Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Blaðsíða 36
föstudagur 10. ágúst 200736 Sport DV Á hverju ári kemur fjöldi nýrra leikmanna inn í ensku úrvalsdeild- ina. Liðin eyða háum fjárhæðum í nýja menn sem standa sig mis- vel eins og gengur og gerist. BBC valdi tíu leikmenn sem koma nýir inn í deildina og gætu haft mikil áhrif á lið sín á tímabilinu. FERNANDO TORRES – Liverpool Þegar rafael Benítez keypti torres á 3,3 milljarða íslenskra króna, 26 milljónir punda, sendi hann einnig þau óbeinu skilaboð að nú ætlaði Liverpool að vera með í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn. torres er kraftmikill sóknarmaður sem skortir aldrei sjálfstraust. Hann hefur allt sem þarf til að verða stórstjarna í ensku úrvalsdeildinni en mörg lið hafa horft löngunaraugum til hans síðustu ár. stuðnings- menn Liverpool vona að hann nái að aðlagast enska fótboltanum öfugt við landa hans, fernando Morientes. NANI – Manchester United Nani fetar í fótspor Cristianos ronaldo en aftur leitaði sir alex ferguson til sporting Lissabon í Portúgal. Nani er tvítugur að aldri og spáð bjartri framtíð. Paolo sousa, fyrrverandi stórstjarna Portúgala, hefur haldið því fram að Nani gæti orðið besti knattspyrnumaður heims eftir nokkur ár. Nani er sókndjarfur vinstri vængmaður sem býr yfir mikilli tækni og hraða. ferguson hugsar hann líklega sem arftaka giggs í framtíðinni. Miðað við hvað ferguson hefur gert með ronaldo er aldrei að vita hvað hann getur gert úr Nani. ROQUE SANTA CRUZ – Blackburn Það vakti mikla athygli þegar santa Cruz gekk í raðir Blackburn frá þýska liðinu Bayern München. Mark Hughes, stjóri liðsins, fagnaði því að klófesta þennan leikmann sem ætti að vera hættulegur í loftinu í vítateig andstæðinganna. Hann missti sæti sitt hjá þýska liðinu eftir komu Miroslavs Klose og Luca toni. Hann hefur aldrei verið þekktur fyrir mikla markaskorun, skoraði 31 mark í 155 leikjum fyrir Bayern. DAVID NUGENT – Portsmouth Harry redknapp fer oft ótroðnar slóðir og hann fór veg sem fáir þorðu að fara þegar hann borgaði Preston sex milljónir punda fyrir david Nugent. um tíma leit út fyrir að leikmaðurinn færi til Everton en david Moyes vildi ekki borga svona mikið fyrir hann. sunderland tók þátt í baráttunni um Nugent en dró sig fljótlega út úr henni. Margar efasemdaraddir eru uppi um hvort Nugent hafi það sem þarf til að fóta sig í ensku úrvalsdeildinni en hann skortir hraða. Hann á það þó á ferilskránni að hann skoraði fyrir enska landsliðið á síðasta tímabili, þótt það mark hafi verið einstaklega ófagurt. Ef hann slær í gegn yrðu það allavega mikil vonbrigði fyrir þá á goodison Park. YOUNES KABOUL – Tottenham Hotspur roma og Inter á Ítalíu reyndu að hreppa þennan fyrirliða u21 landsliðs frakklands en Martin Jol, stjóri tottenham, var á tánum og fékk hann til sín. Kaboul er snöggur og kraftmikill leikmaður með góða tilfinningu fyrir boltanum, það er ekki mikið meira sem maður þarf að hafa. Hann mun fá harða samkeppni um sæti í liðinu frá þeim Michael dawson og Ledley King. Hann fórnar sér fyrir liðið sem sannast á því að hann missti nokkrar tennur í æfingaleik fyrir skömmu. Ef hann nær að aðlagast enska boltanum fljótt mun hann hafa mikil áhrif á White Hart Lane. CARLOS EDWARDS – Sunderland roy Keane, stjóri sunderland, keypti Edwards frá Luton í janúarglugganum þegar sunderland var í 1. deildinni. Hann var fljótur að borga sig með því að sýna frábæra frammistöðu þessa síðustu fjóra mánuði. Hann skoraði tvö mögnuð mörk af löngu færi og átti sinn þátt í því að sunderland komst upp. Þessi 28 ára vængmaður hefur enga úrvalsdeildarreynslu en vakti athygli með landsliði trínidad og tóbagó á heimsmeistaramótinu í fyrra. EDUARDO DA SILVA – Arsenal Ekki sá leikmaður sem búist var við að yrði fenginn til arsenal eftir að thierry Henry var seldur. Það má þó ekki gleyma því að arsene Wenger, stjóri arsenal, er með öflugt net njósnara um allan heim sem vita sínu viti. Wenger og félagar trúa því að þessi 24 ára leikmaður, Króati af brasilískum ættum, hafi það sem þarf til að slá í gegn í ensku deildinni. tekin er ákveðin áhætta með því að veðja á leikmann sem hefur enga reynslu af ensku úrvalsdeildinni en ákvarðanir Wengers eru sjaldan dregnar í efa. FLORENT MALOUDA – Chelsea franski leikmaður ársins 2006 á að auka gæðin í Chelsea-liðinu. Hann hefur þegar sýnt það með félagsliði og landsliði hve góður leikmaður hann er. sumarið var óvenju rólegt hvað varðar leikmannaviðskipti hjá roman abramovich og félögum en Malouda er maðurinn sem mestar væntingar eru gerðar til. Það er ljóst að hann er hverrar krónu virði ef Chelsea nær því markmiði að endurheimta enska meistaratitil- inn á stamford Bridge. STEVEN PIENAAR – Everton stefna Everton er að halda framförunum áfram og verður spennandi að sjá hvort Pienaar getur hjálpað til við það en hann kemur til liðsins á láni í eitt tímabil. Þegar hann var yngri var hann talinn gríðarlegt efni og verður athyglisvert að sjá hvort hann geti endurheimt orðspor sem hann skaðaði með misheppn- aðri dvöl hjá Borussia dortmund í Þýska- landi. Pieenar getur spilað á báðum vængjunum eða í fremstu víglínu. ROLANDO BIANCHI – Manchester City Bianchi er fyrsti leikmaðurinn sem sven-göran Eriksson fékk til sín en hann kom mjög á óvart í ítalska boltanum á síðasta tímabili og skoraði átján mörk fyrir reggina. Nú ætlar þessi 24 ára leikmaður að sýna sig og sanna í enska boltanum en hann á að baki leiki með u21 landsliði Ítalíu. Hann hefur náð að skora á undirbúningstímabilinu en er samt nær óskrifað blað á Englandi. stuðningsmenn City vona innilega að hann feti ekki í fótspor Bernardos Corradi og georgios samaras sem fundu sig ekki hjá liðinu. Kúlu fyrir kúlu verður byrjandinn að meistara Púlborð billiard.is Suðurlandsbraut 10 S. 568 3920 & 897 1715 Hágæða 8 feta púlborð á einstöku verði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.