Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Blaðsíða 49
DV Helgarblað föstudagur 10. ágúst 2007 49
Demantamunstur
Hjá mörgum helstu hönnuðum hefur
einfaldleikinn tekið við fyrir sumarið og
haustið með sterkum útlínum og snið-
um. En þrátt fyrir það mátti einnig sjá
að hið svokallaða demantamunstur var
frekar heitt þrátt fyrir ýmis tilbrigði.
Við grátum þig, Vinur
söngvarinn og lagasmiðurinn Lee Hazlewood er
látinn 78 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir að
starfa með söngkonunni Nancy sinatra og eitt af
vinsælli lögum sem hann samdi og útsetti fyrir
hana er lagið these Boots Were Made for Walking.
Persónan silkiVængir
sem heilla
afslappað og flott
Vor- og sumarlínan frá
Burberry Prorsum fyrir karla
var frjálsleg, frekar slikk og
afslöppuð. útlitið á sýning-
unni var alveg í anda
Burberry, vel sniðið og
hreinar línur. túrkisblár, gulur
og rauður brutu upp lúkkið á
móti mjúku litunum, eins og
beis, brúnum og krem. flott
lína fyrir vindasama daga hér
heima.
stefán svan
Nafn? „stefán svan aðalheiðarson.“
Aldur? „28 og hálfs.“
Starf? „Verslunarstjóri Kronkron.“
Stíllinn þinn? „Eins og regnboginn, með gullpotti
við annan endann. Eða kannski margbreytilegur
eftir skapi og dögum.“
Allir ættu að... „fara í gay Pride-gönguna.“
Hvað er möst að eiga? „sokka og skó!“
Hvað keyptir þú þér síðast? „stuttermaskyrtu frá
u-handmade England.“
Hverju færð þú ekki nóg af? „flegnum bolum og
skóm og jökkum, og buxum og... öllu...“
Hvert fórstu síðast í ferðalag ? „Mmm... ég fór til
suður-frakklands með góðum vinum. Þar sem
tilgangurinn var að njóta lífsins til hins ítrasta og
það gerðum við.“
Hvað langar þig í akkúrat núna? „Mig langar í
mjúka fallega peysu frá Marc Jacobs.“
Perlur hér heima, náttúruperlur? „Mývatn,
Breiðdalurinn og Þórsgatan, tvímælalaust.“
Hvenær fórstu að sofa í nótt? „Mjög seint, um 2 því
ég var andvaka en ég fer venjulega að sofa fyrir 12!“
Hvenær hefur þú það best? „Þegar ég er í góðra
vina hópi eða með fjölskyldunni minni. Það er best í
heimi!“
Afrek vikunnar? „Ætli það verði ekki að sjá heila
hryllingsmynd í bíó með vinkonu minni.“
Valentino Just Cavalli
alexander
McQueen gareth Pughundercover
Leður, silki og endalausir þræðir. Minnir einna helst á kóngulóarvef
sem hefur spunnist utan um fyrirsæturnar og gæsahúðin fer um
áhorfandann. Þannig má lýsa línunni frá Iris Van Herpen sem sýndi á
tískupöllunum á tískuvikunni í amsterdam. Það mátti sjá nýja tegund
sem Iris Van Herpen skapaði með glæsibrag og vá hvað silkiþræðirnir
eru girnilegir. Þetta er svo sannarlega heilt ævintýraland sem maður
getur gleymt sért í að skoða smáatriðin og það er spennandi að sjá
næstu línu hjá Iris Van Herpen. Kíkið inn á síðuna og njótið vel:
irisvanherpen.com.