Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Blaðsíða 31
DV Sport FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 31 5 19 16 JOHN TERRY Einn áreiðanlegasti miðvörðurinn í boltanum í dag. Býr yfir miklum leikskilningi og gefur sig allan fram í leikinn. Stjórnar vörn Chelsea eins og hershöfðingi og er auk þess fyrirliði enska landsliðsins. Það kom í ljós á síðustu leiktíð að þegar Terry er meiddur er stórt skarð í vörn Chelsea. STEVEN HOWARD Howard hefur verið lengi að og ávallt spilað í neðri deildum á Englandi. Hann var keyptur til Derby í fyrra sumar og skoraði sextán mörk á síðustu leiktíð, þar af tvö mörk í undanúrslitaleik umspilsins gegn Southamp- ton. Howard er mikill Newcastle aðdáandi og fagnar venjulega líkt og Alan Shearer STJARNAN SPÁ DV DV Sport telur að neðasta sætið sé frátekið og í eigu Derby County. Góður líkur eru á nýju meti, hvað slakann árangur varðar. 20 CHELSEA Stund sannleikans. Ljóst er að Roman Abramovich sættir sig ekki við neitt annað en sigur í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð. Orðrómur var uppi um að Jose Mourinho yrði rekinn og nú kemur í ljós hvort stjórnin gerði rétt með að halda honum í starfi. SPÁ DV Hinir djúpu vasar Abramovich virðast vera farnir að grynnka. Aðeins einn dýr leikmaður kom til félagsins í vetur, þrátt fyrir að hafa misst af meistaratitlinum á síðustu leiktíð. Ef að leikmenn sem náðu sér ekki á strik á síðustu leiktíð finna sitt gamla form í vetur, verður liðið illviðráðanlegt. KOMNIR: Florent Malouda, Tal Ben-Haim, Claudio Pizarro, Steven Sidwell. HEIMAVÖLLURINN Chelsea leikur heimaleiki sína á Stamford Bridge sem staðsettur er í Fulham-hverfinu í London. Völlurinn tekur 42,055 áhorfendur og var byggður árið 1876. 2 Andriy Shevchenko var með ólíkindum slakur á síðustu leiktíð og er langt frá því að borga upp það fé sem Chelsea borgaði AC Milan fyrir hann. Það verður fróðlegt að sjá hvort hann nær að snúa við blaðinu á sínu öðru tímabili. Ef hann nær sér á strik verður Shevchenko illviðráðanlegur. FYLGIST MEÐ STJARNAN STJÓRINN JOSE MOURINHO: Enginn efast um hæfileika Mourinho sem knattspyrnu- stjóra. Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félagsliði og hefur einstaka hæfileika á að beina athyglinni frá sínum leikmönnum og létta þar með ákveðinni pressu af þeim. Mikil pressa er á Mourinho á þessari leiktíð því Abramovich vill titla. FARNIR: Richard Jackson, Steven Cann, Paul Boertien, Lee Camp, Lewin Nyatanga, Ryan Smith, Morten Bisgaard, Lee Grant, Paul Peschisolido, Seth Johnson. DERBY Derby á gríðarlega erfitt tímabil fyrir höndum og flestir spá liðinu rakleitt niður í næst efstu deild á nýjan leik. Derby kom öllum á óvart með því að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Breytingarnar á liðinu eru miklar. HEIMAVÖLLURINN Pride Park var byggður 1996 og tekur 33,597 áhorfendur. Fyrr í sumar voru kynntar áætlanir um að stækka völlinn fyrir tímabilið 2008- 2009. Eftir það mun Pride Park taka 44 þúsund áhorfendur. FYLGIST MEÐ STJÓRINN BILLY DAVIES: Skotinn Billy Davies tók við Derby County fyrir ári síðan og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Eftir að hafa komið Derby upp í úr- valsdeildina