Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 18
Vistheimlli aldraðra í Stykklshólmi. A: núverandi dvalarhelmili, B og C: tveir mismunandi valkostir um byggingu húss undir
íbúðir tyrir aldraða. Teiknistofan hf., Ármúla 6 gerði uppdráttlnn, sem sýnlr framtíðarskipulag bygglngarreitslns.
Sé litið á einstök sveitarfélög, kemur í ljós, að
hlutfall aldraðra er hátt í ýmsum sveitahreppum, en
tiltölulega lágt í þéttbýlinu, þar sem þjónusta við
aldraða er auðveldari.
Ef sýslurnar fjórar eru bornar saman, kemur í ljós,
að hlutfall í Dalasýslu er hátt, eða 11,9%, sem er
verulega yfir landsmeðaltali. I Mýrasýslu er hlut-
fallið einnig yfir landsmeðaltali, eða 10,2%.
Meðal þeirra kenninga, sem settar hafa verið fram
um vistrýmisþörf vegna aldraðra, er, að fyrir hverja
100 íbúa 67 ára og eldri þurfi 10 rými á dvalar-
heimilum.
Sé þessari kenningu beitt á Vesturlandi, sést, að
þörfin samkvæmt henni er 121 rými á dvalarheim-
ilum.
Samkvæmt upplýsingum frá umboðum Trygg-
ingastofnunar ríkisins, eru nú greidd daggjöld til
dvalarheimila vegna 132 íbúa á Vesturlandi.
1 kjördæminu eru dvalarheimili eins og hér segir:
á Akranesi með 44 vistmenn
í Borgarnesi 59 vistmenn
í Stykkishólmi 18 vistmenn
á Fellsenda í Dölum 3 vistmenn
Samtals 124 vistmenn
Auk þess eru á Fellsenda 10 langlegusjúklingar.
Af þessum tölum sést, að vistþörfin er meiri en
áætlað var samkvæmt fyrrnefndri kenningu og að
Vestlendingar hafa sjáanlega komið ár sinni nokkuð
vel fyrir borð. Flest bendir til þess, að vistþörfin við
núverandi aðstæður sé meiri í sveitahreppunum,
bæði vegna þess, að í þeim er hlutfall aldraðra hátt,
og einnig vegna þess, að heimilisþjónusta í sveitum
hefur ekki verið fyrir hendi. Því hafa aldraðir i
sveitum orðið að yfirgefa heimkynni sín fyrr en ella
hefði orðið, ef möguleikar á heimilisþjónustu væru
fyrir hendi.
Dvalarheimilió í Stykkishólmi
Víða um landið hafa verið gerðar mjög ítarlegar
kannanir á högum aldraðra og þörf fyrir þjónustu
við þá.
A árinu 1976 var ein slík könnun gerð í Stykkis-
hólmi á vegum Rauða kross deildarinnar þar, og
leiddi hún í ljós meiri þörf fyrir jjjónustu við aldraða
en menn höfðu áður gert sér grein fyrir, að væri fyrir
hendi.
Könnunin náði til 90 einstaklinga 67 ára og eldri,
og voru þeir spurðir 9 spurninga, er vörðuðu þjón-
ustu við aldraða.
Fyrsta spurningin var um það, hvort þátttak-
endur vildu þiggja vist á dvalarheimili fyrir aldraða,
ef byðist í Stykkishólmi.
Svörin voru jákvæð:
SVEITARSTJÓRNARMÁL