra á vinnumarkaði. Gunnar E. Sigurðsson rannsakaði þátttöku útlendinga á íslenska vinnumarkaðnum árið 1992 áður en hinum almenna erlenda launþega gafst færi á að öðlast óbundið atvinnuleyfi. Þar komst hann að því að útlendingar dreifðust afar misjafht á einstakar starfsgreinar. 22,4% útlendinga störfuðu við fiskvinnslu og 10,5% við heilbrigðisþjónustu. Jafhffamt leiddi rannsókn Gunnars í ljós að 64,4% útlendinga unnu ófaglærð störf.71 Varðandi fjölda útlendinga í fiskvinnslu færir Gunnar rök fyrir því að veraleg eftirspum hafi verið eftir vinnuafli sem aðeins að litlu leyti tókst að fullnægja með því fólki, sem gat ráðið sig ffjálst til starfa, en það vora aðeins íslendingar og aðrir Norðurlandabúar árið 1992.72 Bendir það til þess að íslenskum stjómvöldum hafi tekist það ætlunarverk sitt að beina útlendingum í þau störf sem íslendingar fengust ekki til að vinna. Einnig má gera ráð fyrir því að mörg þessara starfa hafi verið í lægri launaflokkum og því orðið til þess að meðaltekjur erlendra ríkisborgara vora 70% af meðaltekjum allra landsmanna árið 2000. Ekki er hægt að fullyrða neitt um að hve miklu leyti ástandið var sambærilegt fyrir 1990 þar sem litlar sem engar heimildir finnast fyrir það tímabil. Þar sem skilyrði fyrir útgáfu atvinnuleyfa hafa lítið breyst frá 1951 má þó gera ráð fyrir að útlendingar hafi ávallt ráðist að þónokkra leyti til ófaglærðra starfa óháð menntun og einnig að þeir hafi haft lægri laun en að landsmeðaltali. Þetta vekur upp spumingar um hreyfanleika útlendinga á íslenskum vinnumarkaði. Þorri starfandi útlendinga hér á landi fram til 1994 var á tímabundnum atvinnuleyfum sem vora háð því að ekki fengist íslendingur til starfans. Því hefur hreyfanleiki útlendinga á íslenskum vinnumarkaði verið lítill framan af þar sem ekkert þýddi að keppa um þau störf sem Islendingar sóttust eftir. Eftir 1994 gerðu lögin ráð fyrir auknum hreyfanleika með því að gera hinum almenna erlenda launþega kleift að öðlast sjálfstætt atvinnuleyfi eftir þriggja ára lögheimilisvist. Sagnir - 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.