voru sögusagnir um að Davies vildi yfirgefa félagið. Hann sló hins vegar á þær sögusagnir með því að framlengja samning sinn við Derby um eitt ár. Robert Earnshaw er fæddur 6. apríl 1981 í Mufulira í Zambíu. Hann er eini leikmaðurinn sem skorað hefur þrennu í úrvalsdeildinni, 1. deildinni, 2. deildinni, 3. deildinni, ensku bikarkeppninni, enska deildarbikarnum og í landsleik. MIKEL ARTETA Átti frábært tímabil síðasta vetur. Þá lék hann yfirleitt í stöðu kantmanns og leysti þá stöðu einstaklega vel af hólmi. Lesendur skysports. com kusu Arteta miðju- mann ársins, meðal annars fram yfir Cristiano Ronaldo. PAPA BOUBA DIOP Diop fæddist 28. janúar 1978 í Dakar, höfuðborg Senegal. Hann er 194 cm á hæð og er fyrirliði senegalska landsliðsins. Diop er kallaður skápurinn af samherjum sínum hjá Fulham, vegna stærðar sinnar. Oftar en einu sinni hefur heyrst sá orðrómur að Chelsea, Manchester United og STJARNAN SPÁ DV Lawrie Sanchez er í óðaönn að byggja upp sitt eigið Fulham lið. Þrátt fyrir ótrúlegan árangur í undankeppni EM, þá eru þeir norður-írsku leikmenn sem Sanchez hefur verið að fá til sín ekki til þess fallnir að lyfta félaginu upp deildina. Fulham verður í vandræðum í vetur og sleppa naumlega við fall. 17 EVERTON Everton hefur náð að festa sig í sessi sem eitt af topp tíu liðum á Englandi undanfarin ár eftir frekar dapurt gengi á tíunda áratug síðustu aldar. Everton endaði í sjötta sæti á síðustu leiktíð, ekki síst fyrir öflugan varnarleik. SPÁ DV Everton virðist alltaf koma á óvart. Með færan þjálfara og lið sem gefst aldrei upp. Moyes er naskur á að finna leikmenn sem henta liðinu vel og nú er að sjá hvort kaup hans í sumar reynist heillavænleg. Evrópusæti hjá Everton. KOMNIR: Leighton Baines, Steven Pienaar, Phil Jagielka. HEIMAVÖLLURINN Goodison Park er einn sá sögufrægasti í enska boltanum. Byggingum lauk árið 1892 og í dag tekur hann 40,569 áhorfendur, alla í sæti. Félagið er með áætlanir um að byggja nýjan völl og stuðningsmenn félagsins fá að kjósa um staðsetningu hans. 7 Victor Anichebe. 19 ára nígerískur sóknarmaður sem kom upp úr unglingaliði Everton. Hann er fljótur og kraftmikill leikmaður sem fæddist í Lagos, höfuðborg Nígeríu, 23. apríl 1988. Sparkspekingar á Englandi spá Anichebe bjartri framtíð. FYLGIST MEÐ STJARNAN STJÓRINN DAVID MOYES: Íslandsvinurinn David Moyes hefur staðið sig vel sem knattspyrnustjóri Everton og komið stöðugleika á gengi liðsins. Moyes er ekki vanur að leita út fyrir Bretlandseyjar eftir nýjum leikmönnum og þykir klókur í kaupum sínum. Moyes er talinn vera einn besti ungi knattspyrnustjór- inn í bransanum, en hann er 44 ára. FARNIR: Franck Queudrue, Michael Brown, Heiðar Helguson, Mark Crossley, Tomasz Radzinski, Mark Pembridge, Claus Jensen. FULHAM Miklar hræringar hafa verið í herbúðum Fulham í sumar. Lawrie Sanchez tók við liðinu undir lok síðustu leiktíðar og ljóst er að hann ætlar sér að byggja liðið nánast upp frá grunni. Liðið hefur misst nokkra máttarstólpa úr liðinu frá síðustu leiktíð. HEIMAVÖLLURINN Craven Cottage tekur 24,600 áhorfendur og var byggður árið 1896. Búningsher- bergi liðanna eru ekki undir stúkunni eins og á flestum öðrum völlum, heldur í húsi við