Sagnir - 01.06.2007, Side 76

Sagnir - 01.06.2007, Side 76
Áhrif kristniboðs á samfélag og menningu í Pókothéraði, 1978-2006 samkomur á sunnudögum svo hægt væri að prédika með aðstoð túlks. Fyrsta samkoman var haldin í janúar 1979. A hana mættu tólf, allt karlmenn. Þegar þeir voru inntir eftir því hvar konumar væru sögðu þeir að fyrst myndu þeir hlusta á boðskapinn til að athuga hvort þeim líkaði hann. Þá mættu konumar koma og hlusta. Þeim féll boðskapurinn í geð og ákváðu þeir að óhætt væri að senda konumar á samkomu.13 Þetta er gott dæmi um þá karlamenningu sem er á svæðinu. Konur hafa lítið vald og em algjörlega háðar samþykki karlmanna á öllum sviðum. Hins vegar er athyglisvert að hafa í huga að þessir fyrstu samkomugestir kristniboðanna vom forvitnir um trú og siði aðkomumanna á svæðinu og óskuðu sjálfir eftir fræðslu. Frá því kristniboðsstarfið hófst í Cheparería árið 1978 hefur myndast þar þéttbýliskjami. Upphaflega var í Cheparería lítil stjómunarmiðstöð með einni húsaröð kringum markaðstorgið og ekki var hægt að versla þar nema einu sinni í viku. Nú er þar þétt byggð og fjöldi skólanema setur svip á bæinn. Kristniboðið byrjaði smátt en nú hafa myndast öflugir söfnuðir á mörgum stöðum og kirkjur hafa verið byggðar. Starfið óx svo hratt að byggja þurfti tvær aðrar stöðvar á svæðinu, í Kongelai og Kapengúría.14 Kongelai er hreppur sem liggur aðeins nokkra kílómetra ffá landamærum Uganda og búa þar um 20.000 manns. Arið 1980 vom kristniboðamir beðnir að koma til Kongelai og hefja störf þar. Ahugi heimamanna var mikill en kristniboðamir treystu sér ekki til að koma oftar en einu sinni í mánuði. Mikill vöxtur var í starfinu svo kristniboðar lögðu áherslu á að mennta sem flesta heimamenn til að sinna leiðtogastörfum á ýmsum sviðum.15 Kristniboðið í Kapengúría, höfuðstað Pókothéraðs, hófst árið 1983. Akveðið var að reisa biblíuskóla og vom fyrstu námskeiðin haldin árið 1984.16 Námskeiðin hafa verið mjög vinsæl í og árið 2005 vom haldin kvennanámskeið, námskeið fyrir sunnudagaskólakennara, kórstjómendur og leiðtoga í unglingastarfi kirkjunnar. Geta má þess að þar luku sautján nemendur eins árs prédikaranámi haustið 2004. Kvennanámskeið hafa gengið mjög vel og starfa margar konur í kirkjuumdæmunum. I hverjum söfnuði hittast konumar vikulega þó að margar búi við erfið kjör og mikla vinnu. Þær sækja þessi námskeið til að fá fræðslu um kristna trú og til að fá hagnýta fræðslu sem nýtist þeim í daglegum störfum. Oft hefur verið skortur á fjármagni til að greiða ferðakostnað en konumar hittast þrátt fyrir það. Leiðtogar í kvennastarfinu hafa sótt mörg hagnýt námskeið sem haldin hafa verið í Fræðslumiðstöð kirkjunnar í Kapengúría. Eiginkonur prédikara og presta sækja þau líka. Kennarar við Fræðslumiðstöðina em flestir innlendir en einnig hafa norskir og íslenskir kristniboðar verið þar við störf. Undanfarin misseri hafa verið miklar framfarir í menntunarmálum og nú vill Háskólinn í Naíróbí bjóða upp á fjamám í Kapengúría. Óskað hefur verið eftir að fá að nota kennslustofur Fræðslumiðstöðvarinnar og bókasafnið. Vonir standa til að langtímasamningar náist.17 Af þessu frelsi kristniboðanna til að mennta heimamenn á ólíkum sviðum má ráða að stjómvöld samþykki störf þeirra. Það birtist meðal annars í viðbrögðum Háskólans í Nairóbí sem kallar eftir samstarfi við fræðslusetur kristniboðanna. I nýlegri skýrslu frá kristniboðsstarfinu í Pókot kemur fram að frá árinu 1979, þegar fyrsti Pókotmaðurinn var skírður, hafi um 11.500 einstaklingar verið skirðir. Þegar haft er í huga að fyrstu árin vom aðeins tveir til fjórir íslenskir kristniboðar á 