Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Blaðsíða 54
Mér finnst erfitt að dæma leiki á Play- station 3. Það er vegna þess að leikir á tölvuna eru svo svakalega flottir og stórbrotnir, að gamall PS2-hundur eins og ég ýlfrar bara. Það er því erfitt að lamast ekki af lotningu og skella fjórum til fimm stjörnum á alla leiki, þar sem það vantar einhvern leik, sem setur standardinn fyrir hina. Darkness er mjög góður leikur. Án nokkurs efa, næstbesti leikurinn sem ég hef spilað á PS3, á eftir Re- surection the fall of man. Leikurinn er byggður á myndasögu og fjallar um mafíumorðingjann Jackie Esc- ado, sem lendir í djúpum á 21 árs af- mælinu sínu þegar einhver djöfull heltekur hann og Paulie frændi og mafíuforingi ákveður að lóga hon- um. Upphefst þá svakaleg hefndar- för, með öllu tilheyrandi. Leikmenn hlaupa um götur New York-borgar með eina 357 Magnum í annarri og Glock í hinni. Þegar maður hefur svo djöflast nógu mikið í NY, fer maður að flakka á milli heima, en djöf- ullinn sem hefur heltekið mann kallast The Darkness og býr í einhverjum spúkí undirheimum. The Darkness er toppleikur. Reyndar varð ég nokkrum sinnum alveg skít- hræddur í honum, sem er ekki kúl. Leikurinn spilar líka eins og RPG leikur af og til. Menn þurfa að afla upplýsinga og tala við einhverja ómaga til þess að fá réttar upplýs- ingar. Grafíkin er geðsjúk, sem ger- ir leikinn að algjöru konfekti. Helsti galli leiksins þótti mér vera djöfull- inn sem heltekur mann, en ég var lengi að læra á kerfið og fannst það pirrí pú. Er það ekki bara? dóri dna segir: & U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s föstudagur 10. ágúst 200754 Helgarblað DV leikirtölvu Worms Open Warfare 2 - NDS/PSP silverfall - PSP darkness - PS3/XboX360 Ninja gaiden sigma - PS3/XboX360 ratatouille - PC/PSP/PS2/PS3/XboX360/ NDS/GbA/ Wii Kíktu á þessa leiKjatölvur Fyrr í mánuðinum var haldin Blizzcon-ráðstefnan þar sem næstu afurðir tölvuleikja- risans Blizzard voru kynntar. Andlit komin fyrir fifA 08 Knattspyrnumennirnir Ronaldinho, Guillermo ochoa og Josmer „Jozy“ Altidore eru andlit Fifa 08 í ár. Altidore, sem leikur fyrir knattspyrnulið- ið The New York Red bulls, er næstyngsti íþróttamaður sögunnar til þess að komast framan á tölvuleikjahylki frá EA. Sá yngsti var hinn knái Freddy Adu sem var aðeins 16 ára gamall þegar hann var framan á bandarískri útgáfu Fifa 06. Þá hefur það einnig verið tilkynnt að Amare Stoudamire, leikmaður Phoenix Suns, sé andlit NbA Live 08. 80 gb PS3 nú fáAnleg Það er aðeins liðinn mánuður síðan sony-menn tilkynntu útgáfu stærri Playstation 3-tölvu, eða með 80 gb hörðum diski, sem er 20 gb meira en sú fyrri bauð upp á. tölvan er nú komin út í Bandaríkjunum og kostar þar 599 dali. á sama tíma og útgáfa stærri tölvunnar var tilkynnt lækkaði verð Ps3 um 100 dali í Bandaríkjunum og seldust tæplega 100 þúsund eintök í Bandaríkjunum bara í júnímánuði af gripnum. sú ódýra verður enn fáanleg í verslunum í BNa þar til í haust, en þá búast sony- menn við að hún verði einfaldlega uppseld. ÓdýrAri XboX í bAndAríkjun- um Lengi var orðrómur á kreiki um að Microsoft hefði í hyggju að lækka verðið á Xbox-tölvum í bandaríkjun- um. Sú saga reyndist sönn en í vikunni lækkaði Xbox-tölvan í verði til muna. Xbox premium-pakkinn í bandaríkjunum kostar nú 349 dollara, en kostaði áður 399. Xbox-tölvan ein og sér kostar 279 dollara en kostaði áður 299 og Elite-pakkinn lækkaði um 30 dollara. Ekki hafa neinar fregnir um verðlækkanir á gripnum í Evrópu verið gefnar út ennþá. Þann 3. ágúst hélt tölvuleikjafram- leiðandinn Blizzard nokkurs konar ráðstefnu, Blizzcon, þar sem næstu afurðir fyrirtækisins voru kynntar. Það sem mestan áhuga vakti á ráð- stefnunni var næsta viðbót við tölvu- leikinn World of Warcraft. Viðbót- in heitir Wrath of the Lich King. Þeir sem sóttu ráðstefnuna fengu að sjá sýnishorn af viðbótinni, sem býður meðal annars upp á hærra level-þak eða upp í 80, nýja óvini, ný vopn og auðvitað nýtt landsvæði. Svæðið er í anda norrænnar goðafræði. Svæðið heitir Northrend og innan þess svæð- is má finna sérnöfn á borð við How- ling Fjord, Utgard og Valgard, sem eru væntanlega fengin beint úr goða- fræðinni. Leikmenn þurfa að berj- ast við hættulegar vættir, sem minna um margt á víkinga, nema að þær eru miklu stærri og sterkari. Þá má finna persónur í viðbótinni sem heita nokk- uð skemmtilegum nöfnum, til dæm- is Ingvar the plunderer, sem ætti að gleðja íslenska Wow-spilara. Það var þó aðeins brotabrot af viðbótinni sem var til sýnis á Blizzcon, en upplýsing- ar um Death Knight, persónuna sem leikmenn geta valið sér í framtíð- inni, liggja enn ekki fyrir. Útgáfudag- ur fyrir viðbótina hefur ekki verið gefinn út. Á ráðstefnunni voru einn- ig gefnar út frekari upplýsingar um World of Warcraft-kvikmyndina, sem á að koma út árið 2009. Það er kvik- myndafyrirtækið Legendary Pictures sem stendur að framleiðslunni ásamt Blizzard, en kvikmyndin hefur verið á teikniborðinu í tæp fimm ár. Legend- ary hafa framleitt kvikmyndir á borð við 300 og Batman Begins upp á síð- kastið og sögðust þeir ekki ætla að gera dæmigerða tölvuleikjakvikmynd eftir Wow. Myndin á að verða stór- brotin og epísk ævintýramynd í anda Lord of the Rings og hljóðar fjárhags- áætlun myndarinnar upp á 100 millj- ónir dollara. Myndin mun gerast einu ári áður en Wow gerist og fjallar um baráttuna milli góðs og ills. Það verða stórar orustur háðar og engu til spar- að. Á ráðstefnunni var einnig kynntur leikurinn Starcraft 2 og verður betur fjallað um hann síðar. dori@dv.is The Darkness Skotleikur PS3 tölvuleiKur H H H H H Hundarnir ýlfra yfir þessum Darkness skuggaleg grafík. Allt Að gerASt á blizz- con-ráðStefnunni Snjór og rugl Leikmenn verða að komast í gegnum harða náttúru Northrend. Eins og í Noregi Wrath of the Lizard King, næsta viðbót við Wow, er byggð á norrænni goðafræði að einhverju leyti. Forkólfar blizzard og Legendary Pictures ræddu um Wow-kvikmynd- ina sem er væntanleg árið 2009.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.