hliðina á vellinum. Ástæðan er sú að það gleymdist að setja búningsher- bergi í teikningarnar. FYLGIST MEÐ STJÓRINN LAWRIE SANCHEZ: Lawrie Sanchez náði merkilegum árangri með landslið Norður-Íra og í kjölfarið varð hann eftirsóttur í stöðu knattspyrnustjóra. Eftir að Chris Coleman var rekinn í apríl á þessu ári var Sanchez ráðinn til starfa. Fulham er fjórða félagsliðið sem Sanchez stýrir. Hin eru Sligo Rovers, Wycombe Wanderers og Wimbledon. Jimmy Bullard varð fyrir því óláni að brjóta hnéskel og í kjölfarið slíta krossband á síðustu leiktíð og náði aðeins og koma við sögu í fjórum leikjum. Hann skoraði hins vegar tvö mörk í þessum fjórum leikjum og gæti reynst Fulham drjúgur á þessari leiktíð. STEVEN GERRARD Miðjumaður á heimsmælikvarða. Hann hefur skorað ófá mörkin sem skipt hafa sköpum fyrir Liverpool á síðustu árum og oft á tíðum haldið liðinu á floti. Gerrard hefur allt til bruns að bera. Hann er ákveðinn, fljótur, skotviss, með góðar sendingar og vinnur varnarvinnuna auk þess vel. Lykilmaður í liði Liverpool. LIVERPOOLVæntingarnar hafa sjaldan eða aldrei meiri hjá Liverpool en fyrir þessa leiktíð. Liverpool splæsti í Fernando Torres fyrir metfé og nú ætla menn þar á bæ að vinna meistaratitilinn, í fyrsta sinn í átján ár. SPÁ DV Væntingarnar eru miklar á Anfield. Margt veltur á byrjun tímabilsins hjá Liverpool, sem hefur ekki verið góð undanfarin ár. DV Sport telur Liverpool sé enn skrefi á eftir Chelsea og Manchester United, þrátt fyrir að stöðugleiki liðsins verði meiri í deildinni í vetur en á síðustu leiktíð. KOMNIR: Lucas Pezzini Leiva, Ryan Babel, Yossi Benayoun, Ryan Crowther, Andriy Voronin, Fernando Torres, Nikolaj Mihajlov, Sebastian Leto. HEIMAVÖLLURINN Anfield er einn frægasti knattspyrnuvöllur heims og stemningin sem getur myndast þar á góðum degi er ólýsanleg. Anfield tekur 45,362 áhorfendur. Þetta verður að öllum líkindum næst síðasta tímabil Liverpool á Anfield. 3 Fernando Torres var keyptur frá Atletico Madrid fyrir 20,5 milljónir punda, sem samsvarar um 2,6 milljörðum króna. Það er hæsta upphæð sem Liverpool hefur borgað fyrir leikmann. Torres tók á sig launalækkun til að ganga í raðir Liverpool. Hann gæti verið sá leikmaður sem Liverpool hefur vantað. Hver veit? FYLGIST MEÐ STJARNAN STJÓRINN RAFAEL BENITEZ: Benitez er að hefja sitt fjórða tímabil við stjórnvölinn hjá Liverpool og nú er mönnum þar á bæ farið að langa í meistara- titilinn. Benitez hefur gengið erfiðlega að finna stöðug- leika í deildinni en það virðist flest ganga honum í hag í Evrópukeppn- inni. Miklum fjármunum hefur verið eytt og það eykur pressuna á stjóranum. KOMNIR: Andy Griffin, Lewis Price, Claude Davis, Andy Todd, Tyrone Mears, Robert Earnshaw. FARNIR: Robbie Fowler, Jerzy Dudek, Craig Bellamy, Djibril Cisse, Boudewijn Zenden, Florent Sinama Pongolle. KOMNIR: Hameur Bouazza, Adrian Leijer, Lee Cook, David Healy, Paul Konchesky, Chris Baird, Diomansy Kamara, Steven Davis, Aaron Hughes. FARNIR: James Beattie, Gary Naysmith, Richard Wright, Alessandro Pistone. FARNIR: Ben Sahar, Michael Mancienne, Jimmy Smith, Khalid Boulahrouz, Yves Makaba-Makalamby, Nuno Morias.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.