Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Síða 52

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Síða 52
burt og unnið að dýpkun. Var viðgerðinni lokið á tveimur árum. Enn urðu að vísu nokkrar skemmdir, sem gert var við árin 1951 og 1952. Þá var Brjóturinn styrktur með smærri aðgerðum næstu árin. Endurbygging hafin árið 1960 Það var svo árið 1960, að hafizt var handa við framkvæmdir, sem voru nánast endurbygging „Brjótsins". Rekið var niður stálþil meðfram honum öllum og fyrir enda hans, og einnig var hann breikkaður nokkuð. Þessum framkvæmdum lauksvo Veifað í kveðjuskyni að lokinnl vel heppnaðri heimsókn tll Bolungarvíkur, en fundarmenn voru um borð í Fagranesi, þar sem Bergsteinn Gizurarson tók myndina. Á henni miðri er greinarhöfundur, Guðmundur Kristjánsson, bæjarstjóri. árið 1964, og var Brjóturinn kominn í núverandi horf, liðlega 200 m langur eða nær helmingi lengri en áformað var, þegar verkið var hafið. Um tæknilegu hlið verksins og undirbúning framkvæmdarinnar mætti hafa langt mál, en út í það fer ég ekki. Þó vil ég taka fram, að ég tel, að verkið, sem unnið var á árunum 1960 til 1964, sé tæknilega vel unnið, enda hefur Brimbrjóturinn nú staðið af sér reginátök i 16 ár án þess að láta á sjá. Ef við lítum til baka til ársins 1911, virðist það svo nú, þegar hafður er í huga tæknilegur undirbúning- ur verksins, ófullkominn tækjakostur og fjárhags- legur grundvöllur, að það hafi verið stórhuga ákvörðun að ætla sér að byggja hafnarmannvirki beint út í brimgarðinn, og vafalaust má um það deila, hvort raunsæi hafi legið þar að baki. En þegar Brimbrjóturinn, varnargarðurinn, var kominn, þá fyrst var skapaður möguleiki á því að byggja hér bátahöfn. Ég ætla ekki að lýsa síðari áföngum í hafnar- byggingunni hér, enda sá eftirleikur áfallalaus og sýnu auðveldari í framkvæmd. Örugg höfn undirstaða byggðar í Bolungarvík Hins vil ég þó geta, að það var fyrst árið 1972, eða fyrir aðeins 8 árum, að bátaflotinn gat legið öruggur í heimahöfn, þótt hafrót gerði. En allt til þess tíma bjuggu bolvískir sjómenn við þær aðstæður að þurfa að flýja heimahöfn, þegar óveður gerði, og leita hafnar á ísafirði. En það hefur ekki einungis verið hafnleysið, sem verið hefur orsök þess, að byggðin hér í Bolungarvík hefur átt í vök að verjast, þótt það eitt fyrir sig hafi verið ærið vandamál. Sú þjóðfélagsbreyting, sem leiddi til fólksflótta frá vestfirzkum byggðum, var einnig andstæð byggð hér. En hér gekk hún hins vegar aldrei eins nærri og víðast annars staðar. Heimamenn misstu aldrei trúna á því, að takast mætti að koma hér upp viðunandi hafnaraðstöðu, og þeir staðarkostir, sem gerðu Bolungarvík að stórri verstöð um 10 alda skeið, eru ennþá fyrir hendi. Því hefur það verið svo, að eftir þvi sem áfram hefur miðað með hafnarbætur, hefur gróskan í at- vinnulífinu aukizt og íbúunum fjölgað. Má og á það benda í þessu sambandi, að á sama tíma og íbúa- fjöldi á Vestfjörðum í heild hefur staðið í stað, þá hefur ibúatalan hér tvöfaldazt. Rétt er að undirstrika, að mikið vantar á, að komin sé hér viðunandi hafnaraðstaða, og er því mikið verk óunnið á því sviði. Við gerum okkur þess líka fulla grein, að það verk verður mjög kostnaðarsamt, og vera má, að viðhorf stjórnvalda kunni að vera eitt- hvað á sömu lund nú og 1901 — að hœlt sé við, að landinu sé Jyrst í stað ofvaxið að ráðast i slíkt fyrirtœki. En við teljum okkur geta fært fyrir því sterk rök, að það sé mjög arðbær fjárfesting fyrir þjóðarbúið að fjárfesta í hafnarmannvirkjum hér. SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.