Sagnir - 01.06.2007, Side 83

Sagnir - 01.06.2007, Side 83
Islenzkar Gramóphón -plötur home entertainment causes sales of phonograph records to plummet in the early 1930s. Hér er vitnað í Bandaríkjamennina Kurt og DianeNauck, uppboðshaldara, þar sem þau lýsa samdrættinum í plötuútgáfu við upphaf heimskreppunnar í heimalandi sínu. Víst má telja að tilkoma Ríkisútvarpssins árið 1930 hafi haft mikil áhrif á íslenska plötuútgáfu líkt og reynslan hafði sýnt erlendis. Að sjáfsögðu lék heimskreppan -ÍL 1 -0- -too <o r^-oo c - cscs CS CSC-I CS CS CSC-4 CO COCO COCO CO COCO CO CO ’ einmgstort utver ogsamspi uejidariitgáfa á íslenskum 78 snúninga plötum eingöngu fyrir íslenskan markað 1910-1958. þessara tveggja þátta hefur án jjeimn^; Plötuskrá Trausta Jónssonar og Ólafs Þorsteinssonar: efa orðið hljómplötuútgáfu hér skrá yfir islenskar 78 snúninga plötur. Maí 2006. á landi þungbært. Arið 1930 fékk Fálkinn tæknimenn hingað til lands frá Columbia-útgáfufélaginu í Englandi til að hjóðrita plötur í tilefni af Alþingishátíðinni. Afraksturinn var útgáfa á 40 plötum með ýmsu efni. Tæknimenn ffá Columbia voru svo fengnir öðru sinni árið 1933, á vegum Fálkans en að frumkvæði Ríkisútvarpsins og í samvinnu við stofnunina. Af upptökunum sem gerðar voru í seinna skiptið voru gefnar út rúmlega 50 plötur. Óvíst er hvort þetta framtak hafi borgað sig en plötusala dróst verulega saman um þetta leyti. Haraldur Ólafsson lét hafa eftir sér í viðtali í Morgunblaðinu að sala á íslenskum plötum hafi verið sáralítil á árunum 1933-1940 og þess vegna hafi plötusteypumótin verið eyðilögð. Engar íslenskar plötur voru gefnar út sérstaklega fyrir íslandsmarkað árin 1934 og 1935. Kreppan á íslandi náði fram í hemám en langur tími átti eftir að líða þar til plötuútgáfan næði sér á strik að nýju. Líkt og í fyrri heimsstyrjöld vom engar íslenskar hljómplötur gefnar út fyrir íslenskan markað í seinna stríði. Það vom einungis listamennimir Elsa Sigfuss og Stefán íslandi sem gáfit út plötur í seinni heimsstyrjöld og þá aðeins fyrir danskan markað en þar i landi áttu þau farsælan söngferil. Plötuútgáfa í Danmörku var erfið í striðinu þótt útgáfan hafi verið i nokkurri sókn framan af. Þegar leið á stríðið hrundi plötuútgáfan og var hún nokkur ár að ná sér á strik að nýju. Þar kom einnig inn í hráefhisskortur á efninu, „shellack-inu,“ og þurfti þess vegna, a.m.k. á tímabili, að skila inn gamalli plötu til bræðslu þegar ný var keypt. Haraldur Ólafsson, forstjóri Fálkans, sagði í blaðaviðtali eftirfarandi; „1933-1945 vom engar plötur gefhar út vegna kreppunnar og styijaldarinnar, en eftir stríð hefur Fálkinn gefið út talsvert af plötum.