250.000 manna svæði telst árangurinn umtalsverður. Auk kristniboðanna í dag starfa tveir heimamenn sem prestar í Pókot en þeir hafa lokið fullgildu guðfræðinámi. Þá starfa sex prestar sem lokið hafa styttra námi og fjórir aðstoðarprestar eða djáknar sem mega skíra, auk fjölda prédikara sem lokið hafa tveggja ára prédikunamámskeiði.18 Arið 2003 vom söfnuðimir í lútersku kirkjunni í Pókot orðnir 175 og að auki em um 30 staðir þar sem boðun fer fram. í þau tæplega þrjátíu ár sem íslenskt kristniboð hefúr verið í Pókot hafa miklar framfarir orðið 72 - Sagnir Kirkjubekkur. á ýmsum sviðum. Þær em meðal annars fólgnar í aukinni menntun á sviði hreinlætis, sjúkdóma og heilsugæslu. Lífslíkur hafa aukist og bamadauði minnkað. Heilsugæslustöðvar og skólar hafa veitt íbúum ný tækifæri og opnað þeim nýja möguleika. Ymis gildi íbúanna hafa breyst og hafa þau haft mikil áhrif á lifnaðarhætti og félagslega stöðu fólks. Til að mynda hefúr staða konunnar breyst mikið þar sem hún var einskis metin áður. Því má segja að áhrif kristniboðanna séu bæði trúarleg og félagsleg.19 Það má ætla að fleira en trúin komi þama við sögu, enda er ljóst af skýrslum kristniboða að rekja má aukninguna einnig til bætts heilsufars, aukinnar menntunar og breyttra lifnaðarhátta. Ibúar virðast kunna að meta hið almenna hjálparstarf sem fylgir kristniboði í dag. Unnið er að því að minnka fjárhagslegan stuðning við kristniboðið um 10% á ári því áætlanir em uppi um að gera kirkjuna í Pókot fjárhagslega sjálfstæða. Þjálfun stjómenda stendur yfir. I dag vinna kristniboðar aðeins sem ráðgjafar og leiðbeinendur en em ekki bundnir við ákveðna sókn.20 Viðhorf íslenskra kristniboða og heimamanna til trúboðs og menningar Ragnar Gunnarsson kristniboði hefúr starfað lengi í Kenýu. Hann svarar gagnrýnisröddum um eyðileggingarstarfsemi kristniboða á þann hátt að kristniboð hafi óhjákvæmilega breytingar í för með sér og leggur áherslu á að honum finnist þær breytingar vera til góðs. Máli sínu til stuðnings segir hann ffá þeim náungakærleik sem fólk fyllist með kristinni trú, sem ekki hafi verið til staðar áður. Einnig nefnir hann breytta stöðu konunnar hjá þeim ijölskyldum sem taka kristni. Aður vom konur vinnukraftar, húsdýr og útungunarvélar en með kristni læra karlmenn að virða konur sínar. Ragnar segir að gífúrlegar breytingar hafi átt sér stað í Kenýu síðustu ár og að aðeins megi rekja lítið brot til kristniboðanna.21 Athyglisvert er að Ragnar skuli benda á að breytingamar í samfélaginu megi rekja til fleiri þátta en kristniboðs og sýnir það að margir samverkandi þættir hafa áhrif á menningu, svo sem aukin áhersla stjómvalda á menntun og heilsugæslu. Það verður einnig að hafa í huga að þeir jákvæðu þættir, sem Ragnar telur upp, svo sem náungakærleikur og virðing fyrir konum, em áhrifameiri en Vesturlandabúar geta gert sér í hugarlund, einkum vegna hinnar ríkjandi heimsmyndar um ill öfl, ótta og völd karlmanna í samfélaginu. Ef þessar breytingar koma ró á huga manna og samfélagsins í heild hlýtur það að vera til góðs, svo framarlega sem aðrir í samfélaginu ofsækja ekki hina ný-kristnu fyrir villutrú. Ekki skal fullyrt að þetta sé allt verk kristniboðanna en þar sem þeir em einir á svæðinu að boða þessi gildi er ekki óhugsandi að þeir eigi þátt í þessum breytingum. Fyrsti íslenski kristniboðinn í Kenýu, Skúli Svavarsson, sem starfað hefur með hléum í landinu frá 1978 finnst staðhæfingin um að kristniboðar skemmi menningu fáránleg. Þeir sem haldi henni fram þekki ekki til nútímakristniboðs. Að hans mati vinnur kristniboð að því

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.