Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Blaðsíða 11
DV Helgarblað föstudagur 10. ágúst 2007 11
Ung og
læra
glæpi
af þeim
eldri
Glæpum ungmenna fjölgar, þeir verða sífellt
yngri sem komast í kast við lögin og afbrotin
eru orðin alvarlegri en áður. Yfirvöld standa á
hliðarlínunni á meðan ástandið fer versnandi.
Meðferðarúrræði eru ónóg og sérhæft starfs-
fólk vantar. Lykilatriðið er þó að stjórnvöld
setji meira fjármagn í þennan málaflokk.
„Ég vil ekki lesa dóminn hans. Það
er of erfitt,“ segir Baldvin Nielsen,
faðir 19 ára drengs sem nýlega var
dæmdur í 21 mánaðar fangelsi fyrir
fjölda brota. Sonur Baldvins, Sigur-
björn Adam Baldvinsson, afplánar
nú dóm á Litla-Hrauni. Hann á að
baki ofbeldisglæpi, fíkniefnamis-
ferli og þjófnaði. Sigurbjörn er eitt
þrettán ungmenna sem í júlí voru
dæmd fyrir ótal afbrot landshorna
á milli.
Glæpum ungmenna fjölgar,
þeir sem komast í kast við lögin
verða sífellt yngri og afbrotin eru
orðin alvarlegri en áður. Yfirvöld
standa á hliðarlínunni á með-
an ástandið fer versnandi. Með-
ferðarúrræði eru ónóg og sérhæft
starfsfólk vantar. Lykilatriðið er þó
að stjórnvöld setji meira fjármagn í
þennan málaflokk sem virðist ekki
ofarlega á forgangslistanum.
Hópnauðgun í lagi
„Mér finnst mannslífið hafa
misst gildi sitt,“ segir Guðmund-
ur Týr Þórarinsson, betur þekkt-
ur sem Mummi í Götusmiðjunni.
Hann hefur starfað í um fjórtán
ár að meðferðarmálum. „Virðingu
fyrir fólki hefur hrakað. Í ákveðn-
um hópum er í lagi að hópnauðga
strák eða stelpu. Siðferðið í dóp-
istaheiminum hefur aldrei ver-
ið mikið en nú er fólk orðið mun
firrtara. Það er ekkert tiltökumál
að sparka tennurnar úr liggjandi
manni í dag.“
„Við verðum reið þegar við
heyrum af ungu fólki sem virðist
ekki bera virðingu fyrir neinu og
vílar ekki fyrir sér að lemja saklaus-
an vegfaranda eftir að hafa rænt
hann,“ segir Helgi Gunnlaugsson
afbrotafræðingur. „Við upplifum
þessar tilfinningar því við erum
mannleg. Það er þó nauðsynlegt
að við komum til hjálpar þess-
um minnstu meðbræðrum okkar.
Þetta eru þeir sem eiga sárast. Sið-
að samfélag hlýtur að aðstoða þá.“
Erlendur S. Baldursson, deild-
arstjóri hjá Fangelsismálastofnun
ríkisins, staðfestir að yngsti fang-
inn á Litla-Hrauni í dag sé fimmt-
án ára gamall. Hann segir að það
sé ekki fyrr en það telst þaulreynt
að viðkomandi geti ekki dvalist á
meðferðarheimili sem ungmenni
eru send í fangelsi. Frá árinu 2000
hafa sjö einstaklingar undir átján
ára aldri verið dæmdir til fanga-
vistar. Meðaltalið er því einn á ári.
Sjaldgæft er þó að þessi ungmenni
afpláni dóm sinn í fangelsi því þau
eiga þess kost að fara frekar á með-
ferðarheimili.
Vandinn byrjar í leikskóla
Baldvin Nielsen segist ekki hafa
orðið hissa á því að sonur hans
hafi farið út í afbrot. „Við bjuggum í
Danmörku þegar hann var barn og
þar var mér sagt að ef hann fengi
ekki þann stuðning og hlýju sem
hann þyrfti myndi hann fara út
af brautinni.“ Sex ára gamall var
Sigurbjörn Adam greindur með
ADHD, ofvirkni og athyglisbrest.
„Sérfræðingar sögðu mér að þetta
yrði erfitt og þeir höfðu rétt fyrir
sér.“
Sem foreldri er Baldvin ósátt-
ur við kerfið hér á landi. Honum
fannst mun betur haldið utan um
mál sonar síns í Danmörku. Þar
starfaði einn félagsráðgjafi náið
með honum sem hafði góða yf-
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Framhald á
næstu opnu
Ívar aron Hill Ævarsson Er 21 árs síbrotamaður sem
dæmdur hefur verið í 30 mánaða fangelsi fyrir fjölda
brota, þar á meðal fyrir fjársvik og vörslu fíkniefna. Þá
bar hann fyrir dómi að hafa ásamt félögum sínum
tekið þátt í að stela farsíma af blaðbera. ástæða
þjófnaðarins var sú að þá vantaði pening fyrir
fíkniefnum og ákváðu að ræna næsta vegfaranda.