Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 58
FRÁ
STJÓRN
SAMBANDSINS
5 MILLJÓNIR KRÓNA
TIL ÍTALlUSÖFNUNAR
Seinast í nóvembermánuði sl. urðu
á Suður-Italíu jarðskjálftar, sem jöfn-
uðu við jörðu heilu þorpin og urðu
nokkrum þúsundum ntanna að fjör-
tjóni.
Sveitar- og héraðsstjórnarþing
Evrópuráðsins, sem sambandið á að-
ild að, stendur fyrir fjársöfnun hjá
sveitar- og héraðsstjórnum í Evrópu
til stuðnings við þau sveitarfélög, sem
verst urðu úti i náttúruhamförum
þessum. Fyrsta söfnunarféð, sem
barst, var notað til brýnustu
björgunarstarfa og byggingu bráða-
birgðahúsnæðis, en nú er ætlunin, að
fé það, sem sveitarfélög Evrópu safna,
verði notað til þess að endurreisa
skóla, dagvistarheimili og ráðhús,
sem hrundu til grunna.
Einnig munu vera uppi áform um
að senda vinnuflokka sjálfboðaliða til
uppbyggingarstarfsins á Suður-Italiu
á komandi sumri.
Við afgreiðslu á ársreikningi sam-
bandsins fyrir árið 1980 ákvað
stjórn þess að verja 5 milljónum
gamalla króna af tekjuafgangi ársins
til þessarar Italíusöfnunar.
Á vettvangi Sveitarstjórnarþings
Evrópuráðsins hefur einnig verið rætt
um sameiginlegar aðgerðir vegna
náttúruhamfara og tjóna af völdum
þeirra, og er Island meðal þeirra rikja,
sem talin eru á hættusvæði vegna
jarðskjálfta.
KÖNNUN
ÓVEÐURSTJÓNA
Rikisstjórnin gerði eftirfarandi
samþykkt á fundi hinn 19. febrúar sl.:
„Rikisstjórnin samþykkir, að nú
þegar fari fram könnun á þvi
tjóni, sem varð i ofviðrinu aðfara-
nótt 17. febrúarsl. Verði þess farið
á leit við sveitarfélögin, að þau
taki saman yfirlit yfir tjón i hverju
byggðarlagi og komi niðurstöðum
á framfæri við Samband islenzkra
sveitarfélaga og ríkisstjórnina.
Rikisstjórnin samþykkir enn-
fremur, að undirbúin verði breyt-
ingá lögum um Viðlagatryggingu
Islands, þar sem m. a. verði gert
ráð fyrir þvi, að tryggingin nái til
tjóns af völdum fárviðris, eftir þvi
sem unnt er. 1 þessu sambandi
verði einnig endurskoðuð lög um
Bjargráðasjóð og athugað, á hvern
hátt sé rétt að skipta verkefnum
milli hans og Viðlagatryggingar
Islands.
Þess verði óskað sérstaklega við
tryggingafélögin, að þau einfaldi
skilmála sina þannig, að ljósari
verði sá rétturog þeir möguleikar,
sem viðskiptamenn trygginganna
hafi.
Þá samþykkir ríkisstjórnin, að
við afgreiðslu lánsfjárlaga verði
tekið til athugunar, að hve miklu
leyti þarf að gera ráð fyrir sér-
stakri lánsfjárheimild til að auð-
velda endurbætur mannvirkja, er
tjónamat liggur fyrir.“
Samþykkt þessi var send stjórn
sambandsins, sem fjallaði um efni
hennar á fundi 20. febrúar, og var
þeim tilmælum beint ti! sveitar-
stjórna, þar sem tjón hefðu orðið 16.
og 17. febrúar, að þær létu fara fram
umbeðna könnun og sendi skrifstofu
sambandsins niðurstöður hennar hið
allra fyrsta.
ODDVITASKIPTI
I Sveitarstjórnarmálum 5. tbl. 1980
var skýrt frá oddvitaskiptum, sem
orðið hefðu i nokkrum hreppum, frá
því að Sveitarstjórnarmannatalið
1978—1982 kom út á sínum t'ima.
Hér verður nú til viðbótar getið
tveggja breytinga, sem einnig höfðu
orðið, þótt fram hefði komið fyrr á
árinu í samtali við nýjan oddvita, að
oddvitaskipti hefðu orðið í öðrum
þessara hreppa.
Svalbarðsstrandarhreppur
Það var i Svalbarðsstrandarhreppi
í Suður-Þingeyjarsýslu. Þar hafði
Bjarni Hólmgrimsson á Svalbarði
tekið við sem oddviti hreppsins af
Hreini Ketilssyni, sem varð útibús-
stjóri Samvinnubankans á Sval-
barðseyri. Samtal birtist við hinn
nýja oddvita i 4. tbl. 1980.
Auðkúluhreppur
I Auðkúluhreppi i Vestur-ísa-
fjarðarsýslu fluttist Kristján E.
Björnsson, vélstjóri í Mjólkárvirkjun i
Þingeyrarhrepp, en Hallgrímur
Sveinsson, bóndi á Hrafnseyri, sem
var varaoddviti, tók við sem oddviti
hreppsins.
Astæða þykir til að minna á, að
skrifstofu sambandsins sé gert kunn-
ugt um breytingar, sem verða á skip-
an oddvita og annarra embættis-
manna hjá sveitarfélögunum, því
margir leita til skrifstofunnar til þess
að fá gefin upp nöfn og heimilisföng
þeirra. Áherzla er þvi lögð á, að jafn-
an sé á skrifstofunni eintak af
Sveitarstjórnarmannatali
1978—1982 með innfærðum öllum
breytingum, sem á hafa orðið.
SVEITARSTJÓRNARMÁL