Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 67

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1981, Blaðsíða 67
ÞING ALÞJÓÐASAMBANDS SVEITARFÉLAGA HALDIÐ I' BANDARIKJUNUM í JÚNÍ Þing Alþjóðasambands sveitarfé- laga, hið 25. í röðinni, verður haldið í bænum Columbus í Ohio fylki í Bandaríkjunum dagana 21. — 25. júní næstkomandi. Á þinginu verður rætt um fyrirheit níunda áratugarins, hlutverk sveitar- félaga um heim allan á tímum verð- bólgu og hárra vaxta, en gengið virð- ist út frá því, að framundan séu mögru árin i búskap sveitarfélag- anna, eftir þenslu seinustu áratuga. Efni ráðstefnunnar verður rætt í átta umræðuhópum. í þeim fyrsta verður fjallað um orkumál og orku- sparnað, í öðrum hópnum um hús- næðis-, byggingar- og skipulagsmál, í þeim þriðja um samvinnu einkaaðila og opinberra aðila um endurbygg- ingu gamalla hverfa eða bæjarhluta. Sá fjórði ræðir hagnýtingu framfara á sviði vísinda og tækni á sviði sveitar- stjórnarmálefna, m. a. í samgöngum, í þjónustustofnunum og á sviði tölvutækni. Fimmti hópurinn ræðir þátttöku kvenna í sveitarstjórnar- störfum, sá sjötti um þróun almenn- ingsvagnaþjónustu og breytt viðhorf gagnvart henni, sá sjöundi um æskulýðsmál og sá áttundi um hina ýmsu þætti öldrunarmála, s. s. þátt sjálfboðaliða í heimaþjónustu. BYGGÐAVANDI EVRÓPSKRA EYJA SB Sveitar- og héraðsstjórnarþing Evrópuráðsins hefur boðað til ráð- stefnu um byggðavanda evrópskra eyja á Tenerife á Kanaríeyjum dag- ana 7.—10. april næstkomandi. Undirbúningsnefnd ráðstefnunnar undir forsæti Mota Amaral, sem er formaður sjálfsstjórnar Azoreyja, boðar sérstaklega á ráðstefnu þessa fulltrúa sveitar- og héraðsstjórna á eyjum við strendur Evrópu. Markmið hennar er að ræða sérþarfir þessara eyja og marka stefnu í málefnum þeirra. Ráðamönnum eyjanna gefst þarna tækifæri til að marka sam- eiginlega afstöðu gagnvart stefnu hinna ýmsu Evrópu-stofnana, s. s. Evrópuráðsins, Efnahagsbandalags- ins og fleiri aðila, sem m. a. fara með yfirstjórn byggða- og samgöngumála í álfunni. NORRÆN RÁÐSTEFNA UM SKIPULAGSMAL Norræn ráðstefna um skipulagsmál (Nordisk byplanmode 1981) verður haldin í Hanstholm á Jótlandi dag- ana 25.-27. maí n. k. Ráðstefnur sem þessi hafa verið haldnar með þriggja til fimm ára millibili frá árinu 1960 og hverju sinni verið fjallað um eitt aðalefní í fyrirlestrum og umræðuhópum auk þess sem þátttakendum gefast ýmis tækifæri til kynnisferða og skoðana- skipta. Að þessu sinni beinast sjónir að smærri einingum í skipulagi, jafnt skipulagsmálefnum litilla sveitar- félaga sem afmörkuðum þáttum um- hverfismótunar innan stærri bæja. Þátttakendur í þessum ráðstefnum eru arkitektar, sveitarstjórnarmenn Bærinn Columbus í Ohio er sagður spegilmynd af bandarískum bæjum og er mikið notaður til að gera þar skoðanakannanir og markaðskann- anir. Merkilegir sögustaðir eru i næsta nágrenni, og gefst þátttakend- um kostur á skoðunarferðum til margra þeirra í tengslum við þing- haldið. Skrifstofa sambandsins veitir nán- ari upplýsingar um þátttökugjald og ferðakostnað. Verði sveitarstjórnar- menn á ferðinni í Bandaríkjunum síðari hluta júnímánaðar, ættu þeir að gera skrifstofu sambandsins kunn- ugt um það. Á ráðstefnunni verða lagðar fram skýrslur um ýmis hugðarefni framá- manna á Azoreyjum, á Madeira og á Kanaríeyjum, og þess er óskað, að ábendingar berist frá fleirum um hugsanleg sameiginleg hagsmunamál ey-héraða Evrópu. Sveitarstjórnarmenn, sem kynnu að leggja leið sína til Kanaríeyja um þær mundir, sem ráðstefnan er hald- in, ættu að gera skrifstofu sambands- ins kunnugt um það hið fyrsta. Hún veitir einnig nánari upplýsingar um ferðamöguleika og kostnað við þátt- töku í ráðstefnunni. og embættismenn, sem að skipulags- málum starfa. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 25. marz n.k. til Dansk Byplanlabora- torium, Tordenskjoldsgade 10, 1055 Kobenhavn K. Fulltrúi Arkitektafélags Islands í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar er Hrafnkell Thorlacius, Laugavegi 96, sími 17277, og veitir hann frekari upplýsingar. SVEITARSTJORNARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.