“ Það er rétt að Fálkinn hafi ekki gefið út neinar plötur á þessu tímabili en málið er bara að fyrirtækið setti ekki neinar plötur á markað fyrr en 1951. Fálkinn hafði fengið umboðið fyrir HMV árið 1946 og plötur Guðmundar Jónssonar sem komu út árið 1949 á merkjum HMV vom gefnar út af Hljóðfæraverslun Sigríðar Helgadóttur með leyfi Fálkans. Fálkinn hafði gefið út nokkrar plötur á merkjum HMV með Stefáni íslandi, Maríu Markan og Karlakór Reykjavíkur á ámnum 1936-1938 en það mun hafa verið gert að tilstuðlan Ríkisútvarpsins og á þeim tíma hafði Hljóðfæraverslun Katrínar Viðarumboðið fyrir HMV. Þess má geta að árið 1946 höfðu samskipti útvarpsins og SG varðandi plötuviðskipti gengið treglega, væntanlega vegna upplausnarástandsins í Danmörku fyrst eftir stríð. í febrúar 1946 fékk útvarpsstjóri þau skilaboð frá SG að Island heyrði nú beint undir höfðustöðvar Gramophon Co., í Englandi. Fóm nú öll samskipti varðandi plötuútgáfu á merkjum HMV beint í gegnum England. Hlutdeild Ríkisútvarpsins í plötuútgáfu Þótt leiða megi að því líkur að stofnun Ríkisútvarpsins hafi orðið plötuútgáfu á íslandi erfið reyndist þessi aðalkeppinautur hinnar íslensku hljómplötu einnig helsti velgjörðarmaður hennar. Sem fyrr segir kom útvarpið snemma að plötuútgáfú þegar það hafði frumkvæði og samvinnu við Fálkann um upptökur hér á landi árið 1933. Auðvitað gat útvarpið ekki verið án hljómplatna því ekki var hægt að hafa ótakmarkaðan lifandi tónlistarflutning. Gögn úr skjalasafni útvarpsins benda til þess að útvarpið hafi staðið fyrir þeim plötum sem gefnar vom út árið 1937 með Karlakór Reykjavíkur. Þar sem Stefán íslandi söng hið fræga lag „Ökuljóð" með Karlakór Reykjavíkur er ekki ólíklegt að útvarpið hafi einnig komið að öðmm plötum Stefáns frá þessu ári. Sama ár söng María Markan inn á plötur sem fyrir milligöngu útvarpsins vom gefnar út árið eftir. Hér er vitnað í bréf Jónasar Þorbergssonar, útvarpsstjóra, til Maríu frá árinu 1947, líklega varðandi plötur hennar sem teknar vom upp 1933 og 1937: „Nú hefir raunin því miður orðið sú, að því nær ekkert er til eftir þig nema plötur þær, sem Ríkisútvarpið hefir í tvö skipti látið taka upp og gefa út að vemlegu leyti á sinn kostnað." Augljós skortur útvarpsins á íslenskum hljómplötum hefúr orðið til þess að það hefur ákveðið að blanda sér enn frekar í útgáfúmál. Eftir stríð fór útvarpið að huga að því að koma sér upp safni af hljómlist á plötum. Arið 1947 hafði útvarpið uppi áform um umfangsmiklar upptökur á tónlist, þá sérstaklega kórsöng og einsöng. Gögn úr skjalasafni útvarpsins staðfesta að útvarpið var í samningaviðræðum við fjölmarga listamenn, þar á meðal Stefán Islandi, Sigurð Skagfield, Einar Kristjánsson og Karlakór Reykjavíkur. Fjöldi upptaka var gerður og hafa þær líklega staðið yfir fram til ársloka 1948 en í desember það ár falaðist útvarpið eftir samvinnu við Fálkann um útgáfu á plötunum. Þar segir orðrétt í bréfi útvarpsstjóra stílað á Fálkann: Eins og við höfúm margsinnis rætt um, er það ætlun Ríkisútvarpsins að gefa út til sölu, innanlands og ef til vill í útlöndum, sitthvað af þeim plötum, sem upp hafa verið teknar hér í útvarpinu og kunna að verða teknar upp í ffamtíðinni. Leyfi ég mér hér með að Sagnir - 79

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.